
Sign up to save your podcasts
Or


Hjalti Skafta oftast kenndur við Skagaströnd er gestur þáttarins að þessu sinni. Hjalti er fjallhress áttræður unglingur og hafði frá mörgu að segja frá fyrri tíð og hefur engu gleymt.
Páll Önundarson eða Palli Önna eins og hann er oftast kallaður var á ferðinni í borginni og við áttum saman fína stund og rifjuðum upp eitt og annað frá fyrri tíð. Palli hefur alla tíð búið á Flateyri og verið í bílaútgerð frá unga aldri.
Björn Sigurðsson athafnarmaður á Húsavík hefur um langt skeið verið með afar farsælan rekstur bíla og ýmissa tækja frá unga aldri. Bíldellan náði snemma heljartökum á kappanum og lífið allt verið tengt bílum, fólki og ferðum.
Már Þorvarðarson starfaði lengi sem bílstjóri hjá Kask á Höfn í Hornafirði. Hér rifjum við upp farsælan ökumannsferil hans við hinar ýmsu aðstæður.
Það gekk á ýmsu hér í denn, er ég starfaði sem flutningabílstjóri hjá Ármanni Leifssyni í Bolungarvík.
Datt því í hug að setja þessa minningu mína hér inn og sumir vina minna hafa kannski lesið þessa frásögn á facebók vegg mínum fyrir nokkrum árum síðan.
Óskar Ólafsson er ökumaður af guðs náð og segir hér frá reynslu sinni við akstur ýmiskonar farartækja, td traktorum og jarðítum er hann var barn í Skagafirði, rallýbílum á sérleiðum og jeppum um hálendi Íslands og Grænlands.
Sigurður Steinsson ökukennari, rútusölumaður og hópferðabílstjóri gaf sér tíma til að kíkja við og rifja upp gamlar og nýjar sögur úr rútubransanum.
Jón Garðar Snæland er fyrsti gestur minn í þessu glænýja hlaðvarpi.
Bílar og ferðalög hafa verið hans ær og kýr frá unga aldri. Jón er sennilega sá aðili hér á landi sem hefur ekið flesta vegi og slóða á hálendinu og hefur skrifað nokkrar bækur um þessi áhugamál hans og lífstíl.
From the publisher's feed

468 Listeners

2 Listeners

91 Listeners

18 Listeners

17 Listeners

70 Listeners

4 Listeners

29 Listeners

20 Listeners

36 Listeners

13 Listeners

1 Listeners

16 Listeners

27 Listeners

0 Listeners