Alvarpið

Alvarpið

Download on the App Store

Alvarpið episodes

  • Bíó Tvíó #46 – Dalalíf

    Annar þriðjungurinn af Lífsmyndunum er til umfjöllunar í Bíó Tvíó vikunnar. Andrea og Steindór horfðu á Dalalíf og veltu fyrir sér hvernig tíminn fer með gamanmyndir. En hvað finnst Andreu um Crocs? Hvar voru pizzur fundnar upp? Og hvaða villur eru inni á Google.it? Allt þetta og ljóskubrandarar í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 9 min
  • Ískisur 30 – Bók 4 – Kaflar 1-2 – Kisuvín

    Ískisur er skemmtiþáttur um bókabálkinn Ísfólkið og internetkisur. ÍSKISUR eru bæði á facebook og twitter, lítið við!

    Þátturinn byrjar á hressu spjalli um gagnagrunna. Stelpurnar fá nýja von með nýrri bók. Að gefnu tilefni vilja stelpurnar vara hlustendur við að umgangast krypplinga á meðgöngu. En á Yrja einhvern séns? Er í lagi að binda börn við staur ef það er ekki hægt að redda pössun?

    Hver er maðurinn í viðskiptablaðinu? Er Helga góða fólkið? Hvernig fallbeygist Tarald/ur?

    Ískisur — Koma ALLTAF með eigin gagnagrunn!

    50 min
  • Bíó Tvíó #45 – Astrópía

    Skinka fær sér vinnu í lúðabúð í mynd vikunnar í Bíó Tvíó. Andrea og Steindór horfðu á Astrópíu og veltu fyrir sér nördisma í íslensku samfélagi. En hvernig er best að auglýsa á samfélagsmiðlum? Hvað er málið með Stefán Hilmarsson og „Hey, Kanína?“. Hversu illa er Andrea brunnin eftir reynslu sína sem kvenkyns nörd? Allt þetta og Ingvar Þórðarson í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 20 min
  • Fillifjónkan 12. þáttur – Bangsi í Barbílandi

    Í þetta skipti mætir Lára í upptökur með koddafar og kaffi, en Júlía er háttuð upp í rúmi með bjór.

    Lára talar um gildi heimilis og gefur ráðleggingar um hvernig er best að hössla kökusneiðar af saumaklúbbum þó maður eigi að vera farinn að sofa. Hún rifjar upp þegar mamma spilaði ABBA fyrir saumaklúbbinn og pabbi horfði a sömu tonleikamynd oft i röð en var alltaf jafnhissa yfir leynigestinum.

    Júlía er nýflutt til Los Angeles frá New York, er enn í sjokki yfir glamúrlífinu, og segir frá því hvernig það er að vera Bangsi að þykjast vera Barbí.

    Nóttina áður en ferðalag Júlíu hófst svaf hún með Kakkalakkapabba. Hún lysir þvi þegar hún tók lest timbruð frá New York til LA og konunni í vagninum sem söng lofsöng um Jesú í þrumuveðrinu. Hún deilir misheppnuðum tilraunum til að leigja sér herbergi í nýju borginni og þegar hún hitti skeggjaða konu en þorði ekki að biðja hana að spá fyrir sér.

    Lára segir frá ferðalögum sínum um Nykjöping og Júlía spilar lag um vestur Virginíu.

    Fillífjónkan fjallar um lestarferðir þar sem Lára les heimsbókmenntir en Júlía gluggar í US Weekly, tekur selfí, dreifir súkkulaði og skæpar við köttinn sinn. Lára segir frá þegar kynntist Ally McBeal í lest, Júlía gefur Húsvíkingum loforð um að keyra aldrei framhjá án þess að fá sér bjór á Gamla bauk

    Existensíal spurningar þáttarins:

    Ertu í Ken og Barbí eða ertu í Sylvaníó?

    Er fyndið að spyrja einhvern í Chicago “hver var að fá si kakó?”
    Er til eitthvað fallegra orð en “landgangur?”
    Er til eitthvað betra en bland í skrjáfpoka?
    Er slæmur fyrirboði að sjá sinn eigin hala?

    Niðurstaða: New York er notendavæn fyrir Bangsa

    1 hr 13 min
  • Ískisur 29 – Bók 3 – Kaflar 13-14 – The Citizens Advertising Takeover Service (C.A.T.S)

    Ískisur er skemmtiþáttur um bókabálkinn Ísfólkið og internetkisur. ÍSKISUR eru bæði á facebook og twitter, lítið við!

    Í þætti vikunnar komumst við að því að kötturinn hennar Helgu borðar hvítvínsleginn humar (à la 90210 Garðabær!). Kristín og Birna kenna Helgu (og hlustendum) hvernig á að borða Sóma samlokur. En hver er Myrkjahöfðinginn? Hvar er Blokksberg? Hvað er Gula Köngulóin? Hvenær er viðeigandi að hugsa með sér „Hvernig munu börnin okkar líta út?“

    Ískisur — Ef hann er ekki góður við kisuna þína, hvernig getur hann þá mögulega verið góður við „kisuna“ þína?

    0 min
  • Bíó Tvíó #44 – Hrútar

    Ósætti bræðra og riðuveiki eru til umfjöllunar í nýjasta þætti Bíó Tvíó. Andrea og Steindór komust að því að búfjársjúkdómar eru ekkert grín þegar þau horfðu á Hrúta frá 2015. En hvaða íslensku leikarar hafa náð frama á erlendri grundu? Hvernig eru tvíburar klipptir í bíómyndum? Og af hverju heita sveitabæir ekki skemmtilegri nöfnum? Allt þetta og “scrapie” í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 8 min
  • Ískisur 28 – Bók 3 – Kaflar 11-12 – Make Kittens Great Again

    Ískisur er skemmtiþáttur um bókabálkinn Ísfólkið og internetkisur. Birna ofbýður samhlaðverplum sínum, hlustendum en fyrst og fremst sjálfri sér. Búkhljóð eru rædd í þaula ásamt skóvandamálum á vinnustöðum. Í ljós kemur að Helga á ekki vinkonur í barnakór. Hversu slæmt er að láta ljóta miðaldra konu reðurteppa sig? Af hverju þurfa allir að byrja saman? Er Satan bara sjötugur karl í Breiðholtinu? Hversu góður kúskur er Kláus?

    Ískisur — Þarf alltaf að vera pene?

    56 min
  • Glápið S02E02 – The Defenders

    Við höldum beint niðrí eldhús helvítis þar sem við hittum fyrir Verjendurna. Ofurhuginn, Járnhnefinn, Logi Búr og, öhhh… Jessica Jónasar? Þau leggja öll sitt af mörkum í baráttunni gegn illu Höndinni! Glápið leggur sitt af mörkum í baráttunni fyrir íslenskri tungu. Við erum öll hetjur.

    1 hr 55 min
  • Bíó Tvíó #43 – Svartur á leik

    Tímamótahasar í Bíó Tvíó þessa vikuna, búningadramað Svartur á leik frá 2012. Andrea og Steindór ræða einnig fall ríkisstjórnarinnar og kosningaherferð nýnasistanna í Berlín. En hvað er Stóra Fíkniefnamálið? Á Steindór að skera á sig „Glasgow Smile“? Og er hægt að aðskilja listamanninn (Gillzenegger) frá listaverkinu? Allt þetta og ketkrókurinn í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 32 min
  • Ískisur 27 – Bók 3 – Kaflar 9-10 – Domino

    Ískisur er skemmtiþáttur um bókabálkinn Ísfólkið og internetkisur. Í þætti vikunnar gera stelpurnar upp stóra sjampó veðmálið. Helga segir endalaust langa sögu um tekílapartýið sem aldrei varð.Kristín mun undirbúa hlustendur fyrir fríið sem var í síðustu viku. En hvað gerðist fyrir týnda kaflann? Er alveg eins að eiga kött og barn? Hver drap Láren(íu)s Bereníus? Er líf Lífar eins og líf Helgu? Hvort er verra að vera hrútskýrð eða tekin af málfræðilöggu? Hversu margir eru nokkrir? Hætta menn að elska konur þegar hárið á þeim verður líflaust? Er í lagi að banga uppeldisbræður? Hvort er stærra stóra stangarmálið eða stóra heimsóknarmálið?

    Ískisur — SALTIÐ ER BÚIÐ!

    47 min

About Alvarpið

From the publisher's feed

Varplendi raddbandanna