Alvarpið

Alvarpið

Download on the App Store

Alvarpið episodes

  • Glápið S01E20 – Big Little Lies

    Glápið kælir hvítvínið og skellir sér til Cali til ríka fína fólksins sem á þó allt sinn djöful að draga. Konur, karlar og börn rífast, slást og elska hvort annað með misgóðum árangri á meðan Kyrrahafið fylgist með og dæmir. Eins og við.

    0 min
  • Bíó Tvíó #27 – Í faðmi hafsins

    Í woke podcastinu Bíó Tvíó þessa vikuna er fjallað um indie myndina Í faðmi hafsins frá 2001. Töfraraunveruleiki með yfirþyrmandi sjávarþemum. En hvenær sá Steindór fyrst döngulinn á Hilmi Snæ? Ætti að úthluta hverri manneskju kolefniskvóta? Og hver er áhrifamáttur Andreu og Steindórs þegar kemur að því að auglýsa duft? Allt þetta og „hún er selur!“ í Bíó Tvíó vikunnar!

    24 min
  • Popp og fólk 12: Raggi og Alien: Covenant

    í þessum þætti fer Melkorka þáttarstýra á Alien: Covenant og ekki var annað hægt en að taka Ragnar Hansson með, því bæði eru þau miklir Alien aðdáendur. Svo miklir að þegar þau voru hjón skírðu þau aðra dóttur sína Ripley í höfuð aðalpersónu Alien myndanna. Jebb.

    Hlustendur Alvarpsins þekkja líka bíónörda þáttinn Trí ló gík sem þau voru eitt sinn með á stöðinni. Svo nú hittast Trí ló gíkur nördar, ræða myndina og gefa Alien: Covenant mjög svo ólíkar popppoka einkunnir.

    1 hr 2 min
  • Ískisur 13. kafli – Seductive cat is seductive

    Í næstsíðasta kafla Álagafjötra kemur Helga óundirbúin til leiks og í ljós kemur að Birna þarf að taka sig á. Hvenær er viðeigandi að humma meðal manna? Er Helga farin að ímynda sér ketti í daglegu lífi? Kristín móðgast fyrir hönd Þengils. Þengill skammast sín fyrir draslið heima hjá sér. Hversu skítugur var Þengill? Loðnar bringur, hot or not?

    Hver er munurinn á standardi á milli korterí 3, korterí 5 og korterí 7 gæja?
    Er autt rúm betra en illa skipað? Er betra að þegja en að koma með lélega teningu? Mun Helga stofna nýtt hlaðvarp til að ræða tengda hluti Ísfólksins?

    31 min
  • Skylduáhorf #9 – The Hustler

    Steindór Grétar Jónsson er hössler. Ekki þó í algengustu merkingu orðsins í dag… né í gamla daga… né mögulega nokkurn tímann. Kannski er hann bara enginn hössler eftir allt saman. En hann er klassískur maður sem fílar klassískar kvikmyndir. Helst í svarthvítu.

    En þrátt fyrir það hafði Steindór Grétar ALDREI séð kvikmynda The Hustler! Það snilldarverk frá 1961 þar sem Paul Newman leikur poolspilarann „Fast“ Eddie Felson með einstakri prýði og sannaði í eitt sinn fyrir öll að hann var ekki bara enn einn sæti strákurinn í Hollywood.

    Ragnar var mjög hneykslaður á Steindóri, enda The Hustler ein af hans eftirlætis kvikmyndum og algert skylduáhorf… en á móti gat Steindór hneykslast enn meira á Ragnari, sem hafði sjálfur ekki séð þá kvikmynd sem er oftar en ekki talin klassískasta kvikmynd ALLRA tíma!

    Hneyksli!

    Fylgist með æsispennandi maraþon-ballskák milli drengjanna tveggja í nýjasta þætti Skylduáhorfs!

    1 hr 1 min
  • Bíó Tvíó #26 – Land og synir

    Flutningur úr sveit í borg í Bíó Tvíó vikunnar! Andrea og Steindór ræða tímamótamynd í íslenskri kvikmyndasögu, Land og syni, frá 1980 í leikstjórn Ágústs Guðmundssonar. En hvaða leikmaður Golden State Warriors er kyssilegastur? Hvaða rapplög eru best í karókí? Hvernig sögur finnst fullorðnu fólk skemmtilegast að segja? Allt þetta og skráveifur í Bíó Tvíó vikunnar!

    0 min
  • Ískisur 12. kafli – Bonsai Kitten 4 Minecraft

    ÍSKISUR vilja vara við að í þessum kafla bókarinnar verður aðalsögupersónan fyrir kynferðisofbeldi sem rætt er um í þessum þætti.

    12. kafli er bæði hnúskóttur og viðburðarríkur. Silja fer í heimsókn til versta Ísfólksins og sýnir að hún er ekkert lamb að leika við. Helga og Kristín ræða um bjór en fara ítrekað með rangt mál. Birna og Helga eru ekki sammála um hvort hótelrúm eigi að vera reyrt eða laust. En hefurðu séð tólið? Hversu svakaleg er saga Kristínar sem þurfti að mjálma út? Hvernig er hægt að þrýsta sér að einhverjum svo það verði misskilið? Eru 1 + 1 = 3 ? En eitt er víst: Ást er að taka aldrei út á ögurstundu!

    50 min
  • Glápið S01E19 – The Expanse

    Geimurinn: síðustu landamærin, þangað sem við förum, djarflega, sem enginn maður hefur farið áður. Í geimnum heyrir enginn þig öskra út fyrir endimörk alheimsins. Erm…Stjörnustríð. Við gláptum á The Expanse og veltum því fyrir okkur að ef Marsbúar eru menn, af hverju eru þá allir grænir í framan?

    1 hr 20 min
  • Bíó Tvíó #25 – Ófeigur gengur aftur

    Andrea og Steindór fjalla um gamanhrollinn Ófeigur gengur aftur í Bíó Tvíó vikunnar. Nýlátinn Laddi tekur yfir líkama fjölskyldumeðlima til að verja heimili sitt og perrast. En hver vill fá 30 smokka gefins? Eiga stelpur að gefa Jake Gyllenhaal séns? Biður fjallkonan um vægð? Allt þetta og fleira í Bíó Tvíó vikunnar!

    0 min
  • Ískisur 11. kafli – Toki Nantucket aka Wes Andersen kisi

    Í 11. kafla tekur hversdagslegt líf meðal Ísfólksins við Silju með bossasárum og rykugum hornum. Helga vill koma á framfæri að það er til fólk sem vill hana. En mega doktorar vera á Tinder? Hvernig fór „sexting“ fram á 15. öld? Kristín veltir sér enn aftur upp úr innanhúsarkitektúr í bókinni. Hver eru bestu skilyrðin fyrir hugboð? Er fallegt að leyfa vanvitum að vera memm ef þeir eru hlekkjaðir? Ritskoðar Birna söguna um hvernig hún hitti manninn sinn? Helga veinar aftur — í þetta skipti lágt og unaðslega. ÍSKISUR — og síðan hófust morðin!

    50 min

About Alvarpið

From the publisher's feed

Varplendi raddbandanna