Efni Lestarinnar í dag: Á þessu ári eru hundrað ár liðin frá því að hinn áhrifamikli skóli Bauhaus var stofnaður í Weimar í Þýskalandi. Þar var lögð áhersla á að sameina margar greinar, arkitektúr, hönnun og iðngreinar. Stofnandi skólans var þýski arkitektinn Walter Gropius og var hann starfræktur í þremur borgum á árunum 1919 til 1933, og hafði mikil víða um heim. Í Lestinni í dag verður fjallað um sögu, hugmyndafræði og áhrif Bauhaus, gestir þáttarins verða þau Harpa Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands, og Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur. Norræn kvikmyndahátíð hefur göngu sína í Norræna húsinu í dag og stendur yfir til sunnudags. Þema hátíðarinnar í ár er húmorískur realismi og sænski kvikmyndaleikstjórinn Roy Anderson. Fjallað verður um Anderson í þætti dagsins og rætt við Arnbjörgu Mariu Danielsen, dagskrárstjóra Norræna hússins. Og á laugardaginn verða tuttugu ár liðin frá útgáfu plötunnar Things Fall Apart, allt sundrast - sem er krúnudjásnið í höfundarverki rappsveitarinnar The Roots - og Lestin fagnar því af lífs og sálar kröftum. Platan sækir titil sinn í bók nígeríska höfundarins Chinua Achebe og var tekin upp í Electric Lady-hljóðveri Jimi Hendrix, og stendur fyllilega undir sögulegu vigtinni sem því fylgir. Davíð Roach Gunnarsson fræðir hlustendur um Things Fall Apart og The Roots í Lestarferð dagsins.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson.