Árið er

Árið er

By RÚVMusic
Download on the App Store

Árið er episodes

  • Árið er 1984
    Annar þátturinn í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum fór í loftið á Rás 2 klukkan 16.05 laugardaginn 11. maí og var endurfluttur sunnudagskvöldið 12. maí kl. 22.05.
    Meðal viðmælenda í öðrum þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 1984 var tekið fyrir, voru Bjartmar Guðlaugsson, Björgvin Halldórsson, Rúnar Þórisson, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson, Guðmundur Jónsson, Eyþór Gunnarsson og Bubbi Morthens.
    Boðið var upp á tóndæmi með Bjartmari Guðlaugssyni, HLH flokknum, Grafík, Íkarus, Egó, Bubba Morthens, Hemma Gunn, Tíbrá, Pax Vobis, Stuðmönnum, Kikk,Tic Tac, Sverri Stormsker, Mezzoforte, Kukli, Kan, Das Kapital, Dúkkulísum, CTV og fjölmörgum öðrum flytjendum sem komu við sögu hér á landi 1984.
    Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum er á dagskrá á laugardögum á Rás 2 og þættirnir eru endurfluttir á sunnudagskvöldum. Þar eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu, auk þess sem drepið er á helstu dægurmálum samtímans hverju sinni.
    Umsjónarmaður er Gunnlaugur Jónsson og honum til aðstoðar eru Ásgeir Eyþórsson, Jónatan Garðarsson og Sigríður Thorlacius.
    0 min
  • Árið er 1983
    Fyrsti þátturinn, í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, fer í loftið á Rás 2 á morgun, laugardaginn 4. maí kl. 16.05.
    Í þáttunum eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu, auk þess sem drepið er á helstu dægurmálum samtímans hverju sinni. Í tilefni af 30 ára afmælisári Rásar 2 í ár, er fyrsti þátturinn helgaður árinu 1983.
    Meðal viðmælenda í fyrsta þættinum eru Eyþór Gunnarsson, Björgvin Gíslason, Valgeir Guðjónsson, Eyjólfur Jóhannsson, Jakob Smári Magnússon, Þór Freysson, Ragnhildur Gísladóttir, Bubbi Morthens, Ásmundur Jónsson, Guðlaugur Kristinn Óttarsson, Páll Óskar Hjálmtýsson og Jakob Frímann Magnússon.
    Boðið verður upp á tóndæmi með Mezzoforte, Björgvini Gíslasyni, Björk Guðmundsdóttur, Gunnari Þórðarsyni, Tappa Tíkarrassi, Q4U, Jóhanni Helgasyni, Grafík, Baraflokknum, Grýlunum, Guðmundi Rúnari Lúðvíkssyni, Bubba Morthens, Kukli, Íkarus, Áhöfninni á Halastjörnunni, Stuðmönnum, Magnúsi Eirikssyni, Dúkkulísum, Lólu, Ladda og fjölmörgum öðrum flytjendum sem lituðu íslenska tónlistarárið 1983.
    Meðfylgjandi er úrklippa úr þættinum þar sem Áhöfnin á Halastjörnunni stígur ölduna.
    Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum verður á dagskrá á laugardögum á Rás 2 næstu mánuði og þættirnir eru endurfluttir á sunnudagskvöldum.
    Umsjónarmaður er Gunnlaugur Jónsson og honum til aðstoðar eru Ásgeir Eyþórsson, Jónatan Garðarsson og Sigríður Thorlacius.
    0 min
  • Blússöngkonur
    Fjallað um nokkrar konur sem fengust við blústónlist og gospelblús á fyrri hluta 20. aldar. Helen Humes söng blúslag inn á plötu 13 ára, árið 1927, en varð seinna fræg jazzsöngkona. Einnig koma við sögu Sister O.M. Terrell, Sister Mary Nelson, Rev. Bessie Johnson og Memphis Sanctified Singers, Merline Johnson, Lucille Bogan og Rosetta Howard.
    0 min
  • Lonnie Johnson lokaþáttur
    Áttundi og síðasti þáttur um brautryðjandann Lonnie Johnson. Fjallað um ferð hans til Bretlands 1952 og árin eftir það þegar hann bjó í Fíladelfíu og Ontario. Hann starfaði sem húsvörður í Fíladelfíu, kvæntist aftur og eignaðist eina dóttur og byrjaði aftur að taka upp tónlist eftir að hafa verið enduruppgötvaður 1959. Hann tók einnig upp blúslög eftir hvíta kántrýtónlistarmenn, rytmablús og sitthvað fleira. Hann settist að í Ontario í Kanada 1965, opnaði blúsklúbb 1966 og andaðist 1970, ári eftir að hafa lent í slysi á gangbraut í Toronto.
    0 min
  • Lonnie Johnson úr hljómgítar í rafmagns gítar
    Sjöundi þáttur um blúsgítarleikarann Lonnie Johnson. Fjallað um Chicago árin og þegar hann fór í ferð til vesturstrandarinnar. Þar hlustaði hann á King Cole Trio og heillaðist af dægurlagablúsnum sem það tríó var með á efnisskrá sinni. Hann tók upp sitt vinsælasta lag eftir það sem hét Tomorrow Night og seldist í 3 milljón eintökum. Hann tók einnig upp blúslög eftir hvíta kántrýtónlistarmenn, rytmablús og sitthvað fleira. Á þessum tíma skipti Lonnie úr hljómgítar í rafmagnsgítar og lagði línuna fyrir rafblúsara sem voru að hasla sér völl í Chicago.
    0 min
  • Lonnie Johnson í kreppunni
    Sjötti þáttur um gítarleikarann Lonnie Johnson. Fjallað um kreppuárin eftir að hann skyldi við Mary eiginkonu sína og fluttist til Chicago. Þar hófst hann handa við að byggja feril sinn upp á nýtt eftir að hafa misst samninginn við Okeh útgáfuna 1932. Hinn klóki Lester Melrose átti sinn þátt í að koma Lonnie aftur í samband við þekkta tónlistarmenn og skapa honum aðstæður sem urðu til þess að hann náði að vinna fyrir sér með tónlist, þó hann tæki að sér önnur störf líka eins og venja var meðal blúsara í Chicago.
    0 min
  • Lonnie Johnson fimmti þáttur
    Fjallað um árin 1930 til 1937 þegar Lonnie Johnson tók upp síðustu lög fyrir Okeh útgáfuna og starfaði t.d. með söngkonunni Clöru Smith sem var kölluð Queen of the Moaners. Síðustu lögin sem hann tók upp fyrir Okeh eru leikin. Sagt frá tímanum í Cleveland í Ohio áður en hann flutti til Chicago 1937 og snéri sér aftur að tónlistinni.
    0 min
  • Lonnie Johnson fjórði þáttur
    Fjallað um stutt ástarsamband Lonnie Johnson og söngkonunnar Bessie Smith og hvernig hann samdi lög til hennar þar sem hann lýsir hugarástandi sínu og vandræðagangi þar sem hann var á sama tíma enn kvæntur Mary Johnson og átti með henni 6 börn. Einnig fjallað um hvaða áhrif andlát Eddie Lang vinar hans hafði á hann.
    0 min
  • Lonnie Johnson þriðji þáttur
    Fjallað um samstarf hans við jazzgítarleikarann Eddie Lang sem spilaði með Lonnie inn á plötur undir nafninu Blind Willie Dunn, þar sem Eddie var hvítur en Lonnie svartur. Einnig leikið lag þar sem Lonnie spilaði með hljómsveit Duke Ellington og fjallað um tímabilið rétt fyrir 1930 á meðan allt lék í lyndi á bandarískum fjármálamörkuðum.
    0 min
  • Lonnie Johnson annar þáttur
    Annar þáttur um gítarleikarann Lonnie Johnson, sem hóf ferilinn í New Orleans í klassískri tónlist og vann blúskeppni í St. Louis sem færði honum 7 ára plötusamning. Eftir gaf hann út eina tveggja laga 78 snúninga plötu á mánuði í eigin nafni og spilaði inn á fjölda hljómplatna með söngkonunni Victoriu Spivey, tók upp með Hot Five Hljómsveit Louis Armstrong og fleiri flytjendum. Fjallað um einkalífið og starfið, eftir að hann settist að í New York og fór í reglulegar ferðir til Chicago.
    0 min

About Árið er

From the publisher's feed

Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

More shows like Árið er

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Samstöðin by Samstöðin

Samstöðin

1 Listeners