Alvarpið

Alvarpið

Download on the App Store

Alvarpið episodes

  • Bíó Tvíó #39 – Kristnihald undir Jökli

    Laxness þessa vikuna í Bíó Tvíó þar sem Andrea og Steindór horfa á Kristnihald undir Jökli. Kvikmynd Guðnýjar Halldórsdóttur frá 1989 um endurlífganir, náttúrutrú og töfraraunveruleika. En hvernig er best að fróa sér? Eru allar gervigreindir kvenkyns? Hvað er „Kínverska herbergið“? Allt þetta og SELUR í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 28 min
  • Ískisur 24 – Bók 3 – Kaflar 3-4 – PPAP Cat Remix

    Ískisur er skemmtiþáttur um bókabálkinn Ísfólkið og internetkisur.

    Þema þáttarins (eins og allra Ískisu þátta) er Birna og Kristín hlæja en Helga grætur. Hlaðverplarnir ræða „glæstan“ kórferil Helgu. Kristín fær sér hálfan bjór og fer yfir öll velsæmismörk. Sunna mætir í kynlífssvall og leitar að nornum. Mun líf Lífar enda í ástlausu sambandi? Er hægt að koma seint í brúðkaup ef þér var aldrei boðið? Og hvenær munu stelpunar gefa út sína eigin boli?

    Ískisur — Vinsamlegast ekki lögsækja okkur!

    39 min
  • Fillifjónkan 7. þáttur – Partýþáttur Fillífjónkunnar

    Júlía á 30 ára afmæli í New york. Gestirnir eru að tínast inn í íbúðina og vodkabollan er að mallast á stofuborðinu. Lára hringir frá Stokkhólmi, leggur henni lífsreglurnar (það er ekkert til sem heitir of mikið gvakamóle, eigi skal gráta Björn bónda heldur grilla melónur)

    Júlía segir frá því þegar hún fór á fyrsta tekílafylleríið þegar hún var 16 ára og 40 kíló. Lára gefur Júlíu afmælisgjöf í beinni og vel valin þynnkuráð í anda Fillífjónkunnar áður en partýið hefst.
    Leikkonan Salóme R Gunnarsdóttir er gestur þáttarins og Britney Spears kemur við sögu.

    1 hr 2 min
  • Bíó Tvíó #38 – Webcam

    Kvikmynd í boði klámkynslóðarinnar þessa vikuna í Bíó Tvíó, indímyndin Webcam frá 2015. Andrea og Steindór taka þáttinn því miður ekki upp í gegnum vefmyndavél, en mörg samfélagsleg mál eru tekin til umræðu. En hvað er í gangi á Hofsósi? Er Ísland ógeðslegt þjóðfélag? Ætti Steindór að syngja meira í Bíó Tvíó? Allt þetta og „hero’s journey“ í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 17 min
  • Ískisur 23 – Bók 3 – Kaflar 1-2 – Nærbuxnakisar

    Ískisur er skemmtiþáttur um bókmenntir og dýralíf. Vinkonurnar Birna, Helga og Kristín ræða vikulega um tvo kafla úr erótíska og sýrða bókabálknum Ísfólkið. Í lok hvers þáttar er rædd Net-kisa vikunnar.

    Loksins… það sem stelpurnar hafa beðið eftir bók 3, Hyldýpið! Í þætti vikunnar komumst við að því að Kristín var einu sinni harður unglingur. Helga reiknar bara sjálf í huganum. Hversu erfitt er að halda í sér í fimm ár? Hversu oft þarf að bjarga Sunnu frá sjálfum sér? Hvað þá Helgu? Er nokkuð svo slæmt að drepa tvo á fimm árum? Eru ánamaðkar með tungur? Hvernig skal hátta birgðastjórnun Voodoo dúkka? Er hægt að banga í bát þegar allir eru sjóveikir? En stærsta spurning er mun Kristín fá sér nýjan hringitón?

    Ískisur — Viltu klappa kisunni minni?

    46 min
  • Fillifjónkan 6. þáttur – Jesú býr í Háteigskirkju mamma

    Lára er nýkomin úr hjólaferð (eða síldarævintýri) um Álandseyjar þar sem hún komst að því að Belsebúbb væri líklega áll. Júlía segir frá því þegar hún tók þátt í karókí á Prikinu og var vísað af sviðinu. Þær rifja upp þegar Lára var eina manneskjan sem keypti miða á Elton John í Laugardalshöll í forsölu. Júlía rifjar upp Biblíusögur og segir frá því þegar hún fór fimm ára í sunnudagaskólann og hvað það var gaman þegar Jesú mætti með gítar í miðri messu og tók lagið með krökkunum.

    1 hr 13 min
  • Bíó Tvíó #37 – Ingaló

    Fílamaðurinn og Fílapensillinn, Andrea og Steindór, fjalla um kvikmyndina Ingaló frá 1992 í Bíó Tvíó vikunnar. Mynd um verkalýðsátök og complexaða kvenpersónu í Krabbafirði. En hvenær munum við hrifsa framleiðslutækin? Hefði Leo getað lifað af í Titanic? Fékk Oscar Schindler gjarnan utan um ‘ann? Allt þetta og Lebensraum í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 18 min
  • Ískisur 22 – Bók 2 – Kafli 13-Samantekt: Mr. Bigglesworth Blofeldsson

    Tilkynning: Ískisur vilja biðjast fyrirfram afsökunar á hversu mikil málfræði og leiðrönging er rædd í þættinum.

    Þáttur vikunnar byrjar bókstaflega með trylltum dansi. Mamma Helgu eignast ömmubarn. Páfagaukur Kristínar fer á kostum. Kristín heldur að það sé alltaf riðið. Helga kynnir stelpunum fyrir tímamótaverkunum Killer in the Park (2012) og Teeth (2007). En hver er að hugsa um tvíburana? Hvað þarf að líða langur tími eftir manndráp til að fá teljast gott fólk? Hversu mikið getur maður fitnað á 9 dögum? Er mannúðlegt að raka ketti? Hani, krummi, hundur, GRÍN!

    ÍSKISUR — Fyrir fólkið í sveitinni!

    0 min
  • Fillifjónkan 5. þáttur – Vatnsmelónubrízer

    Júlía er byrjuð að passa hund með klessuandlit sem hrldur að hann sé köttur. Hún segir frá leikurunum sem hún fékk til að leika í stuttmyndinni sinni og þegar hún var valin til að leika níræðan kall í menntaskólaleikriti, árið þegar allir vissu að það var valið eftir útliti.

    Lára skírir tómataplöntuna sína í höfuðið á bíómynd júlíu og þær ræða nýja lavalampa Júlíu og hvað það var stórt skref niður á við að hætta að drekka brízer.
    Lára segir okkir frá þjóðlegri reynslu þegar hún komst til konu í Kaupmannahöfn.

    Ekki er ráðlegt að hlusta á þáttinn án þess að vera með bleikan varalit.

    1 hr 12 min
  • Bíó Tvíó #36 – Reykjavík Guesthouse: Rent a Bike

    Hilmir Snær er einmana og firrtur eigandi gistiheimilis í Reykjavík Guesthouse: Rent a Bike frá 2002. Andrea og Steindór reyndu að átta sig á því hvort myndin sé hryllingsmynd eða ekki. En á maður að ráða manneskju til að þrífa hjá sér? Hvernig var stemmningin á skemmtistaðnum Jacobsen? Hvaða kjaftæði var í gangi í Landakotsskóla áður fyrr? Allt þetta og dogme 95 í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 20 min

About Alvarpið

From the publisher's feed

Varplendi raddbandanna