Alvarpið

Alvarpið

Download on the App Store

Alvarpið episodes

  • Ískisur 21 – Bók 2 – Kaflar 11-12: Afmæliskisur

    Ískisur er skemmtiþáttur um bókabálkinn Ísfólkið og internetkisur. Hlaðverplarnir ræða misheppnaðar upptökur og stjórnsemi Kristínar. Helga reynir að drepa niður alla stemmningu með umræðu um blágresi. Bókin gengur gjörsamlega fram af stelpunum þessa vikuna. Af hverju er verið að tala um hesta!?!? Er forfæring betri en flekun? Hvort er verra að vera 14 ára eða 41 árs? Hversu vitlaus er greyið Kláus? Hvernig forðast læknar forfæringar? Hvort segir maður gif eða gif? Má Birna halda upp á annan í afmæli með kisu vikunnar?

    1 hr
  • Skylduáhorf #16 – Observe and Report

    Sandra Barilli snýr aftur og ætlar leyfa Ragnari að hrútskýra Observe and Report fyrir sér, en þau enda meira og minna á að ræða meyjarhöft, flassara og einkalíf Söndru.

    Ekki fyrir viðkvæma.

    Ekki gleyma svo að horfa á Tvöfalt Líf Veróniku fyrir næsta þátt!

    1 hr 15 min
  • Fillifjónkan 4. þáttur – Unglingaveikin

    Lára þekkir svía sem elska mosa og skilja ekki að það er bannað að synda í Geysi. Júlía rifjar upp ljóðin sem hún skrifaði sem unglingur í Berlín og missti af því þegar vinkonurnar byrjuðu að klípa í rassa. Mæður Láru og Júlíu kynntust þegar þær byrjuðu að klípa í rassa og þær eru með æði fyrir Philip drottningarmanni, en ekki jafnmikið æði og Júlía sem er enn með mannhæðarstórt plagat af Ewan McGregor í unglingaherberginu.

    1 hr 10 min
  • Bíó Tvíó #35 – Á annan veg

    Tveir gaurar vinna vegavinnu í mögulegum töfraraunveruleika í Bíó Tvíó þessa vikuna. Andrea og Steindór horfa á Á annan veg, sem síðar var endurgerð sem Prince Avalanche með Paul Rudd í aðalhlutverki. En er gott að láta putta sig? Vilja allir karlmenn sofa hjá mæðrum sínum? Er best að byrja kvikmyndaferilinn í skatemyndum? Allt þetta og Hollywoodweird í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 12 min
  • Ískisur 20 – Bók 2 – Kaflar 9-10: ISISkisa

    Þátturinn byrjar enn einu sinni á misheppnuðum upphafsstefi og Helga reynir að kenna kóröndun um. Birna pirrar sig á vannotkun orðsins hlaðvarp og í kjölfarið ákveða stelpurnar að innleiða orðið hlaðverpill. En hvar pissaði hefðarfólk í Evrópu? Getur tré visnað af blöðrubólgu? Ætla stelpurnar aldrei að sætta sig við að þær vita ekkert um virkni mannslíkamans? Eru vellandi vessar

    kynæsandi? Má þátturinn heita Isiskisa? Hvernig þekkir maður norn? Einnig komumst við að því að sonur Kristínar er ekkert svo slæmur. ÍSÍSKISUR — með FULLT af viðbættum sykri!

    48 min
  • Fillifjónkan 3. þáttur – Hungrað hjarta

    Í þriðja þætti Fillífjónkunnar er rætt um vessa og vitleysu og hungruðu hjörtun sem draga konur heimshorna á milli.

    Júlía kallar Sigmund Davíð forsetann og talar um það hvernig vinsælasta stelpan á leikskólanum birtist manni reglulega á lífsleiðinni í ýmsum myndum.Lára segir okkur frá því hvernig hún vann Twin Peaks búningakeppni þegar hún mætti sem Cherry Pie en allir hinir voru Lara Flynn Boyle.
    Velt er upp spurningunum: er Ferstiklan enn til? Er pulsa í Vegasjoppu einsog Beatrís í Paradís fyrir Dante?
    Niðurstaða þáttarins: að synda nakinn með marglyttu er að snerta guð.
    Bruce Springsteen kemur við sögu.

    1 hr 11 min
  • Skylduáhorf #15 – Bring It On

    Nýjasti stórvinur Alvarpsins, spunaleikkonan og flippkisinn Sandra Barilli er gestur Ragnars í dag í Skylduáhorfi.

    Hún setur honum fyrir klappstýru/aldarmótarsnilldina Bring It On með Kirsten Dunst í aðalhlutverki og mikil var skemmtunin.

    Í næsta þætti má svo heyra þau ræða myndina sem Ragnar setti henni fyrir: Observe And Report.

    Njótið!

    1 hr 5 min
  • Bíó Tvíó #34 – Nei er ekkert svar

    Spurning: Voru Andrea og Steindór að horfa á gæðamynd þessa vikuna? Nei er ekkert svar. Kvikmynd eftir engan annan en leikstjóra Foxtrot, Jón Tryggvason. En hvaða nafn er best yfir hlustendur Bíó Tvíó? Hvernig er kvikmyndin Sharknado? Hver var söngkona hljómsveitarinnar Scope? Allt þetta og sýra í Bíó Tvíó vikunnar!

    0 min
  • Skylduáhorf #14 – Raising Arizona

    Þá er komið að seinna spjalli Ragnars við Ævar „ekki-alvöru-vísindamann“ Þór Benediktsson og í þetta sinn ræða þeir um einhverja albestu mynd sem Ragnar þykist hafa séð: Raising Arizona.

    Eða, þeir kannski „ræða“ hana ekki mikið… Meira svona að Ragnar talar og talar og talar um hana.

    Ekki missa svo af næsta þætti þar sem klappstýrusnilldin Bring It On verður tekin fyrir!

    Knús!

    1 hr 11 min
  • Ískisur 19 – Bók 2 – Kaflar 7-8: Binni kisi

    Stelpurnar koma hressar úr duldu sumarfríi og fara um víðan völl eins og venjulega. Við komumst að því að það er lífshættulegt að borða 18 rétta máltíð. Helga óskar Silju dauða og hefur fundið nýja konu handa Þengli. Birna misskilur flest sem gerðist í bókinni þessa vikuna og Helga er í essinu sínu að hrútskýra. Stelpurnar sjá orðatiltækið „Haltu þér á mottunni“ í nýju ljósi og Kristín gengur fram af Helgu. En þurfa ekki allir að eiga vin með bílpróf? Er í lagi að svindla á feitu fólki? Hversu árangursrík uppeldisaðferð er fyrirfram refsing? Hvaða óvenjulegu gleðifréttir fá Silja og Þengill? Hversu illa er Kristín haldin af Binna blætinu sínu? En stærsta spurningin er hversu lengi var Helga að skipuleggja langsóttu tengingu vikunnar?

    ÍSKISUR — því það er svo gaman að hlæja!

    51 min

About Alvarpið

From the publisher's feed

Varplendi raddbandanna