Bíomyndir eru fyrirferðarmiklar í Lest dagsins, ein ný íslensk mynd um unglingaofbeldi á tíunda áratugnum, önnur um hefnd á 10. öld.
Í seinni hluta þáttarins heyrum við gagnrýni Gunnars Ragnarssonar um víkingamyndina The Northman sem við höfum gert ítarleg skil í þættinum alla þessa vikuna. Það verður spennandi að heyra hvort hann sé jafn ánægður með myndina og þáttarstjórnendur.
Bróðurpartur þáttarins fer í aðra kvikmynd sem einnig var frumsýnd í íslenskum bíóhúsum í síðustu viku. Það er myndin Berdreymi eftir Guðmund Arnar Guðmundsson. Við heyrum bíódóm Ásgeirs Ingólfsson en svo mæta þrír gestir til að ræða um ákveðin þemu í myndinni, unglingamenningu, ofbeldi, vináttu og náttúrublæti íslenskra kvikmyndagerðarmanna svo eitthvað sé nefnt. Þetta eru Ísold Uggadóttir, kvikmyndagerðarmaður, Valur Gunnarsson, sagnfræðingur, rithöfundur og fyrrverandi kvikmyndagagnrýnandi og Gissur Ari Kristinsson félagsmálafræðingur og forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar 105.
Og breski grime-tónlistarmaðurinn Skepta ber einnig á góma.