Alvarpið

Alvarpið

Download on the App Store

Alvarpið episodes

  • Fillifjónkan 2. þáttur – Kuml

    Í öðrum þætti Fillifjónkunnar er meðal annars fjallað um:

    Kúlkeppnina á milli rauðvíns og hvítvíns: „er sivilíserað eða sveitt að eiga rauðvínsbelju?“

    Þegar Júlía hóf og lauk söngferli sínum í söngkeppni MR.
    Velt er upp spurningunni: „hvað er afturbeygð sögn?“
    Komist er að þeirri niðurstöðu að sum hverfi í Reykjavík eru í rauninni kuml.

    Lög eru leikin fyrir hlustendur og má finna þau öll á playlista Fillifjónkunnar á Spotify.

    1 hr 11 min
  • Popp og fólk 13: Helga og Wonder Woman

    Gyðjan Díana er nú til umfjöllunar í þættinum.

    Dr. Helga og Melkorka fara í bíó á Wonder Woman, borða óteljandi lúkur af poppi og koma alsælar út. Fyrstu fimmtán mínútur myndarinnar eru næg ástæða til að sjá þessa mynd enda fær myndin fimm popppoka einkunn hjá bæði Dr. Helgu og Melkorku. Þeim finnst ástarsagan kannski óspennandi og vonbiðillin ekki nógu góður fyrir gyðjuna og hafa annan maka í huga handa henni… En svo mætti líka bara sleppa ástarhliðarsögum stundum.

    55 min
  • Bíó Tvíó #33 – Kóngavegur

    Andrea og Steindór klára Valdísar Óskarsdóttur katalóginn í Bíó Tvíó þessa vikuna. Kóngavegur með Daniel Brühl í aukahlutverki er til umfjöllunar. En hvað er málið með eiginhandaráritanir? Er improv cult? Hvernig er best að myrða út af fíkniefnaskuld? Allt þetta og SELUR í Bíó Tvíó vikunnar!

    4 min
  • Ískisur 18 – Bók 2 – kaflar 5-6: Cher Man Mjá

    Ískisur er skemmtiþáttur um bókabálkinn Ísfólkið og internetkisur. Ískisur má finna á facebook og twitter!

    Stelpurnar eru í fyrsta sinn sameinaðar í höfuðborg Costco, #90210GBR! Helga upplýsir stelpurnar um kosti Costco vatnsins og stelpurnar komast að því að Tommi í Tommaborgurum er bara venjulegur maður! Stelpurnar ræða jafnframt undarlegar hefðir strangtrúaðra gyðinga. Og viti menn, Kristín hefur loksins rétt fyrir sér!

    Er Kristín undantekningin sem sannar allar reglur Helgu? Hvað getur gerst þegar ljóta Charlotte, gömul hrukkótt barónessa, kasólett Silja og Þengill með ómannlegu axlirnar koma saman í þröngum vagni? Hversu fljótt klárar fólk út á landi Tinder bunkann? Hvernig kom Soffía frænka inn í líf Birnu? Hvernig var fyrsta og eina Tinder deit Birnu? Er Þengill særingarmaðurinn? Mun Helga taka þátt í Toddlers and Tiaras, kitten edition með Cher Man Mjá sinni?

    The ICECATS — a VERY popular podcast in Iceland!

    52 min
  • Fillifjónkan 1. þáttur – Gula rósin

    Júlía og Lára eru Fillifjónkur. Vinkonur í sitthvorri heimsálfunni hringjast á og ræða lífið í stórborginni, spákonur og rottur sem hafa hertekið New York og hvernig Håkon Hellström þerrar tár týndra kvenna í Stokkhólmi sem kunna bara sænsku úr Stellu í Orlofi og eiga ekki brauð. Júlía Margrét er skáld sem lærir kvikmyndahandritagerð í New York, Lára er blómabóndi í þykjustu sjálfsþurftarbúskap og vinnur við að varðveita menningarminjar í Stokkhólmi.

    Þær ræða um Fillífjónkuna og aðra múmínálfa, bíómyndir, myglusveppi í gömlum húsum, kynvitund marglytta og spila brot úr lögum sem hafa bjargað þeim í gegnum erfiðar hindranir sem mæta eilífðarunglingum í stórborgum.

    Í fyrsta þættinum er fjallað um flutninga á milli heimsálfa, gulu rósina sem óx á bleikum rósarunna, bræðurna Hákon og beikon og spiluð brot úr lögum um rigninguna í London og glaðlegt froðurokk um skotárás í bandarískum grunnskóla.

    55 min
  • Skylduáhorf #13 – The Rock

    Í þessum þætti af Skylduáhorfi fær Ragnar til sín leikarann, vísindamanninn og metsöluhöfundinn Ævar Þór Benediktsson sem heldur upp á margar ansi áhugaverðar myndir. Þar á meðal Connery/Cage stórvirkið The Rock, sem Ragnar hefur aldrei séð! Whaaaaaa?!

    Æðislegur þáttur!

    Ekki missa af næsta þætti þar sem þeir félagar ræða Raising Arizona!

    1 hr 6 min
  • Glápið S01E22 – The Handmaid’s Tale

    Glápið ákveður að skreppa í sumarfrí til hins exótíska Gilead. Við pökkum niður sólarvörninni, stuttbuxunum og sandölunum og erum tilbúin til að stökkva beint á ströndina. Nei, bíddu, ha? Hvað meinarðu að við séum föst í feðraveldískri martröð?? NEEEEEIIIIII!!! Blessaður sé ávöxturinn…

    0 min
  • Bíó Tvíó #32 – Borgríki

    Andrea og Steindór fjalla um Borgríki (eða Blóðbönd eða Boðbera) í Bíó Tvíó þessa vikuna. Tarantino-esque spennumynd Ólafs de Fleur frá 2011. En hvað hét fyrirrennari Klóa hjá Kókómjólk? Hver er uppáhalds leikkona Steindórs? Hverjar eru líkurnar á hryðjuverkum á Íslandi? Allt þetta og Andrea fær nóg af The Simpsons í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 17 min
  • Ískisur 17 – Bók 2 – kaflar 3-4: Shironeko aka Coachella Cat

    Stelpurnar hefja þáttinn með að hanna nýjan og meira eggjandi búning fyrir Jólasveininn; klofkneppt skyrta! Einnig ræða þau praktíkina við það að hafa kókaínnögl án þess að taka í nös.

    Helga fær að spreyta á leikhæfileikum sínum þegar hún reynir að mjálma hjálparbeiðni.

    Helga neitar að viðurkenna að hún hafi haft rangt fyrir sér og púllar nettan Galileo Galilei í lokinn. Þó Birna sé móðir sjálf, þá er hún enn reglulega spurð hvort mamma hennar sé ekki betur fær til að taka stórar ákvarðanir, enda vita mömmur alltaf best!

    Stelpurnar ruglast á fjöldamorðingjum og Kristín setur út á Hringadróttinssögu: Eina sem þeir gera er að labba bara. Big deal? Ef það er ekkert pene af hverju að standa þá í þessu?

    En aftur að Silju og co., þá kemur í ljós að Skreytum hús tengir anga sína til Noregs (og aftur í tímann).

    Stelpurnar fullyrða að „Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla“ sé tenging í bláar kvikmyndir. Má þá ekki segja með rentu að Herðubreið sé sexy fjall? Eitt er víst, Charlotte þekkist á ljótunni!

    ÍSKISUR — þar sem þáttastjórnendur láta eins og eggjafullar hænur!

    50 min
  • Skylduáhorf #12 – Ordinary People

    Ragnar er mættur aftur og enn er Gunnar bróðir hans gesturinn… en í þetta sinn horfðu þeir á eina af uppáhaldsmynd Gunnars: Ordinary People.

    Fjarri því að vera venjulegir bræður og fjarri því að vera venjuleg mynd!

    Verið svo reddí fyrir gest næstu viku, en hann setti Ragnari fyrir Cage klassíkina The Rock!

    Njótið!

    1 hr 5 min

About Alvarpið

From the publisher's feed

Varplendi raddbandanna