Alvarpið

Alvarpið

Download on the App Store

Alvarpið episodes

  • Með á nótunum #13

    Óli er á leiðinni til New York þannig að við rifjuðum upp nokkrar góðar New york sögur. Óli sagði frá því þegar hann kom út úr skápnum við pabba sinn en fékk heldur óhefbundið svar. Við ræddum Kayne West og andlega gjaldþrotið sem hann er í. Natalie rifjaði það upp þegar það kviknaði í vinkonu hennar á bar í NYC og barinn varð aldrei samur eftir það. Þetta og svo margt margt fleira.​

    1 hr 2 min
  • Bíó Tvíó #76 – Vonarstræti

    Post-hrun multiplot drama um séní, vændiskonu og bankster í Bíó Tvíó vikunnar. Andrea og Steindór horfðu á Vonarstræti (2014) sem byggir á raunverulegum atriðum úr aðdraganda bankahrunsins. En hvað er málið með Zorro? Er capers gott? Af hverju datt Steindór í Tjörnina? Allt þetta og lausn Rottweiler sögunnar í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 9 min
  • Með á nótunum #12

    Hér kemur þáttur þar sem Natalie og Óli fara rækilega yfir málin. Sveitastjórnarkosningarnar eru ræddar og Natalie kynnir framboðið sitt. Óli segir frá því þegar hann var afhommaður eitt kvöld og Natalie segir frá því þegar hún og Bubbi Morteins tókust á í RÚV. Þetta og svo margt margt fleira.

    1 hr 3 min
  • Bíó Tvíó #75 – Boðberi

    Boðberi er kvikmynd frá árinu 2010 um baráttu engla og djöfla á Íslandi og eina manninn sem getur bjargað þjóðinni. Andrea og Steindór horfðu í forundran á trúarlega, karlrembu, stéttarbaráttu, Pólverja-haturs súpu sem var tekin upp fyrir hrun en gefin út eftir. En af hverju er jörðin ekki í Star Wars? Er myndlist bara málverk? Og hvað er Daloon dagur? Allt þetta og Rottweiler móðgunin í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 31 min
  • Fillifjónkan 24. þáttur – Matseðill lífsins

    Lára og Júlía fá skilaboð frá ljósálfunum í glænýjum þætti þar sem farið verður yfir feril þeirra sem keilugarpar, uppáhalds karókílögin og hvernig sönkonurnar Robyn og Lana Del Rey fóru úr 0 í 100 með því að blekkja hlustendur sína, klippa á sér hárið og smella sér á sílíkon. Alanis Morisette er dàsömuđ. Passív aggressívu ljósàlfarnir minna Làru à ađ þađ er ekki nóg ađ panta borđ í lífinu, þađ verđur ađ biđja um matseđil. Hollywoodskiltið blasir við Júlíu, Lára er ein heima í Stokkhólmi að klína ostapoppi í sófann.

    1 hr 1 min
  • Ískisur 42 – Bók 5 – Kaflar 11-14 – Handicats: Rexie & Moggy

    Í þættingum játar Helga hún syngur klámvísur í guðshúsum. Við komumst að því hver stelpnanna er týpan sem öskrar á börn úti að leika. Er hægt að öskra fallega á börn? Getur Margit fríað sig ábyrgð ef lesendur taka upp á að framkvæma skurðaðgerðir samkvæmt læknisvísindum Ísfólksins? Er hægt að vera loðmæltur án frygðar?

    Ískisur — eru unaðslegar, líka vísindalega séð

    1 hr 7 min
  • Með á nótunum #11

    Í þessum þætti þá var farið yfir víðan völl. Við ræddum mál málana Sindra stroku fanga. Nýja myndbandið hjá Vigdísi Hauks eða Víkingu Hauks eins og við kjósum að kalla hana. Ræddum fegurðarsamkeppnir og Óli kom með skúbb um Manúelu Ósk. Við fórum út í íslenska swingera menningu. Þetta er bara brotabort og eina leiðin til að komast að meiru er að leggja við hlustir.

    1 hr 3 min
  • Bíó Tvíó #74 – Skrapp út

    Bíó Tvíó heldur 420 hátíðlegan með því að fjalla um fremstu grasreykingamynd íslenskrar kvikmyndasögu. Andrea og Steindór horfðu á Skrapp út frá 2008 og veltu fyrir sér hvort hún sé heimildamynd eða ekki. En hvar búa sjúkrabílar? Hvernig móðgaði Steindór meðlim XXX Rottweilerhunda? Og er hægt að lesa 15.000 bækur? Allt þetta og stuttur Frakki í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 22 min
  • Með á nótunum #10

    H​ér er farið yfir víðan völl eins og venjulega. Við krakkarnir fórum í Bió Paradís á Prum í Paradís og ræddum það í þaula. Óli stóð í stórræðum um helgina og bjargaði gestum kaffibarsins frá glasadólg. Óli gaf okkur innsýn inní leðurhommaklúbbasenunni og hans upplifun á henni. Við fengum uppdeit með Tom Hanks málið OG Hollywood slúðrinu gerð góð skil. Þetta og svo margt fleira.

    1 hr 4 min
  • Englaryk 80 – Kardash-rassían

    Það er aldrei lognmolla yfir Kardash-fam og ef það er ekki eitt barn að koma í heiminn eða hjónaband á leiðinni í hundana þá er það allt þar á milli og NBA leiklúðinn Tristan Thompson er víst bara gæi sem „lendir í framhjáhaldi“. Karl Lagerfeld hefur lagt lóð sitt á vogarskálarnar varðandi #Metoo hreyfinguna og það er óhætt að segja að það var interessant og Hanna og Dröfn runnu yfir það lauflétt.

    47 min

About Alvarpið

From the publisher's feed

Varplendi raddbandanna