Fyrir skömmu kom út hjá Harmonia mundi geislaplatan þar sem kór Clare College í Cambridge, einn besti háskólakór heims, syngur lög eftir íslenska tónsmiði undir stjórn Grahams Ross. Einnig eru á plötunni strengjaverk eftir Jón Leifs og Sigur Rós sem strengjasveitin Dmitri Ensemble flytur. Hljómdiskurinn hefur fengið mjög góða dóma í erlendum fjölmiðlum. Flutt er tónlist af þessum hljómdiski, meðal annars verk eftir Önnu Þorvaldsdóttur, Sigurð Sævarsson, Hjálmar H. Ragnarsson og Jón Ásgeirsson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.