
Sign up to save your podcasts
Or


Lögreglumaðurinn Hlynur Snorrason segir hér stuttlega frá bílaáhuga sínum, m.a. stuttum keppnisferli í ralli, jeppaferðum um Fjallabak, fólkinu sínu og örlagaríka ákvörun um ferðalag vestur á firði.
Ísfirðingurinn Sigurður Ólafsson er gestur þáttarins að þessu sinni. Bíi eins og hann er alltaf kallaður fékk bíladelluna afar ungur, gerði út vörubíla, leigubíla, var ökukennari og ók bílum fyrir aðra þess á milli. Bíi segir hér sögu sína á afar góðan og skemmtilegan hátt.
Heiðar Pétursson var einn af frumkvöðlum í vöruflutningum á Íslandi er hann hóf áætlunarferðir á milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur árið 1958 og síðar á milli Hafnar í Hornafirði til Reykjavíkur. Í þessum þætti segja þeir synir hans Heimir Örn og Hreggviður sögu hans á afar góðan og skemmtilegan máta.
Sveinbjörn Halldórsson formaður Ferðaklúbbsins 4x4 er gestur þáttarins að þessu sinni. Sveinbjörn hefur verið lengi í ýmiskonar félagsmálum og stefnir enn lengra eins og kemur fram í þættinum. Rætt var um hið mikla starf sem klúbburinn stendur fyrir, vinahópa sem myndast í þessum félagsskap, ferðalögin og bílana.
Arnar Þór Hafþórsson og þáttastjórnandinn Páll Halldór segja hér stuttlega frá Hafþóri Ferdinandsyni föður Arnars. Hafþór var fjallamaður af líf og sál, eignaðist jeppa áður en bílpófinu var náð, var fyrstur manna að aka yfir jökul á jeppa og fór margar ferðirnar einbíla á Hveravelli með jólavarning til starfsfólks Veðurstofunnar og fékk þannig viðurnefnið Hafþór "Hveravallaskreppur".
Jón Ferdinand Sigurðsson (Jón Drafli) frá Draflastöðum í Fnjóskadal er gestur þáttarins. Jón er einn af þessum jörlum sem barðist á gömlu vegunum sem hann líka tók þátt í að búa til. Þurfti jafnvel að sinna mjólkur- og aðfangaflutningum með snjóbílum, traktorum og jarðýtum í sinni heimasveit og var einnig vörubílstjóri og skólabílstjóri svo eitthvað sé nefnt.
Einar Guðmundsson er gestur hlaðvarpsins að þessu sinni. Einar hefur nánast allan sinn starfsaldur unnið að forvörnum, þó mest er snýr að umferðarmálum ýmiskonar. Starfaði lengi hjá Sjóvá og hefur síðustu árin verið hjá EIMSKIP, auk þess sem forvarnarmálin eru líka hans áhugamál,td verið í stjórn Brautarinnar sem á og rekur Veltibílinn. Einar fer stuttlega yfir sögu sína og við hefðum farið létt með það að tala í marga klukkutíma um áhuga hans og dugnað í þessum málum. Takk fyrir Einar að gefa þér tíma í spjall.
Þorvarður Hjalti Magnússon er einn af stofnendum Ferðaklúbbsins 4x4 og er gestur hlaðvarpsins að þessu sinni. Er reyndar alltaf kallaður Hjalti og hefur frá unga aldri verið með mikla bíla-, jeppa- og ferðadellu. Við sem eigum breytta jeppa í dag getum þakkað honum og fleirum hans líka fyrir þá baráttu sem náðist í gegn hér í denn er breytingar á jeppum urðu löglegar.
Einar Gíslason fyrrum eigandi verktakafyrirtækisins Einars og Tyggva er gestur þáttarins. Einar í ET eins og hann er oftast kallaður er frumkvöðull í svo mörgu og hefur látið verkin tala svo lengi sem elstu menn muna. Hann fer hér yfir farsælan feril sinn í starfi og gefur okkur örstutta sýn að auki í áhugamálið.
Gestur þáttarins er Finnur Lúðvíksson bílstjóri hjá ET. Finnur er sennilega sá ökumaður sem hefur mesta reynslu hér á landi í stórflutningum ýmiskonar, bæði á þungum vélasamstæðum og spennum, auk húsflutninga og stórra vinnuvéla. Í þessum þætti fáum við örstutta innsýn í hans daglegu störf.
From the publisher's feed

470 Listeners

2 Listeners

91 Listeners

18 Listeners

17 Listeners

70 Listeners

4 Listeners

29 Listeners

20 Listeners

35 Listeners

13 Listeners

1 Listeners

16 Listeners

27 Listeners

0 Listeners