Alvarpið

Alvarpið

Download on the App Store

Alvarpið episodes

  • Bíó Tvíó #31 – Mávahlátur

    Elsta kona heims, Margrét Vilhjálmsdóttir, er dularfull töfradama í Mávahlátri, mynd Ágústs Guðmundssonar frá 2001. Andrea og Steindór tala um myndina, byggða á bók Kristínar Marju Baldursdóttur, en orð þeirra passa ekki við munnhreyfingarnar. En hverjir eru Gargantua og Pantagruel? Hvernig eru hægðir fólks eftir sterkan pipar? Og hvað er „að fá sér harðfisk úr fiskhjallinum“? Allt þetta og söngleikurinn Hárið í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 23 min
  • Ískisur 16 – Bók 2 – kaflar 1-2: Pudge the cat

    Önnur bók Ísfólksins Nornaveiðar byrjar með hvelli! Þar sem Silja verður nelgd við það magnaðasta í lífi sínu og Kristín kennir snilldar uppeldistækni í beinni. En skilja börn bang? Myndi Helga manninn hennar Kristínar? Eru Birna og „Kiddi“ korteri frá sameiginlegu Facebook? Ætlar Þengill að byrla fyrir Silju? Eða mun hann láta sér nægja að lesa dagbókina hennar? Er Grímur viljalaust verkfæri Hönnu? Er Silja sjúklegur safnari alveg einsog Helga? Hver stelpnanna er alræmd fyrir vegvonsku? Af hverju er fáránlegra að nota huliðskikkju en hugsanastýringu? Í þættinum mun Helga opna sig um örlagaríka starfsmannaferð upp Esjuna og stelpurnar koma upp um vandræðalega lélega þekkingu þeirra á mannslíkamanum. En síðast en ekki síst er staðfest að Kristín hafði stórkostlega rangt fyrir sér um afdrif Ísfólksins! ÍSKISUR — því meira er alltaf betra!

    52 min
  • Bíó Tvíó #30 – Skytturnar

    Frumraun Friðriks Þórs, Skytturnar frá 1987, er tekin fyrir í Bíó Tvíó þessa vikuna. 80s karlmennska á hverfanda hveli. En hversu auðvelt er að internaliza hlutskipti nasista? Hversu auðvelt er að húkka far? Er sniðugt að klifra upp á Perluna eða Hallgrímskirkju? Allt þetta og nýr Simpson og Simpdóttir í Bíó Tvíó vikunnar!

    32 min
  • Glápið S01E21 – The Keepers

    Sólin er loks farin að láta sjá sig og Glápið fagnar því með því að snúa gullintönuðum andlitum sínum að myrkustu afkimum kaþólsku kirkjunnar. Hver myrti systur Cathy? Hvort kom á undan presturinn eða pervertinn? Og eru einhverjir meira töff en konur á sjötugsaldri?

    0 min
  • Bíó Tvíó #29 – Hrafninn flýgur

    Spagettívestri Hrafns Gunnlaugssonar, Hrafninn flýgur, er til umfjöllunar í Bíó Tvíó vikunnar. Auk þess kynna Andrea og Steindór til leiks nýjan lið, „Simpson og Simpdóttir“. En er gott að gera lítið úr uppistöndurum? Getur matur verið móralskt góður eða illur? Getur Hrafn Gunnlaugsson talað við hrafna? Allt þetta og Baywatch Nights í Bíó Tvíó vikunnar.

    1 hr 25 min
  • Ískisur 15. kafli – Maru Cat

    Í þættinum fara stelpurnar yfir Álagafjötra í heild sinni. Hvernig á saga Ísfólksins við árið 2017?

    Hver er heimska hænan í hópnum?
    Er Silja kvenskörungur sem beitir klækjabrögðum eða vitlaus stelpukjáni?
    Helga spyr sig hvort fólk hafi sofið nakið í fornöld árið 1980. Hver er sannspá um afdrif Silju og Þengils í næstu bók Ísfólksins Nornaveiðum?
    Hvernig bókaseríu hefði Perneski kisinn hennar Birnu, Hera, skrifað… ef kettir væru skrifandi?! ÍSKISUR — þar sem þríhyrningslaga menn fá uppreist æru.

    0 min
  • Skylduáhorf #11 – Blade Runner og Zero Charisma

    Ragnar leitar ekki langt yfir skammt til að ræða næstu kvikmyndir. Bróðir hans Gunnar er mættur til leiks að ræða framtíðarklassíkina Blade Runner og framtíðar-klassíkina (get it?) Zero Charisma.

    Gunnar vildi horfa á sci-fi, en Ragnar þóttist vita betur. Hver hefur rétt fyrir sér?!

    Bræður munu berj… er… ræða kvikmyndir!

    1 hr 24 min
  • Bíó Tvíó #28 – Mýrin

    Baltasar-katalógurinn er nær tæmdur, þar sem Andrea og Steindór horfðu á Mýrina frá 2006. Erlendur rannsóknarlögreglumaður stekkur af síðum Arnaldar Indriðasonar og inn í gráan raunveruleika íslenskra kvikmynda. En hvað er málið með gaurahópa á Íslandi? Hversu sturlað er það að skrifa bók? Starfa rottu-wranglerar í íslenskri kvikmyndagerð? Og hvaða ótrúlegu uppljóstrun kemur Andrea með í lok þáttar? Allt þetta og meira í Bíó Tvíó vikunnar!

    29 min
  • Ískisur 14. kafli – Buddha (Fat) Cat

    Nú er komið að lokakafla Álagafjötra þar sem Þengill og Silja lifa 101 hipstera lífi í dal Ísfólksins. Helgu sárnar vegna þess að Kristín leyfir henni ekki að vera með í „rómantískum“ jólahefðum. Hvernig opnar maður faðm sinn allan? Er skautbúningurinn kynþokkafyllsti þjóðbúningurinn? Hversu róandi er að grípa í andlit maka síns á nóttunni? Stelpurnar komast að því að fólk giftir sig ýmist til að losna undan erfiðisvinnu vegna erfðafræði eða rúmfræði. Hver er refsing óperulaga kvenna? Eiga allar konur að eiga mynd af sér með lostafullum loppum? Bókinn endar svo á að viðbjóðlegasta manneskja veraldar bjargar lífi Líf Hönnu og Silju. ÍSKISUR — góðar með pressuðu covfefe!

    0 min
  • Skylduáhorf #10 – Casablanca

    Þá er komið að seinni lotunni milli Ragnars og gests hans Steindórs Grétars og í þetta sinn ráðast þeir ekki á garðinn þar sem hann er lægstur.

    Viðfangsefni þáttarins er líklega klassískasta klassíska mynd allra tíma: Casablanca.
    Njótið!

    1 hr 8 min

About Alvarpið

From the publisher's feed

Varplendi raddbandanna