Alvarpið

Alvarpið

Download on the App Store

Alvarpið episodes

  • Bíó Tvíó #73 – Regína

    Uppáhald Andreu, dans- og söngvamynd, var til umfjöllunar í Bíó Tvíó vikunnar. Andrea og Steindór bjóða „Góðan dag, góðan dag!“ og spjalla um Regínu frá 2001. En hvorir eru betri, sálfræðingar eða Vísindakirkjan? Hvernig drykkjumenning er best? Hvað finnst fólki um Bugsy Malone? Allt þetta og Hagaskóli í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 29 min
  • Ískisur 41 – Bók 5 – Kaflar 9-10 – Kötturinn Hundur

    Ískisur er skemmtiþáttur um bókabálkinn Ísfólkið og internetkisur.

    Stelpurnar ræða um stóru málin, kaffi, umhverfisvitund og fjarheilun. Jesúsína finnur upp hjólastólinn á einum degi.

    Af hverju fengum við ekki Fjósafjör með Jesper? Getur maður borðað föt? Hversu gott er „gott faðmlag“? Hvor kom á undan Þorri eða Geiri? Er SKAM af sama kalíber og Hannah Montana? Voru kallar meira í umönnunarstörfum á 19. öld? Tekst JeSíSí að snúa Alla?

    Ískisur — því annað er viðurstyggð

    56 min
  • Glápið – S02E11 – Topp páskar

    Glápinu er margt til lista lagt og þá sérstaklega að rýna í alls konar lista sem verður að viðurkenna að við gerum listavel. Mætti jafnvel segja að við gerðum það að list(a)!

    0 min
  • Með á nótunum #9

    Þessi þáttur er hlaðin af skúbbi. Natalie segir frá því þegar hún hitti frænda Brad Pitt og fékk mjög svo óvenjulega bón frá honum. Stóra útvarp sögumálið er rætt og Óli uppljóstrar sínum tengslum við þáttastjórnendur þar. Söngkonan Lorde fór yfir strikið og við erum ekki ánægð með hana . Þetta og margt , margt fleira.

    1 hr 4 min
  • Fillifjónkan 23. þáttur – Rex

    Minjavörðurinn Lára skiptir sangria út fyrir hlaupaofskynjunarvímu því hún er að æfa sig fyrir hálfmaraþon í Stokkhólmi. handritshöfundurinn Júlía er enn að jafna sig á hvað jógahipparnir voru væmnir í jógastúdíóinu í þetta fyrsta og hinsta sinn sem hún mætti – og gubbaði.

    Lára opinberar ást sína á unglingsárunum, jafnvel þó að í tilviki Fillífjónkunnar hafi það verið tími ranghugmynda á borð við þá rökvillu að Coldplay væru kúl en Britney Spears ekki.
    Júlía rifjar upp erfið ár í Berlín þegar hún var catfish á fólk.is spjallinu þrettán ára, drakk kakao við grindverkið á leikvellinum og bölvaði lögregluhundinum Rex. Lára kynntist því að vera “fomo” þegar hún missti af foreldralausum partýum og allir höfðu gaman án hennar.

    Lára fær tarotspádóm 23.þáttar en það prýða fimm skeggjaðir menn í bleikum kjólum að slást með trjágreinar.

    Lífið á sögulega innkomu þegar það hringir inn í þáttinn í beinni og biður um óskalag.

    1 hr 5 min
  • Bíó Tvíó #72 – Húsið

    Spúkí múví í Bíó Tvíó þessa vikuna. Andrea og Steindór horfðu á Húsið frá árinu 1983, mynd Egils Eðvarðssonar um skuggalega fjölskyldufortíð. En hvaða staðall er notaður yfir stærðir á páskaeggjum? Hverju getur Andrea svarað úr spilinu „Ég veit“? Og hvernig er að fara á rúntinn með Sigga sýru? Allt þetta og vörubílaendir í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 12 min
  • Fávitinn 2. þáttur

    Félagarnir Víkingur og Ólafur Darri ræða typpahlaup, vanþakkláta verkalýðsforystu, álitlegar auglýsingaherferðir og fjármálarapp og nýfertuga þjóðargersemin Ilmur Kristjánsdóttir er aðalgestur þáttarins í stórbrotnu spjalli.

    1 hr 9 min
  • Með á nótunum #8

    í þessum páskaþætti er farið yfir hvað sveitaballa stemmninguna á Aldrei fór ég suður. Óli segir frá sokkaperra sem er að áreita hann ,Alexander Kirchner fatahönnuð og Erp Evindason. Club mate málið er leiðrétt. Hugleikur og Hú málið og svo varð Óli fyrir apríl gabbi svo fátt eitt sé nefnt. ​

    1 hr 3 min
  • Bíó Tvíó #71 – Undir trénu

    Andrea og Steindór óska landsmönnum öllum gleðilegra páska og horfðu í tilefni hátíðarinnar á Undir trénu frá 2017. Fæðardeilur nágrannafjölskyldna í leikstjórn Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, mannsins með langa nafnið. En hvað getur maður gert við ís og búðing inni á klósetti? Af hverju skipti Andrea um tannlækni? Og er Undir trénu byggð á klassískum Simpsons þáttum? Allt þetta og húfa í poll í Bíó Tvíó vikunnar!

    16 min
  • Ískisur 40 – Bók 5 – Kaflar 7-8 – Tvíhliða kettir: Narnia De La Grace & Venus

    Ískisur er skemmtiþáttur um bókabálkinn Ísfólkið og internetkisur. Kristín felur skömm sína þegar hún les klámbókmenntir á læknavaktinni. Birna kemur ólæs og fer í þetta ferðalag með hlustendum. Þráðbeinar tengingar fara gjörsamlega framhjá Helgu, því hún er of klár fyrir meðalmennskubrandara stelpnanna. Fór Helga í kirkjukór til að finna sinn Þengil? Af hverju má SíSí ekki bara bíða út í vegkanti eftir vagninum? Af hverju varð Alexander eins og hann varð? Mun Sísí geta snúið honum núna?

    Ískisur — Það vantar allt klám í þessar klámbókmenntir!

    46 min

About Alvarpið

From the publisher's feed

Varplendi raddbandanna