Á þessu ári eru liðin 400 ár síðan franska leikritaskáldið Molière fæddist, en hann þykir eitt besta gamanleikjaskáld allra tíma. Af frægum leikritum hans má meðal annars nefna „Tartuffe“, „Aurasálina“ og „Ímyndunarveikina“, en nafn aðalpersónunnar í „Tartuffe“ er komið inn í franska tungu sem orð með merkinguna „hræsnari“. Leikin verður tónlist úr leikritum Molières og einnig verður flutt brot úr útvarpsupptöku af leikritinu „Ímyndunarveikinni“ frá 1965, en þar fara Brynjólfur Jóhannesson og Margrét Guðmundsdóttir með aðalhlutverkin. Flutt verður tónlist eftir Jean-Baptiste Lully, Marc-Antoine Charpentier, Richard Strauss og Ríkarð Örn Pálsson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðni Tómasson.