Árið er

Árið er

By RÚVMusic
Download on the App Store

Árið er episodes

  • Lonnie Johnson fyrsti þáttur
    Fyrsti þáttur um gítarleikarann Lonnie Johnson, sem varfrá New Orleans. Hann lærði að spila á fiðlu, en tók sjáflur upp á því að læra á gítar, banjo, mandolin, paníó, orgel og bassa. Hann starfaði með strengjasveit föður síns frá 14 ára aldri og síðan tóku aðrar hljómsveitir við. Hann var í hópi tónlistarmanna sem sendir voru á vegum Bandaríkjastjórnar til að skemmta bandarískum hermönnum á vígvöllum Evrópu undir lok fyrri heimsstyrjaldarinnar. Þegar hann snéri heim til New Orleans 1919 komst hann að því að foreldrar hans og 11 systkini höfðu látist af völdum spænsku veikinnar 1918. Aðeins einn bróðir hans komst að fyrir utan hann sjálfan og héldu þeir nánu sambandi næstu árin.
    0 min
  • Little Brother Montgomery 3.þáttur
    Þriðji þáttur um Little Brother Montgomery. Fjallað um seinni hluta ævi hans eftir að hann kom til Chicago. Sagt er frá því með hvaða fólki hann starfaði á þessum árum og hvaða áhrif hann hafði á þróun þeirrar borgarblús tónlistar sem varð til í þéttbýlinu og mannmergðinni í Chicago, þar sem nokkur hundruð þúsund blökkumanna frá Suðurríkjunum settust að árunum milli 1940 og 1970. Umsjón: Jónatan Garðarsson
    0 min
  • Skip James þriðji þáttur
    Þriðji þáttur um blúsarann Skip James. Fjallað um árin þegar hann stundaði trúboð, sem og þegar hann varð að vinna fyrir sér við skógarhögg og sem verkstjóri á ökrunum í Mississippi. Meginhlutinn fjallar þó um árin milli 1964-1969, sem voru síðustu ár hans. Þá naut hann nokkurrar frægðar, en þar sem hann var að berjast við krabbamein og gat ekki sinnt tónlistinni sem skyldi var hann bláfátækur fram á síðasta dag. Umsjón: Jónatan Garðarson
    0 min
  • Annar þáttur um blúsarann Skip James.
    Fjallað um árin þegar hann spilaði tónlist á vændishúsum og var sjálfur melludólgur, einnig um tímann sem hann starfaði með Henry Stuckey sem kenndi honum að stilla gítarinn á nýjan hátt. Samningurinn við Paramount útgáfuna og upptökuferði sem hann fór til Grafton kemur við sögu sem og árin þegar hann snrri bakinu við blúsnum og gerðist predikari og stjórnandi gospelsönghóps. Umsjón: Jónatan Garðarsson
    0 min
  • Fyrsti þáttur um blúsarann Skip James
    Fyrsti þáttur af þrem um blúsarann Skip James sem hóf feril sinn í Yazoo í Mississippi. Hann var verkamaður, bruggari, melludólgur, barpíanisti og blúsgítarleikari, þar til hann gerðist prestur. Skip James spilaði svonefnt þriggja fingra pikk, en notaði aldrei slide gítartækni. Hann var þekktur fyrir háa falsetturödd sína, sérkennilegt hljómfall og hvernig hann stillti gítarinn sinn í opinn E-moll hljóm. Hann var helsti fulltrúi Bentonia stílsins. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
    0 min

About Árið er

From the publisher's feed

Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

More shows like Árið er

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Samstöðin by Samstöðin

Samstöðin

1 Listeners