Share Afsakið
Share to email
Share to Facebook
Share to X
By Afsakið
The podcast currently has 31 episodes available.
Í þætti vikunnar fara Lilja og Fjóla yfir nokkrar spurningar fyrir hlustendur til að kynnast þeim betur, en breytingar hafa auðvitað orðið á þáttastjórnendum og því tími til kominn að fara yfir þetta aftur.
Þær fara á dýptina en stutt er auðvitað í hláturinn samt sem áður!
Stelpuskotið er að sjálfsögðu á sínum stað og er það aktivistinn og naglinn hún Ólöf Tara!
Í þessum þætti er farið yfir ákærurnar sem allir eru að tala um, P Diddy málið. Stelpurnar fara yfir ákærurnar sem liggja fyrir og hinar ýmsu kenningar og flökkusögur sem hafa komið upp í kringum þetta mál. Það má því vel setja trigger warning á þáttinn ef fólk er viðkvæmt fyrir ofbeldis umræðu af einhverju tagi.
Stelpuskot vikunnar er engin önnur en hæfileikabúntið Katla Njálsdóttir. Leikkona, söngkona, málfræði séni og meistari sem öll ættu að fylgja, svo er hún náttúrlega sjúklega fyndin og asnalega sæt!
Þátturinn endar á einni rassaholu þar sem móðir mistekst óþarflega fast og mikið í samskiptum við unga dóttur sína.
Í þessum þætti fara Fjóla og Lilja yfir það hvað þeim finnst gott að gera til þess að halda í jákvæðnina og koma sér upp úr sunnudags óttanum. Jákvæðar staðhæfingar og æfingar til þess að hafa í huga til þess að passa vel upp á sig sjálft í daglegu amstri.
Það er enginn 100% alltaf en það er gott að eiga verkfæri til þess að grípa í þegar þarf.
Stelpuskot vikunnar er snillingurinn og hlaðvarps geitin Tinna BK! Húmoristi, hlaðvarpsstjórnandi, móðir, Hvergerðingur og gella sem stelpurnar eru sannarlega sammála um að eigi skilið pláss í stelpuskotinu.
Lilja fer svo yfir smá Tinder mini, sem er kannski ekki orðið trauma en gæti verið á leiðinni þangað. Spurningin er, hvaða ráð fær hún frá Fjólu?
Lilja er svo dásamleg í þessum þætti að deila með okkur sínu greiningarferli, en hún greindist með PCOS fyrr á árinu.
Einnig fræðir hún okkur um sjúkdóminn og fer yfir einkenni.
Stelpuskotið er að sjálfsögðu á sínum stað og óhætt að segja að hún er eflaust best ilmandi íslendingurinn!
Að auki er svo rassahola í lokinn!
Í þætti vikunnar taka Fjóla og Lilja stöðuna inn í haustið. Hvað er framundan, hvaða verkefni eru að ganga í garð og Fjóla kemur út úr norna skápnum...
Stelpuskotið er á sínum stað ásamt tvöföldu TinderTrauma og Rassaholu! Okkur finnst gaman hérna...oftast.
Hæ og velkomin í season 2 af Afsakið!
Í dag fara Lilja og Fjóla yfir Póllandsferðina og Eras Tour. Segja má að þær svífi um á bleiku Swiftie Skýi!
Lilja er svo með hræææðilegt TinderTrauma (eru þau einhverntíman góð samt?)
Við hlökkum til að vera með ykkur í vetur og minnum ykkur á að finna okkur á samfélagsmiðlunum TikTok, Instagram og Facebook <3
Taylor Swift special þáttur ársins er lentur!
Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum hversu mikill Swiftie Fjóla er og nú er tími kominn til að láta drauma rætast. Afsakið skvísur eru á leið á The Eras Tour.
Þar af leiðandi er þessi þáttur um allt Taylor Swift.
Fjóla fékka næstum taugaáfall í þessu ferli þannig að við förum yfir það.
Lilja setur Fjólu í heita sætið og spyr hana spjörunum úr, gekk vandræðalega ekki of vel...hehe
Það er auðvitað almennt spjall og hlátrasköll! Njótið vel.
Hæ! Við erum ennþá hér.
Eftir smá óplanaða pásu er kominn nýr þáttur þar sem við sameinum umræðuna við Tinder Trauma.
En í þessum þætti fara Lilja og Fjóla yfir þættina Baby Reindeer sem tóku yfir heiminn...og internetið...með stormi. Við tölum einnig um viðtölin sem hafa komið fram eftir þættina.
Við segjum svo okkar eigin sögur af okkar reynslum þegar kemur að málefninu. 2 mjög ólíkar frásagnir en báðar jafn mikilvægar og bendum á mikilvægi þess að uppfæra löggjöfina í kringum þennnan málaflokk.
Frekar alvarlegur þáttur að þessu sinni en auðvitað er stelpuskotið á sínum stað og er það hin ótrúlega fallega, hæfileikaríka og hlýja Guðrún Helga Sørtveit.
Mögulega koma fleiri pásur í sumar vegna fríja og utanlandsferða en við erum hvergi nærri hættar! <3
Þáttur vikunnar er með örlítið nýju sniði, afsökum ef hljóðgæði kunna að vera undarleg!
Lilja og Fjóla fara yfir mjög óheppilegt og óþolandi Tinder trauma sem Lilja valsaði inn í í vikunni. Tinder traumanu fylgdi svo umræða um misgóðar pikköpp línur en getið þið sagt okkur virka þær? Stelpuskot vikunnar er hin magnaða, klára, flotta, fallega og bráð gáfaða Tara Margrét sem hefur heldur betur beitt sér fyrir líkamsvirðingu síðustu ár.
Í kjölfar umræðu um líkamsvirðingu fléttaðist umræðan inn í filtera noktun, samfélagsmiðla, photoshop og óraunhæfar kröfur sem samfélagsmiðlar setja fólki.
Við bjóðum upp á algjöran neglu þátt þessa vikuna. Hún Eva Margrét kom til okkar í spjall. En hún er að sjálfsögðu stelpuskot vikunnar. Eva er fyrrum framkvæmdastjóri Arena og fráfarandi formaður RÍSÍ - Rafíþróttasambandi Íslands. Hún er partur af gamer gellum sem kalla sig Baba Patrol og tókum við mjög fræðandi samtal um stelpur í tölvuleikjum og fengum ráðleggingar um tölvuleikjanotkun barna.
Að auki er hún brjálæðislega fyndin og kemur á hverju ári með mjög skemmtilegt take á páskaeggjamálsháttum. Hún er mikil fyrirmynd og talar opinskátt um ferlið sem hún er í þessa daganna í sjálfsvinnu og endurhæfingu.
TinderTrauma er aðsent að þessu sinni!
Við þökkum Evu kærlega fyrir að mæta til okkar í spjall!
The podcast currently has 31 episodes available.
225 Listeners
126 Listeners
129 Listeners
29 Listeners
94 Listeners
27 Listeners
32 Listeners
71 Listeners
27 Listeners
20 Listeners
10 Listeners
12 Listeners
10 Listeners
1 Listeners
5 Listeners