Efni Lestarinnar í dag: Undanfarna daga hafa tónlistarfjölmiðlar um allan heim verið að gera upp árið og birta lista yfir þær plötur og útgáfur sem hafa staðið upp úr á árinu 2018. Í Lestinni í dag verður rennt yfir árslistana og skoðað hvaða plötur og listamenn skjóta upp kollinum hvað víðast, bestu poppplötur ársins 2018.
Í þættinum í dag verður einnig haldið áfram að fá fólk til mæla með bókum sem tala inn í okkar samtíma, með einum eða öðrum hætti, mæla með bókum sem við eigum einhverra hluta vegna að lesa hér og nú. Í dag er röðin komin að Sigurbjörgu Þrastardóttur rithöfundi, hún velur bók og rökstyður val sitt.
Áslaug Torfadóttir fjallar um bresk-bandarísku sjónvarpsþættina Little Drummer Girl sem byggja á samnefndri skáldsögu eftir breska rithöfundinn John le Carré, og hlotið hafa góðar viðtökur.
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson