
Sign up to save your podcasts
Or


Ískisur er skemmtiþáttur um bókabálkinn Ísfólkið og internetkisur. Öryggisorð þáttarins er hámarkssársauki. Stelpurnar ræða um raðgreiningar í raðhúsum. Helga montar sig af yfirburða þýskunni sinni og Ískisur missa sífellt fleiri og fleiri hlustendur með hverju orði. Er Alexander Palladín vinur hans Hans eða bara skotinn í honum Hans. Hvort er betra að týna ærunni eða lífinu? Má slötsheima beljur? Hvenær má nota greini á bæjarheitum? Hvenær varð Helga bitur? Af hverju vildi Birna kaupa sér rað-hús? Hver er Hans the loser guy??
Ískisur — Sestu hjá mér góðu sonur, svona spottar þú hórur.
Við fórum vel yfir úrslitin á Óskarnum. Óli sagði frá því þegar hann sá Natalie Portman. Natalie sagði frá þegar hún sá Kate Moss. Söngferill Naomi Campell var rifjaður upp. Málefni líðandi og liðinnar stundar voru rædd. Sem sagt stútfullur þáttur og góðgæti. Góða skemmtun.
Fillífjónkan lofsyngur tunglið og Dolly Parton í þessum 21. þætti.
Júlía er nýkomin úr allsherjarbíltúr um Californiu og segir frá misgæðalegum mótelum, höfrungadansi í sólsetrinu og eyðimörkinni þar sem hún gisti í sama herbergi og Bono (ekki á sama tíma). Hún heldur blóðheita ræðu um þjóðgarða sem því miður rataði í þáttinn.
Dolly Parton á innkomu og Lára fær tarotspil dagsins sem er krypplingahvalur, en sá kemur til með að sigla hana í ný ævintýri.
Leiðrétting:
Kurteist fólk er kvikmynd vikunnar í Bíó Tvíó. Andrea og Steindór horfðu á alla leikara Íslands koma fram í mynd um endurreisn sláturhúss á Búðardal. En hvernig tengist andlát Flosa Ólafssonar sambandsslitum Andreu? Er Steindór millennial? Ættum við að lifa meira eins og nýfædd börn? Allt þetta og „difficult, difficult, lemon, difficult“ í Bíó Tvíó vikunnar!
Glápið rekur nefið og litla puttá hátt á loft á meðan það maular á skonskum og ræðir líf elítu elítunnar í The Crown.
Farið var yfir síðustu helgi. Eddan var rædd. Fórum aðeins yfir stöðuna í Usa og N.Kóreu og hlutdeild Dennis Rodman í því öllu saman. Black Panter myndin fékk dóm. Sameiginlegt facebook og afhverju fólki dettur það í hug. Hvaða myndir eru tilnefndar til Óskarsins var rætt svo eitthvað sé nefnt.
Barna- og fjölskyldumyndin um Emil og Skunda, Skýjahöllin frá 1994, var til umfjöllunar í Bíó Tvíó vikunnar. Andrea og Steindór létu tikka í mörg box með hundum, sósíalisma og afa Steindórs. En hvað er málið með reglurnar í knattspyrnu? Hver er besta körfuboltamyndin? Hvernig á maður að láta vita þegar maður strýkur að heiman? Allt þetta og Addams fjölskyldan í Bíó Tvíó vikunnar!
Kaffibarinn síðustu helgi. Sumir ættu að setja tappann í flöskuna. Gaykúltúr á Íslandi. Tinder og Grindr gerð góð skil. Kylie Minogue og Berghain og að lokum var stóra saltmálið rætt.
Óvenjulega venjuleg stelpa er í aðalhlutverki í Bíó Tvíó vikunnar. Andrea og Steindór horfðu á Dís frá 2004 og pældu í tískubylgjum Sirkús/Spúútnik/Gel-tímabilsins. En hvað er súld? Mun takturinn ná okkur öllum? Hvað er málið með fakíra? Allt þetta og Nýja testamenti Gídeonfélagsins í Bíó Tvíó vikunnar!
Með á Nótunum er spjallþáttur í umsjón Natalie Gunnarsdóttur og Óla Hjartar Ólasonar.
Dægurmál eru í forgrunni og Íslenska djamminu eru líka gerð góð skil. Góðir gestir koma í heimsókn og engin málefni eru látin ósnert.
Hispurslaust hjal sem engin má missa af!
Í þessum fyrsta þætti segir Óli okkur frá Kaupmannahafnardvöl sinni. Það var farið yfir sviptingar í Íslenska djammlandslaginu. Line-up á Sónar og Solstice var rætt. Farið var yfir „Ryder“ hjá Bonnie Tyler og Elton John. Ping Pong barinn hennar Susan Sarandon kom við Sögu. Eurovision keppninn var rædd og skúbbuðum þar smá frá innlendu keppninni og margt, margt fleira!
From the publisher's feed