Í þættinum verða fluttar þrjár danskar tónsmíðar sem samdar eru undir áhrifum frá íslenskum fornsögum eða -kvæðum. Fluttur verður inngangur að kantötunni „Baldurs drøm“ eftir Niels Wilhelm Gade, verki sem sækir efni í norræna goðafræði, söngvaflokkurinn „Gudruns sorg“ eftir Peter Heise, sem saminn er við danska þýðingu á Guðrúnarkviðu hinni fyrstu, og hljómsveitarverkið „Saga-Drøm“ eftir Carl Nielsen, en þar er vísað til draums Gunnars á Hlíðarenda sem sagt er frá í Brennu-Njáls sögu. Einnig verða leiknar tónsmíðar eftir Jón Leifs. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Gunnar Hansson og Melkorka Ólafsdóttir.