Árið er

Árið er

By RÚVMusic
Download on the App Store

Árið er episodes

  • Árið er 2004 - fyrri hluti
    Mugison semur lag ársins með vini sínum Pétri Ben, Trabant treður upp á Bessastöðum og Eivör vinnur með Vestur-íslenska tónlistarmanninum Bill Bourne.
    Björk syngur á setningarathöfn Ólympíuleikanna, Nýdönsk og Sinfóníuhljómsveitin rugla saman reytum og Jón Ólafs syngur um sunnudagsmorgun. Brimkló segir smásögur, Hljómar rífa húmorinn upp og erlendir tónlistarmenn heimsækja landann í tugatali til tónleikahalds.
    Þórunn Antonía fer í brúðkaupsferð til Bretlands en Quarashi kastar hvíta handklæðinu í hringinn og Jan Mayen dásamar Nick Cave. Á móti sól breiðir yfir 12 íslensk topplög og Sigurmolarnir syngja sigurlagið en Jagúar heldur áfram að fönka landann upp.
    Hljómsveitin Tenderfoot vekur bjartar vonir en hættir störfum fljótlega eftir hafa neyðst til að breyta um nafn. Ske er í góðum fíling, Jónsi fer í Eurovision og Mannakorn segir að Satan sé til.
    Árið er 2004
    Meðal viðmælenda í fyrri hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2004 eru: Örn Elías Guðmundsson, Samúel Jón Samúelsson, Börkur Birgisson, Daði Birgisson, Gunnar Þórðarson, Björn Stefánsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Ragnar Kjartansson, Þorvaldur Gröndal, Magni Ásgeirsson, Samúel Örn Erlingsson, Jón Ólafsson, Guðmundur Steingrímsson, Frank Hall, Sölvi Blöndal, Vilhelm Anton Jónsson, Þórunn Antonía Magnúsdóttir, Jón Björn Ríkharðsson og Ágúst Bogason.
    1 min
  • Árið er 2003 - seinni hluti
    Hljómar snúa aftur og gefa út fyrstu plötu sína í 29 ár, Maus og Botnleðja tala tungum og Eberg kveður sér hljóðs.
    Mínus umpólast og gefur út plötuna Halldór Laxness og Krummi syngur með Björgvini föður sínum á dúettaplötu en Sálin frumsýnir söngleik.
    Barði í Bang Gang er sinnar eigin gæfu smiður og Eivör slær í gegn hjá frændum sínum en Margrét Eir bíður andartak.
    Idol-æði skolar á land frá Ameríku. KK og Maggi fara í ferðalag og Ríó tríó kemur úr felum en Jónsi Í svörtum fötum hefur ekkert að fela.
    Trabant slær í gegn á Airwaves hátíðinni og Funerals gera kántrýplötu uppi í sveit en Kimono segir sögur af japönskum lögreglufulltrúa.
    Skytturnar rappa um lognið á undan storminum, Dys gefur út veiðileyfi á ríkisstjórnir en Land og synir eru á fjórum fótum í óðali feðranna.
    Árið er 2003
    Seinni hluti tuttugasta og fyrsta þáttarins í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum.
    Meðal viðmælenda í seinni hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2003 eru: Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlíusson, Eggert Gíslason, Eivör Pálsdóttir, Margrét Eir Hjartardóttir, Hrafnkell Pálmarsson, Jón Jósep Snæbjörnsson, Sölvi Blöndal, Barði Jóhannsson, Lárus Jóhannesson, Anna Hildur Hildibrandsdóttir, Einar Kristjánsson, Ragnar Kjartansson, Þorvaldur Gröndal, Björn Stefánsson, Þorkell Máni Pétursson, Björgvin Halldórsson, Guðmundur Jónsson, Þór Freysson, Heiðar Örn Kristjánsson, Einar Tönsberg og Hreimur Örn Heimisson.
    1 min
  • Árið er 2003 - fyrri hluti
    Birgitta Haukdal segir okkur allt í Söngvakeppni Sjónvarpsins og opnar hjarta sitt í Eurovision en Botnleðja syngur Júróvísu og Dr. Gunni býður upp á snakk fyrir pakk.
    Emilíana Torrini semur smell fyrir Kylie sem fer beint á toppinn í Bretlandi en Ragnheiður Gröndal syngur Ást og trónir á toppnum á tónlist.is næstu þrjú árin.
    200.000 Naglbítar skipta um trommara, gefa út sína þriðju plötu og biðja fólk vinsamlega um að láta sig vera en Skífan vinnur baráttuna um Brain Police.
    Bubbi syngur um þúsund kossa nótt, Guðjón Rúdólf kemur frá Danmörku og slær í gegn með húfuna sína en Papar halda til hafs á ný.
    Hera tekur upp plötu á íslensku, alveg óvart. Lára Rúnars vekur athygli á uppskeruhátíð KKÍ en Hvannadalsbræður eru gjörsamlega út úr kú.
    Á móti sól sendir frá sér plötuna Fiðrildi, Dáðadrengir sigra í Músíktilraunum og hinir ástsælu Spaðar fá Obb bobb bobb lánað hjá Guðna Ágústssyni
    Unglingahljómsveitin Nilfisk spilar í Höllinni í boði Foo Fighters, Dr. Spock syngur klám en Leoncie um ást á pöbbnum.
    Árið er 2003
    Fyrri hluti tuttugasta og fyrsta þáttarins í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum.
    Meðal viðmælenda í fyrri hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2003 eru: Vilhelm Anton Jónsson, Bubbi Morthens, Hera Hjartardóttir, Lára Rúnarsdóttir, Emilíana Torrini, Magni Ásgeirsson, Guðmundur Andri Thorsson, Magnús Haraldsson, Ragnheiður Gröndal, Haraldur Gíslason, Birgitta Haukdal, Gunnar Lárus Hjálmarsson, Jón Björn Ríkharðsson, Dave Grohl, Víðir Björnsson og Ólafur Ragnar Grímsson.
    1 min
  • Árið er 2002 - seinni hluti
    Quarashi treður upp á tónleikum á hverjum degi og Jinx heillar amerísk ungmenni.
    Bubbi vaknar við Gróttu með sól að morgni, Hera Hjartardóttir flýgur yfir hálfan hnöttinn og stelur senunni en Dikta borðar yfir sig af bleikum sjeik. Apparat Organ Quartett spilar rokk og ról í steríó, Emilíana Torrini leggur Gollum orð í munn og Santiago vekur bjartar vonir.
    Búdrýgindi bera sigur úr býtum í Músíktilraunum, Einar Tönsberg útskrifast með Lorien í Englandi og Skárren ekkert breytist í SKE og syngur á japönsku. Í svörtum fötum fer sigurför um landið og spilar og syngur dag sem dimma nátt en Sign leitar að rauðu ljósi.
    Rappbylgja skellur á landinu. Bæjarins bestu halda sig í klúbbnum, Móri segist vera atvinnukrimmi og XXX Rottweilerhundar skulda. Múm föndrar grasi vaxin göng, KK syngur í paradís og englar himins grétu í dag en ástin vex á trjánum hjá Valgeiri Guðjóns.
    Árið er 2002
    Seinni hluti tuttugasta þáttarins í útvarpsþáttaröðinni Árið er....
    Meðal viðmælenda í þættinum þar sem haldið verður áfram að fjalla um íslenska tónlistarárið 2002, eru: Sölvi Blöndal, Emilíana Torrini, Bubbi Morthens, Hera Hjartardóttir, Haukur Heiðar Hauksson, Franz Gunnarsson, Ágúst Bent Sigbertsson, Erpur Eyvindarson, Kjartan Kjartansson, Einar Örn Jónsson, Guðmundur Steingrímsson, Frank Hall og Kristján Kristjánsson.
    Umsjónarmaður er Gunnlaugur Jónsson og honum til aðstoðar eru Ásgeir Eyþórsson, Jónatan Garðarsson og Sigríður Thorlacius.
    1 min
  • Árið er 2002 - fyrri hluti
    Sigur Rós syngur á vonlensku og Mugison fæðist sem söngvari á karaókíbar í Malasíu. Írafársrússíbaninn þýtur áfram, Sálin treður upp með Melabandinu og Urður gengur í Gus Gus.
    Vandræðaunglingurinn Þórunn Antónía lýkur þriggja ára tónlistarnámi hjá föður sínum, Magnúsi Þór Sigmundssyni. Útrás Leaves fær fljúgandi start, Fídel gefur út plötu og geispar golunni en Land og synir fá Happy Endings.
    Orri Harðar fellir tár, Brain Police finnur Jenna og Buff finnur glerbrot í vaselíninu. Græni ormurinn skríður út úr bílskúr á Skipaskaga, hárin rísa á höfði Ampopdúettsins en það þarf fólk eins og Rúnar Júl. fyrir fólk eins og þig og mig.
    Árið er 2002
    Fyrri hluti tuttugasta þáttarins í útvarpsþáttaröðinni Árið er ....
    Meðal viðmælenda þar sem fyrri hluti íslenska tónlistarársins 2002 er tekið fyrir, eru: Birgitta Haukdal, Vignir Snær Vigfússon, Guðmundur Jónsson, Stefán Hilmarsson, Sigurður Guðmundsson, Guðmundur Kristinn Jónsson, Jón Ólafsson, Örn Elías Guðmundsson, Birgir Hilmarsson, Georg Hólm, Hreimur Örn Heimisson, Magnús Þór Sigmundsson, Þórunn Antónía Magnúsdóttir, Orri Harðarson, Arnar Guðjónsson og Jón Björn Ríkharðsson.
    1 min
  • Árið er 2001
    Svala Björgvins skrifar undir risasamning í Ameríku og Leaves fær samningstilboð frá nokkrum af stærstu nöfnunum í tónlistarbransanum en Land og synir lenda í rússíbanareið sem endar með ósköpum eftir 11. september.
    Björk selur tvær milljónir af Vespertine, Sigur Rós fer umhverfis jörðina á 250 dögum og galdrar fram rímur með Steindóri Andersen á Ströndum.
    XXX Rottweilerhundar gelta hátt og vekja athygli hjá ungmennum landsins en Quarashi og Botnleðja troða upp með Melabandinu í Háskólabíói.
    Magni Ásgeirsson er spenntur Á móti sól, Birta breytist í engil og lendir í næstneðsta sæti á Parken en Egill Ólafs finnur nýjan engil.
    Sálin leitar logandi ljósi að söngleik, Milljónamæringarnir ferðast með Mambólestinni en Herbert Guðmundsson svarar á íslenskri tungu.
    Trabant selur sig á auglýsingamarkaðnum og sér ekki eftir neinu en Ham snýr aftur á tónleikum hjá Rammstein og Bubbi fordæmir kynþáttahatur.
    Halim breytist í Sign, Páll Óskar og Monika sofna ekki í nótt, Fabúla skilur eftir kossafar á ilinni og lífið er yndislegt.
    Árið er 2001
    Nítjándi þátturinn í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum.
    Meðal viðmælenda í nítjánda þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 2001 verður tekið fyrir, eru Magni Ásgeirsson, Einar Bárðarson, Birgitta Haukdal, Björk Guðmundsdóttir, Hreimur Örn Heimisson, Margrét Kristín Sigurðardóttir, Guðmundur Kristinn Jónsson, Svala Björgvinsdóttir, Björgvin Halldórsson, Viðar Hákonarson, Þorvaldur Gröndal, Erpur Eyvindarson, Ágúst Bent Sigbertsson, Einar Örn Jónsson, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, Haraldur Gíslason, Óttar Proppé, Guðmundur Jónsson, Stefán Hilmarsson, Páll Óskar Hjálmtýsson, Ragnar Sólberg, Egill Rafnsson, Sölvi Blöndal og Höskuldur Ólafsson.
    1 min
  • Árið er 2000
    Björk er tilnefnd til Óskarsverðlauna, Sálin hyggur á söngleik og ný íslensk barnastjarna skýst upp á stjörnuhimininn.
    Útrás Sigur Rósar fær fljúgandi start, Sóldögg upplifir kraftaverk, Utangarðsmenn snúa aftur og 200.000 naglbítar troða upp á eftirminnilegum tónleikum á Reykjavík Music Festival.
    Botnleðja lendir í slæmum málum, bransinn reynir að breyta Bellatrix í poppsveit, Múm fer í mál og Mugison er lúði.
    110 Rottweilerhundar verða fyrsta sigursveit Músíktilrauna sem spilar ekki á gítar, Brain Police spilar eyðimerkurrokk en Mínus aðhyllist hávaða og spilar harðkjarnarokk.
    Fálkar senda ástarkveðju frá Keflavík, Ampop stundar svefnherbergisgrúsk en lífið bíður ekki eftir Selmu Björns.
    Elton John spilar og syngur á ísköldum Laugardalsvelli. Það er öllu hlýrra á tónleikum Suede í Laugardalshöll en Paul McCartney dúkkar upp á Café Romance.
    Árið er 2000
    Átjándi þátturinn í útvarpsþáttaröðinni Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum.
    Meðal viðmælenda í átjánda þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 2000 verður tekið fyrir, eru Stefán Hilmarsson, Guðmundur Jónsson, Birgitta Haukdal, Kjartan Sveinsson, Georg Holm, Magni Ásgeirsson, Gísli Marteinn Baldursson, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Bergsveinn Arilíusson, Elíza Newman Geirsdóttir, Steinar Berg Ísleifsson, Vilhelm Anton Jónsson, Haraldur Gíslason, Heiðar Örn Kristjánsson, Örn Elías Guðmundsson, Gunnar Örn Tynes, Örvar Þóreyjarson Smárason, Sigurjón Birgir Sigurðsson (Sjón), Guðmundur Kristinn Jónsson, Birgir Hilmarsson, Einar Ágúst Víðisson, Gunnar Ólason, Herbert Viðarsson, Ágúst Bent, Erpur Eyvindarsson, Björn Stefánsson og Þorkell Máni Pétursson.
    1 min
  • Árið er 1999
    Ágætis byrjun hjá Sigur Rós vekur áhuga tónlistaráhugamanna út um allan heim. Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves verður til og Quarashi heillar ameríska bransakarla.
    Emilíana Torrini gerir plötu fyrir erlendan markað, Bellatrix og Coldplay túra saman um Bretaldseyjar en Selma Björnsdóttir er All Out Of Luck og lendir í öðru sæti í Eurovision.
    Hljómsveitn Maus fellur að eyrum hlustenda, KK og Magnús eru kóngar í einn dag og Sálin hans Jóns míns snýr aftur, órafmögnuð.
    Ensími vinnur með Steve Albini, Gus Gus liðum fer fækkandi eftir útkomu plötu númer tvö en Páll Óskar er Deep Inside og í djúpum skít fjárhagslega.
    Skítamórall rúntar um á Rammsteinrútunni og Mínus rústar Músíktilraunum.
    Árið er 1999
    Sautjándi þátturinn í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum.
    Meðal viðmælenda í sautjánda þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 1999 verður tekið fyrir, eru Emilíana Torrini, Birgir Örn Steinarsson, Elíza Newman, Haraldur Gíslason, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Selma Björnsdóttir, Hreimur Örn Heimisson, Friðþjófur Sigurðsson, Árni Matthíasson, Kristinn Sæmundsson, Guðmundur Jónsson, Stefán Hilmarsson, Hrafn Thoroddsen, Franz Gunnarsson, Arnþór Örlygsson, Páll Óskar Hjálmtýsson, Baldur Stefánsson, Sölvi Blöndal, Einar Ágúst Víðisson, Gunnar Ólason, Herbert Viðarsson, Björn Stefánsson og Þorkell Máni Pétursson.
    1 min
  • Árið er 1998
    Botnleðja breytist úr tríói í kvartett, Kolrassa breytist í Bellatrix en 200.000 naglbítar brjóta það sem brotnar.
    Ensími tekur upp sína fyrstu plötu án þess að hafa troðið upp á tónleikum og ofursmellurinn Farin með Skítamóral slær í gegn á mettíma.
    Alda Björk nær 7. sæti breska smáskífulistans og upplifir í kjölfarið bæði góða tíma og slæma en Damon Albarn spólar upp veggi Stúdíó Sýrlands í stuttbuxum og takkaskóm.
    Súkkatdúettinn dreymir um straum, Land og syni dreymir um Terlín en heimþráin endar útrásardrauma Dead Sea Apple. Popp í Reykjavík fer á hvíta tjaldið og Tvíhöfði syngur Útlenska lagið.
    Íslenski hiphop akurinn vex og dafnar en Ný dönsk spókar sig í Blómarósahafi í Húsmæðragarðinum. Beggi í Sóldögg er Villtur, Barði í Bang Gang er So Alone en Sálin er orginal.
    Árið er 1998
    1 min
  • Árið er 1997
    Maus ímeilar þig en Helgi Björns skrifar þér ljóð á kampavínstappa. Björk gerir Homogenic og hreppir tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs en Páll Óskar dansar sinn hinsta dans.
    Botnleðja hitar upp fyrir Blur og skálar við Robbie Fowler, Gus Gus treður upp víðs vegar um heiminn en Unun sér rautt í útrásarmeiki. Dr. Gunni gerir barnaplötu og slær í gegn með Prumpufólkinu með hjálp frá Jóni Gnarr og fleiri góðum vinum.
    Quarashi sparkar ellipoppurum út í hafsauga en Skítamórall meikar það á sveitaballarúntinum og Fjölnir elskar Mel B.
    Liðsmenn Lands og sona eru Vöðvastæltir en stóra spurningin er: Trúir Bubbi Morthens á engla?
    Árið er 1997
    1 min

About Árið er

From the publisher's feed

Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

More shows like Árið er

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Samstöðin by Samstöðin

Samstöðin

1 Listeners