Nikulás Stefán Nikulásson og Leikhópurinn X munu setja upp 12 tíma langa uppfærslu af leikritinu Beðið eftir Godot eftir írska skáldið Samuel Beckett í sýningarrýminu Open við Grandagarð í Reykjavík um helgina. Leikhópurinn Ert´ekki að grínast í mér er að hittast á fyrstu æfingu fyrir 12 tíma uppsetningu á Beðið eftir Godot. Hópurinn ætlar sér að notast við sjálflærða spunaaðferð til að vinna uppsetninguna og mun þessi fyrsta æfing vera tilraun til þess að renna í gegnum leikritið á 12 tímum, finna út hver á að leika hvern, rýna í leikritið og kryfja það til mergjar. Nikulás verður gestur Lestarinnar í dag. ,,Í mínum augum er söngur ekki mikilmennska heldur tilraun til að ná til himna þar sem ríkir fullkominn samhljómur," sagði óperusöngkonan Maria Callas. Í þættinum í dag verður sagt frá nýlegri heimildarmynd um grísku goðsögnina; Maria by Callas eftir ljósmyndarann Tom Volf. Tónlistarmaðurinn Agnar Gunnar Agnarsson sem kallar sig Agzilla er þungavigtarmaður í raftónlistarsenu Reykjavíkur en hann tók þátt í að skapa íslensku reiv-senuna snemma á tíunda áratugnum. Agzilla gaf nýlega út plötu hjá útgáfunni Metalheadz, sem lagði línurnar í danstónlist á sínum tíma. Þórður Ingi Jónsson ræðir við Agzilla í þættinum dag um gullöld raftónlistarinnar á Íslandi, reiv-tímabilið goðsagnakennda. Og á föstudaginn gáfu tónlistarmennirnir Tumi Árnason og Magnús Trygvason Eliassen út plötuna „Allt er ómælið.“ Tómas Ævar Ólafsson heimsækir þá félaga á hljómsveitaræfingu og spjallar við þá um verkið, en tvennir útgáfutónleikar eru fyrirhugaðir um helgina.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson.