Alvarpið

Alvarpið

Download on the App Store

Alvarpið episodes

  • Bíó Tvíó #59 – Með allt á hreinu – Live á Húrra

    Andrea og Steindór byrjuðu árið live og lifandi á Húrra að tala um Stuðmannamyndina Með allt á hreinu frá 1982. Barátta kynjanna í tónleikaferðalagi um Ísland. En hvað þýðir að vera góður að koma sér á framfæri? Hver böstaði mafíósann James Whitey Bulger? Og geta konur verið ofbeldismenn? Allt þetta og áhorfendur í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 30 min
  • Bíó Tvíó #58 – Hjartasteinn

    Gleðilegt nýtt bíóár! Í þætti vikunnar tala Andrea og Steindór skelþunn um frumraun leikstjórans með langa nafnið, Hjartastein frá 2016, og strengja áramótaheit. En þekkir einhver Axel Axelsson? Hversu stressandi eru sannleikurinn og kontór og A, B, C? Vill einhver matcha við Steindór? Allt þetta og neyslusamfélagið í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 24 min
  • Bíó Tvíó #57 – Albatross

    Golf í Bolungarvík er til umfjöllunar í tilefni jólanna í Bíó Tvíó vikunnar. Andrea og Steindór horfðu á Albatross frá 2015 og komust í hátíðarskap. En hvað finnst þeim um tvær af Star Wars myndunum? Hvernig varð konan til í Fyrstu Mósebók? Og hvernig áttar maður sig á því að maður sé dauður? Allt þetta og Cuban Pete í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 25 min
  • Glápið – S02E06 – Áramótaþáttur

    Glápið gerir lista og tékkar þá tvisvar til að komast að því hverjir voru þægir og hverjir voru óþægir í sjónvarpsheiminum í ár. Við förum yfir hæðir og lægðir, borðum mandarínur og sprengjum flugelda. Bææææ 2017!

    41 min
  • Ískisur 36 – Kaflar 13-14 – A Street Cat Named Bob

    elpurnar fullyrða, með óyggjandi hætti, að Margit Sandemo sé hin eina sanna klikkaða kattarkona. Vísanir í óupptekna þætti bera á góma eins og svo oft áður. Birna býður upp á ráðleggingar fyrir hljóðupptökur milli landshluta. Síminn er opinn núna!

    Helga veit VÍST betur en bókin, því hún hefur horft á Downton Abbey! En hver á alla peningana (lesist: bönsj af monnís)? Hvað dóu margir í bók 4? Fjölskylda Kristínar heldur henni á jörðinni, því hún er góð en ekki slæm stelpa. Þú veist að þú ert ofsa trúa þegar þú neitar að sofa hjá INNAN hjónabands!

    Besta og frumlegasta tilbúningsnafn sögunar er kynnt til leiks! Strákar fara í stríð, stelpur verða B.O.B.U.R. Stelpurnar fræða hlustendur um hvernig skal segja skilið við fíkniefnadjöfulinn með ketti vikunnar.

    Ískisur — standa við gefin loforð (að lokum)

    41 min
  • Bíó Tvíó #56 – Okkar eigin Osló

    Okkar eigin Osló var til áhorfs hjá Andreu og Steindóri í síðasta Bíó Tvíó fyrir jól. Mynd eftir Þorstein Guðmundsson sem er kannski rómantísk gamanmynd, kannski drama. En hver er sagan um Rixdorf? Hvernig verður Star Trek í leikstjórn Quentin Tarantino? Hvernig er skipulagið í orgíum? Allt þetta og Norðmenn í Bíó Tvíó vikunnar!

    14 min
  • Fillifjónkan 19. þáttur – Mandarína

    Fillífjónkan fer í hugarferðalag í jólagjafainnkaup í Smáralind, tekur nokkur spor í flíspeysu og crocs skóm í zúmba fitness í Vetrargarðinum, fylgist með kóklestinni þjóta hjá og fær sér happy hour tilboð á Fridays. Lára tekst á við Færeyjarforómana, segir frá jólaáformum sínum í Miami með Will Smith á fóninum á meðan Júlía hellir kaffi í klofið á sér.

    Tarotspil dagsins:

    Heimurinn

    Spurning:

    Hvaða mánuður er mest óþarfi?
    Hvar fékk Lára gemsanúmerið hjá Ally McBeal?
    Afhverju heita allir stjórnmálafræðingar Svanur?

    Niðurstaðan:

    Jólasveinninn er skeggjaður sveittur gamall kall sem ætti að halda sig á barnum, með hendurnar uppi á borði.

    44 min
  • Bíó Tvíó #55 – Köld slóð

    Ískaldur blaðamanna-þriller er til umfjöllunar í Bíó Tvíó vikunnar. Andrea og Steindór horfðu á mynd Björns Br. Björnssonar frá 2006, Köld slóð. En hvernig gengur Andreu í veikindum? Hvernig kemst maður í jólaskap? Hvernig var DV málið árið 2006? Allt þetta og „spúkí múví“ í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 19 min
  • Fillifjónkan 18. þáttur – Jólaeitthvað

    Í Jólaþætti Fillífjónkunnar opinberar hún djöfla sína og beinagrindurnar hrynja úr fataskápnum.

    Hún tekst illa á við höfnunartilfinningu, grefur holu í grænmetisgarðinum eða dettur í það á barnum og hrópar að hún sé einskis virði þangað til hún drepst í eftirpartý.

    Helga Möller svífur yfir vötnum í LA með tanolíu og hjartasólgleraugu, Lára fer til MIAMI til að athuga hvort jólin þar séu eins og í Will Smith laginu

    Júlía gefur óumbeðið tóndæmi og reynir að sannfæra Láru um að hún sé betri Bono en Bono.

    Niðurstaða þáttarins:

    1 Svörin eru að finna í tarotspilunum
    2 Fillífjónkan spilar ekki Do they know it’s Christmas (sama nautn og sama skömm og að horfa á Woody Allen mynd)
    3 Það er afrek að komast til Selfoss
    5 Verstu örlög sálar eru að verða hurðarhúnn

    1 hr 22 min
  • Bíó Tvíó #54 – Okkar á milli: Í hita og þunga dagsins

    Andrea og Steindór eru dolfallin eftir að hafa horft á Okkar á milli: Í hita og þunga dagsins frá 1982. Kynferðislega klikkaða kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar sem hefur nýlega sætt ásökunum um kynferðislega áreitni. En hvað gerist þegar maður hættir á pillunni? Hvenær eru geimverur hjálplegar? Hvað er málið með Útvarp Matthildi? Allt þetta og María Ellingsen í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 26 min

About Alvarpið

From the publisher's feed

Varplendi raddbandanna