Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við

By Sverrir GeirdalBusinessEntrepreneurship
Download on the App Store

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við episodes

  • Gísli Karl Gíslason - Hvað eru Vísindagarðar?

    Gísli Karl Gíslason, tæknistjóri Vísindagarða Háskóla Íslands, mætir í settið og fræðir okkur um Vísindagarða.

    Hvað eru Vísindagarðar?  Hver er sagan? Af hverju eru Vísindagarðar til og af hverju eru þeir í Vatnsmýrinni?

    Við förum yfir stefnumótun og nýja sýn Vísindagarða ásamt nýju logói og hvernig garðarnir eru að breytast í takt við nýja tíma.

    Tengjum við umfjöllun frá 9.2.2021 (Þáttur 2 í Auðvarpsseríunni), þar sem Sigurður Magnús Garðarsson fór yfir framtíðarsýn og erindi Vísindagarða. Hvað hefur breyst?

    Tölum um djúptæknisetrið og síðast en ekki síst um Gísla sjálfan og áhugasvið hans, þar sem við lærum m.a. um Dolby Atmos.

    Meira um Vísindagarða á visindagardar.is

    Þökkum stuðninginn frá Audna.is Visindagardar.is Kveikja.ai og IHPC.is

    www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

    44 min
  • Halldóra Mogensen og Mannvæn tækni - Erum við á réttri leið?

    Halldóra Mogensen mætir og fer yfir mannlegu hlið tækninnar með okkur.

    Halldóra er stjórnarformaður og meðstofnandi Samtaka um mannvæna tækni. Í 39. þætti Auðvarpsins – Nýsköpun, vísindin og við ræðir Sverrir Geirdal um mannvæna hlið tækninnar við Halldóru. Við ræðum hætturnar og áskoranirnar, fyrir hverja er tæknin og nauðsyn þess að fara varlega. Ekki gleyma fólkinu sem tæknin, og í þessu tilviki gervigreindin, á að þjóna.

    Meira um Samtök um mannvæna tækni á mannvaen.is

    Þökkum stuðninginn frá Auðnu tæknitorgi, Visindagörðum, Kveikju og IHPC.

    Hlustiði

    www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

    51 min
  • Greenfish - Næsti einhyrningur landsins - Sveinn Sigurður framkvæmdastjóri segir frá!

    Við hjá Auðvarpinu kynnum næsta einhyrning Íslands; Greenfish!

    Sjávarútvegsfyrirtæki byggt á gervigreind. Veðurstofa fyrir fiskistofna.  

    Sveinn Sigurður Jóhannesson, varamarkmaður Stjörnunnar og fyrrum varamarkmaður Vals í fótbolta, er í raun fyrst og fremst frumkvöðull. Hann er stofnandi og framkvæmdastjóri Greenfish sem á undrastuttum tíma hefur náð forystu á sínu sviði í heiminum.

    Greenfish spáir fyrir um hvar fiskinn er er að finna í sjónum áður en skipið leggur úr höfn með því að nota gervigreind og mikið magn gagna, líkön og töfra til að reikna út líkur á hvar og hvernig fiskurinn hagar sér. Allt gert með ofurtölvum.

    Hafa notið liðsinnis IHPC og Kveikja.ai – Einkaleyfi í farvegi!

    Hlustiði

    www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

    46 min
  • Verðlaunaverkefnið: Vefjastoðefni úr Brúnþara - Svava og Óttar

    Handhafi Vísinda og Nýsköpunarverðlauna Háskóla Íslands 2026 er verkefnið Að þróa vefjastoðefni úr brúnþara í stað dýravefja.

    Það er Svava Kristinsdóttir doktorsnemi sem fer fyrir verkefninu. Hún ásamt Óttari Rolfssyni koma í þátt 37 og útskýra verkefnið fyrir okkur.  Hvernig það kom til og hvaða þýðingu svona viðurkenning hefur fyrir framhaldið.

    Verðmætasköpun á grunni rannsóknanna er handan við hornið. Einkaleyfi í farvegi og framtíðin er björt.

    Hlustiði

    Þátturinn er í boði Auðnu tæknitorgs, Kveikju, Vísindagarða og IHPC

    www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

    37 min
  • Nýsköpunarvikan með Eddu Konráðs

    Innovation week verður 28-29 apríl – Edda Konráðs segir okkur allt!

    Tölum um Nýsköpunarvikuna og lærum smá um söguna – allt um vikuna er hér: www.innovationweek.is

    Viðburðir sem talað er um í þættinum:

    STEMming 2026 8. mars á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna: https://fb.me/e/9tqySvut1

    Join us as we celebrate International Women’s Day at our 3rd annual STEMming event! We are always proud to host this celebratory gathering designed to unite women, non-binary individuals, and allies dedicated to championing diversity in STEM and innovation.

     

    og AI & Society ráðstefna í HR 13. mars: https://www.ru.is/en/events/ai-and-society

    AI & Society 2026 explores how artificial intelligence is reshaping the boundaries of decision-making, from individuals and organisations to nations themselves. 

     

    Og svo fer AI Running Club aftur af stað 9. mars: https://www.linkedin.com/events/airunningclubreykjavik7433123347628036096/

    Tækifæri til að hittast og hlaupa eða labba og networka og ræða gervigreind í afslöppuðu umhverfi.

    Skoðið næstu viðburði hjá Iceland High Performance Computers – www.IHPC.is

    www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

    43 min
  • Nýsköpun fyrir Norðan með Svövu Björk Ólafsdóttur

    Í þætti 35 fáum við Svövu Björk Ólafsdóttur Nýsköpunarstjóra Háskólans á Akureyri í heimsókn. Svava er samt svo miklu meira en starfsmaður HA – hún hefur snertifleti við eiginlega allt nýsköpunarstarf fyrir norðan.

    Við fáum að kynnast Nýsköpunar-Svövu, hvað er að gerast fyrir norðan og hvernig nýsköpun er sinnt í Háskólanum á Akureyri.

    Við lærum um skapa.is, Drift ea. Norðanátt, nýjan fjárfestingasjóð - Landvætti og hvernig Svava er að kenna börnum að nýskapa.

    Mjög skemmtilegt og fróðlegt.

    Ítarefni og hlekkir:

    https://www.unak.is/

    https://www.Skapa.is

    https://www.driftea.is/

    Workshop hjá IHCP – sjá hér: https://www.ihpc.is/events/24th-icelandic-hpc-community-workshop

    Og síðast en ekki síst;  Masterclass Auðnu fyrir norðan: https://audna.is/masterclass-a-akureyri

    www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

    1 hr
  • Dr. Professor Morris Riedel one of the key players in HPC and AI in Iceland

    Supercomputers, money and Morris Riedel

    The 34th episode Auðvarpið 2.0 is of the more expensive type, recorded for the second time and even better than the first.

    Dr. Professor Morris Riedel is the guest of the episode. One of the most important participants and actually the one who makes things happen for Icelandic projects in the field of artificial intelligence and supercomputers. He is behind most of the projects that have received substantial funding from the European Union in the field.

    We review the projects and their status as well as getting to know the man behind the genius a little.

    Ofurtölvur, peningar og Morris Riedel

    34 þáttur Auðvarpsins 2.0 er af dýrari gerðinni,  tekin upp í annað skipti og ennþá betri en í það fyrsta.

    Dr. Professor Morris Riedel er gestur þáttarins.  Einn almikilvægast þátttakandi og í raun gerandi í góðum árangri Íslands og Íslenskra verkefna á sviði gervigreindar og ofurtölva. Hann er á bakvið flest þau verkefni sem hljóta há styrki frá Evrópusambandinu á sviðinu.

    Við förum yfir verkefnin og stöðuna ásamt að kynnast manninum á bakvið snillinginn aðeins.

    Ítarefni:

    The Possibilities for Women in AI
     Skráning og frekari upplýsingar hér:  https://jafnrettisdagar.is/dagskra/?fbclid=IwVERDUAPTU0ZleHRuA2FlbQIxMABzcnRjBmFwcF9pZAo2NjI4NTY4Mzc5AAEeEy_tBpW0IE7EKhf1adjKmfYmbv1IuzKYVQtkEUeEg80jPeafaqRL1CICuPM_aem_t79QLxqFp_5ygrHHocXqlA     (Velja Háskólann í Reykjavík)

    https://www.treble.tech/

    www.greenfish.is

    Hlustiði

    www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

    49 min
  • Disney er dautt - Skapandi greinar og AI - Sigurður Á. Árnason

    Disney er dautt og samfélagsmiðlar sömuleiðis 

    33 þáttur Auðvarpsins 2.0 kominn í loftið! (Myndmerki þáttarins er verk ChatGPT 5.2)

    Sigurður Ásgeir Árnason eða Siggi, framkvæmdastjóri Overtune mætir í settið hjá Sverri Geirdal, nú ráðgjafa hjá Hinos ehf. og ræðir tónlistargeirann og gervigreind – Skapandi greinar með áherslu á tónlist.

    Hvaða áhrif hefur gervigreind á skapandi greinar? Í hvað er hún notuð? Þurfum við að vera hrædd? 

    Hvað gerir listaverk að listaverki? Getur gervigreindin komið í staðinn fyrir fólk?

    Er meðal lag nógu gott? Hreyfir það við okkur að búa til 1000 lög á sekúndu?

    Mikil gerjun og ákaflega spennandi staða uppi!  Hvernig verður hagkerfi skaparans í framtíðinni?

    Hlustið!

    Tenglar úr þættinum:

    Nýsköpunarnám á vegum Landsspítala – upplýsingar hér: Námsbraut í nýsköpun - Almennt um námið | Landspítali

    Þáttur með Hafsteini Einarssyni um AI og listina er númer 17;  hlustið hér: https://open.spotify.com/episode/62BytmvDn8TWLYUwUohpDm?si=dc3d0240a1714680

    Aukaefni um ai og tónlist – þáttur númer 24 – viðtal við Þórhall Magnússon um tónlist og gervigreind:  https://open.spotify.com/episode/05i7kqWoMxz87chWxvA3hT?si=9967ec468f4f4f7c

    www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

    1 hr 7 min
  • EDIH - Svartur Nóvember og Netöryggi - Teddi hjá Defend Iceland!

    Eyvör – stærsta framfaraskref netöryggis og eru yfirvöld að bregða fæti fyrir nýsköpun með höfnun 60% umsókna um endurgreiðslu þróunarkostnaðar?

    32. þáttur Auðvarpsins 2.0 kominn í loftið! (Myndmerki þáttarins er verk ChatGPT 5.1 – vonum að bottinn nái að læra stafsetningu fyrir næsta þátt).

    Theodór Ragnar Gíslason eða Teddi mætir í settið hjá Sverri Geirdal,  nú ráðgjafa hjá Hinos ehf., og ræðir allskonar um net og tölvuöryggi.

    Defend Iceland – hvað er það?  Lýðvirkja?  Og hvað þýðir Villuveiðigátt?

    Defend Iceland er nýbúið að fá Nýsköpunarstyrk frá Digital Europe og Rannís en var hafnað um endurgreiðslu þróunarkostnaðar vegna þess að þau eru ekki í Nýsköpun… (There is something rotten in the state of Ice…)

    Ræðum um Eyvöru,  sem Teddi kallar mesta framfaraskref á sviði netöryggis í seinni tíð. Hvernig getur samfélagið nýtt sér styrki sem þar fást?

    Hvernig eigum við venjulega fólkið að haga okkur við verslun á netinu, sem er aldeilis aktuelt efni núna í Svörtum Nóvember,  þegar 11.11 er nýliðinn og 28.11 (svartur fössari) er handan við hornið.

    Ræðum um viðburði framundan á vegum stuðningsaðila Auðvarpsins;

    Kynning á netörygissstyrkjum Eyvarar 17. nóvember í húsakynnum Arion Banka: https://www.rannis.is/frettir/taekifaeri-i-netoryggi-netoryggisstyrkir-eyvarar-og-digital-europe

    EDIH-IS hefur stofnað hlaupahópinn "AI Running Club Reykjavík." Hópurinn hleypur í hádeginu, þriðja miðvikudag í mánuði. Næsta hlaup er miðvikudaginn 19. nóv kl 11:15 frá HR: https://www.linkedin.com/events/airunningclubreykjavik7394311453232533504/ 

    Gagnvist - ráðstefna um þróun íslenska gagnavistkerfisins - 27. nóvember í Grósku: https://vidburdir.hagstofa.is/events/radstefna2025 

    🎧

    www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

    51 min
  • Auðna - Upphafið og framhaldið með Einari Mäntylä

    Af hverju Auðna og af hverju er framtíðin björt?

    Einar Mantyla sest með Sverri Geirdal og fer yfir söguna!  Báðir eru þeir hættir hjá Auðnu og því vel við hæfi að fara yfir liðinn tíma og rifja upp söguna.

    Förum yfir allskonar pælingar um Vísindalega nýsköpun, svarið við öllum spurningum mannkyns (fyrir utan 42).

    Auðna hefur þroskast og er komin vel á lappirnar,  aukin eftirspurn eftir þjónustunni sýnir þörfina.  Mikilvægt að láta ekki staðar numið og tryggja tilveruréttinn landi og þjóð til heilla.

    Förum yfir EDIH – hví kom Auðna að því verkefni og hvernig hefur gengið.  Eigum við að sækja í Evrópuverkefni þrátt fyrir portalinn,  ja þegar stórt er spurt?  27 milljón Evrum síðar blasir svarið við.

    Hlustiði!

    www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

    1 hr 11 min

About Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við

From the publisher's feed

Auðvarpið fjallar um vísindalega nýsköpun frá öllum hliðum. Hvað er vísindaleg nýsköpun? Hvernig getur hún aukið samkeppnishæfni okkar?Er vísindaleg nýsköpun mest spennandi svið nýsköpunar? Þar sem…

More shows like Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við

The Daily by The New York Times

The Daily

111,845 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

23 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Pyngjan by Pyngjan

Pyngjan

6 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners