Efni Lestarinnar: McQueen nefnist ný heimildarmynd um breska listamanninn Alexander McQueen. Myndin er sýnd á hátíðinni FFF - Fashion Film Festival sem fer fram í Bíó Paradís dagana 20.-24. nóvember. Að gefnu tilefni verður fjallað um líf og list McQueens í þætti dagsins. Viðmælendur verða Álfrún Pálmadóttir og Ása Bríet Brattaberg, umsjónarkonur Fashion Film Festival. Og í þættinum í dag verður einnig haldið áfram að fá fólk til mæla með bókum sem tala inn í okkar samtíma, með einum eða öðrum hætti, mæla með bókum sem við eigum að lesa hér og nú. Í dag er röðin komin að Guðrúnu Nordal, forstöðumanni Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Og bresku sjónvarpsþættirnir Bodyguard hafa verið mikið á milli tannana á fólki undanfarið enda þykja þeir einhverjir þeir mest spennandi sem komið hafa fram lengi. Áslaug Torfadóttir fjallar um þættina í Lestinni í dag.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson