Afsakið
Download on the App Store

Afsakið episodes

  • Hvort myndir þú frekar?

    Lilja smellir sér í hlutverk spyrils og spyr stelpurnar hvort þær myndu spurninga.

    Stelpuskotið kemur úr horni Þorbjargar og er hlaðvarps snillingurinn og kjarna konan Anna Marsibil, það er svo sannarlega vert að fylgjast með henni!

    Gjafir á skvísurnar og svo ein erfið rassahola.

    1 hr 5 min
  • Þakklæti og jákvæðir straumar

    Stelpuskot þáttarins kom frá fallegum hlustanda sem vildi deila með okkur hvað frábæra vinkona hennar er mögnuð stelpukona! Það er hún Eygló sem á og rekur Sawe tannhvíttun (@saweisl á insta) og þökkum við Maríu kærlega fyrir að vera svona falleg og góð vinkona og hlustandi! Þið eruð báðar magnaðar.

    Rassaholan er skrítin, skemmtileg og inniheldur sokka! Hver elskar ekki gott sokkapar?

    Þema þáttarins er jákvæðni, hugarfarsbreyting og þakklæti og ákváðu Fjóla og Þorbjörg að fókusa á að færa ykkur hlustendum jákvæðar fréttir úr heiminum.

    Fjóla hefur alltaf sagt að illu sé best af lokið...en er fólk fætt þannig eða þurfum við að þjálfa þetta með okkur?

    Að lokum viljum við bara segja hvað við erum þakklátar fyrir ykkur kæru hlustendur. Þið eruð æði!

    1 hr 5 min
  • Stelpugleði mun lækna heiminn

    Stelpugleði (e. Girljoy) er umræðuefnið í þætti vikunnar. En Lilja, Þorbjörg og Fjóla eru allar sammála um að það þarf að gera henni hærra undir höfði. Bleikur er æði! Chick flicks eru bestar og að fíla píkupopp er töff!

    Stelpuskotið þessa vikuna er hún Katrín Sif, eða Kata, sem er hárgreiðslukona á stofunni Sprey, en hún er algjör ævintýra stelpukona sem er nákvæmlega eins og hún vill vera. Litagleði, góðmennska og hlýja er mjög lýsandi fyrir hana.

    Rassaholan er á sínum stað og þegar við höldum að þær geti ekki orðið stærri...tja þá höfum við ítrekað rangt fyrir okkur.

    Fjóla deilir svo gömlu TinderTrauma og hún horfir ekki sömu augum á grasagarðinn eftir það stefnumót!

    54 min
  • Bring your sister to the podcast ft. Dagný systir Lilju

    Lilja tekur Dagný systir sína með í hlaðvarpið í kvöld og Fjóla lætur þær svara "Hvor er..." spurningum og fáum við að kynnast þeim systrum ansi vel. Fjóla fer aðeins yfir Ofurskálar fréttir helgarinnar ásamt því að kynna stelpuskotið. En það er hún Emma Tran frá Víetnam sem á Mjóddina Snyrtistofu. En hún er mikill frumkvöðull og hefur fært landsmönnum fullt af skemmtilegum og flottum snyrtimeðferðum sem hafa ekki verið til á landinu. Hún er búin að byggja upp fyrirtækið sitt alveg frá grunni og tekur með sér konur úr sínu samfélagi í það ferðalag.

    Rassaholan er svo á sínum stað en hún er einmitt systratengd.

    1 hr 26 min
  • "Gellur eru gellum bestar" ft. Kristjana Björk Barðdal

    Kristjana Björk Barðdal ofurgella, framapotari og framkvæmari svo fátt eitt sé nefnt mætir til okkar í þáttinn og spjallar við Fjólu og Lilju um Gellu vinnustofuna sem hún ásamt öðrum frábærum gellum komu á laggirnar.

    Kristjana svarar örfáum hraðaspurningum. Við förum yfir The Grammy's sem var mesta gellu Grammy's sem sögur fara af. Rassaholan er á sínum stað og svo förum við yfir hvað eru okkar "icks".

    1 hr 16 min
  • Hann er tía en...hann er með pung fyrir tær.

    Í þessum þætti ræðum við hrææææðilegt tinder trauma. Erum enn að reyna að átta okkur á eyrnapinnanum...

    Þorbjörg spyr okku spjörunum úr þannig að þið fáið að kynnast Fjólu, Lilju og Þorbjörgu mjög vel í þættinum. Það liggur við vinaslitum þegar Pedro Pascal ber á góma...aftur. Og við tökum "hann er tía en..." spurninga.

    Algjör veisla og mikið hlegið.

    1 hr 19 min
  • Konungsfólk og karlamelluskyr

    Konungsfólk er milli tannanna á stelpunum þennan þáttinn. Fara yfir muninn á Bresku konungsfjölskyldunni og þeirra sem ríkja t.d. í skandinavíu. Helstu skandalar og fleiri mis merkilegt rætt þar. Stelpuskotið á sínum stað en það er hin bráðsnjalla, flotta og hæfileikaríka Hildur Kristín. Fjóla leiðir okkur inn á sveitt tinder trauma og Þorbjörg heldur svitaveislunni áfram í rassaholu dagsins!

    1 hr 12 min
  • Blöðrusía og smellibrellur

    Í þætti vikunnar eru Ásdís, Fjóla og Þorbjörg mættar til að deila með ykkur sínum uppáhalds hlaðvörpum. Þær eru allar mjög ólíkar týpur og því mjög áhugavert hvað þær hlusta á. Þannig að ef þig vantar ný hlaðvörp til að hlusta á leitið þá ekki lengra.

    Umræða þáttarinns er alls ekki af verri toganum þar sem Ásdís fræðir okkur um upplýsingaróreiður, þá sérstaklega á internetinu, og hvað það er mikilvægt að þróa með sér fjármálalæsi.

    Stútfullur þáttur af fræðslu og áhugaverðu efni!

    Hlaðvörp nefnd í þættinum:

    Draugar fortíðar

    Heimskviður

    Think Twice

    I'm not a monster

    Þarf alltaf að vera grín?

    Indestructable PR

    Ráfað um rófið

    Something was wrong

    Nobody should believe me

    Even the Royals.

    Smá bónus frá Þorbjörgu:

    Will be wild og The coming storm (fjalla um uppreisnina 6 janúar í DC og staðfestingarvillu)

    1 hr 3 min
  • Dating...uughh!

    Í þætti vikunnar eru mættar Fjóla, Lilja og Þorbjörg.

    Þær ræða stelpuskotið sem er hin eina sanna Aníta hjá Sassy góðvinkona okkar.

    Rætt er um Golden Globes fíaskóið þar sem uppistandari verður vís að því að vera bara mjög ófyndinn.

    En aðal umræðuefni þáttarins er um deitmenningu, vandræðaleg stefnumót og tinder bios...þeir fiska sem róa...eða hvað?

    Rassaholann slær botnin í tunnuna sem snertir einmitt á deitmenningu...

    1 hr 17 min
  • Gellu Gym

    Ásdís, Lilja og Þorbjörg ræða þau mál sem mestu skipta, áramótin, Margréti drottningu, Ástþór Magnússon og gellu gym!

    Ásdís kemur með gott shout out á mann sem á það líklega mest skilið og Þorbjörg með góða "er ég rassaholan" sögu.

    1 hr 8 min

About Afsakið

From the publisher's feed

Afsakið er hlaðvarp þar sem fjórar stelpukonur neita að biðjast afsökunar á því að vera þær sjálfar. Hér er (næstum) allt sett á yfirborðið – allt frá þeirra hjartans málum til hversdagslegra…

More shows like Afsakið

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Mömmulífið by Mömmulífið

Mömmulífið

2 Listeners