
Sign up to save your podcasts
Or


Glápið skreppur yfir hafið og aftur í tímann til að heimsækja Kanada 19. aldarinnar. Þar hittum við fyrir hana Grace Marks sem situr í fangelsi fyrir morð. Við látum þó hvergi á okkur bilbug finna og setjum niður með henni til að hlusta á sögu hennar.
Stelpurnar ákveða að framleiða hasarútgáfu af myndinni um dr. Kevorkian með Keanu Reeves, Birnu og Helgu í aðalhlutverkum. Þrællinn, Helga, býður sig fram að líknardrápa (já það er sögn) fyrrum, Birnu, og núverandi, Kristínu, kvalara sína. Helga treystir ekki veggjum lengur sökum vináttu sinnar við mafíuforingjann Birnu. Er það ofmetið að nudda salti í sár? Þarf maður að muna nafnið á tengdaforeldrum sínum ? Er Helga George Costanza Ískisa? Geta nýfætt börn sýnt skilning, verið lítillát og gott fólk? Eru öll börn sem fæðast á jólanótt Jesús? Er í lagi að vera vondur svo lengi sem maður er fallegur? Er Jesús-getnaðarpartý gott partý? Hvernig eru fylgjur á bragðið? Hvernig er best að matreiða þær? Er fylgjuát mannát? Má fólk sem er vegan bora í nefið ?
Falskur fugl frá 2013 er til umfjöllunar í fyrsta Bíó Tvíó þætti nýrrar þáttaraðar. Mynd um vandræðaungling byggð á bók Mikaels Torfasonar frá 1997. Andrea og Steindór fara einnig yfir tölfræði frá fyrsta starfsári Bíó Tvíó. En hvaða myndir þurfa að ganga plankann? Hvað er Hunderby? Og fjallar Ferox um phonies? Allt þetta og LIVE þáttur í vændum í Bíó Tvíó vikunnar!
Fillífjónkan er mætt aftur með glænýjan þátt þar sem kynlegar verur fara á stjá.
Bíó Tvíó klárar fyrsta árið af kvikmyndum með kvikmynd um kvikmyndir, Bíódögum frá 1994. Andrea og Steindór fara einnig yfir sögu Kvikmyndastjörnubeltisins, sem tilheyrir fremstu íslensku kvikmyndastjörnu hvers tímabils. En hvað er málið með Zentropa? Hvernig segir maður „I’m sorry“ á íslensku? Hver hefur leikið djöfulinn best? Allt þetta og Huel-kúr í Bíó Tvíó vikunnar!
Fillífjónkan dregur enn eitt tarotspilið og kemst að því að það eru peningar í kortunum. Hún ákveður að stinga þeim undan skatti og eyða svo öllu í tyggjókúluvélina í Smáralind.
Lára heldur upp á sumarið hennar Britt í Stokkhólmi, Júlía fer heim til Sigurjóns Sighvats til að kjósa til alþingis, en mest til að finna Luke Perry og Brendu úr 90210.
Fillifjónkan gerir grein fyrir atkvæði sínu í Alþingiskosningum og ræðir list og stjórnmál frá sjónarhorni eilífðarunglinga.
Lára skálar í heila helgi fyrir Þjóðskrá og drekkur fernuvín með röri uppi í rúmi. Júlía uppgötvar að one-linerarnir í Blade runner séu enn tilgerðarlegri en ljóðin hennar.
Spurningar þáttarins:
Er ástæða til að strauja eitthvað annað en perlur?
Í Bíó Tvíó vikunnar snýr handritshöfundur Foxtrot aftur með Sporlaust frá 1998, þar sem fimm ungmenni þurfa að leysa dularfullt morðmál. Andrea og Steindór reyna að ráða fram úr flóknum söguþræðinum með undirleik dúndrandi 90s tónlistar. En eru Tommi og Jenni eins og skefti og blað? Má kenna fórnarlömbunum um í Mario heiminum? Er hægt að lifa á dufti í heila viku? Allt þetta og Megas í Bíó Tvíó vikunnar!
Þessi þáttur er tileinkaður minningu um Hlemm RVK sem heiðarlegs pullustinkandi strætóstopps.
Lára sem býr enn í Stokkhólmi er nýkomin úr Íslandsreisu þar sem hún keypti sér blóðbergste, kastaði hrísgrjónum í mágkonu sína undir kampavínshimni og fékk sér freyðivín á Hlemmi. Hún lofar að fara brátt í áruhreinsun.
Glápið hættir sér inn í skuggasund hugans ásamt dyggu FBI fulltrúunum í Midnhunter. Margt býr í myrkrinu og við villumst örlítið af leið við að ræða Glee stjörnur, perrakalla og hvort það sé mikilvægur hæfileiki að þekkja raðmorðingja í sjón. En við rötum fljótt til baka og komumst heim alveg heil á húfi. Hjúkket!
Ískisur er skemmtiþáttur um bókabálkinn Ísfólkið og internetkisur. ÍSKISUR eru bæði á facebook og twitter, lítið við!
From the publisher's feed