
Sign up to save your podcasts
Or


Allt leit út fyrir að dagurinn yrði eins og hver annar hjá rútubílstjóranum Ed, er hann keyrði gula skólarútu, fulla af börnum sem voru á leið heim. Hann grunaði ekki að þessi dagur myndi breytast í martröð sem leit ekki út fyrir að geta endað vel á neinn hátt.
Israel Keyes var bandarískur fjölskyldufaðir og raðmorðingi sem tók gremju- og reiði sína út á saklausu fólki útum öll Bandaríkin. Þegar hann verður útskúfaður úr fjölskyldunni, stóð hann við að framkvæma sjúkar fantasíur um pyntingar og morð. Lögreglan er engu nær, tengir ekki einu sinni morðin saman. Hann sendi fjölskyldu eins fórnarlambsins mynd sem er virkilega óhugnanleg þegar í ljós kom hvað var raunverulega á myndinni. Hvað var það?
Tool Box Killers voru tveir sjúkir fantar sem kynntust í fangelsi í suðurhluta Kaliforníu. Þeir komust að því að þeir deildu sama áhugamálinu sem er ekki eins og þau gerast flest. Í þessum fyrri hluta þáttarins segi ég ykkur frá raðmorðingjunum Norris og Bittaker, sem báru ábyrgð á að fimm stúlkur á unglingsaldri týndu lífi sínu á fimm mánaða tímabili árið 1979.
The Bathtub Killer er sakamál dagsins en það er stórfurðulegt í alla staði og skilur eftir sig ótal spurningar. Á morðvettvangi finnst fullkomið sönnunargagn sem lögreglan hefur trölla trú á. Ekki bara á einum morðvettvangi, heldur eru framin tvö morð sem eiga sér stað innan 3 mánaða og lögreglunni líður eins og þeir séu að upplifa deja vu! Þeir hafa séð seinni morðvettvanginn áður. Hvaða sturlaði og ósýnilegi morðingi er þetta? Væri gaman að heyra ykkar kenningu í málinu annaðhvort á Facebook grúbbunni eða á instagram.
Geraldine Davidson var 84 ára gömul kona sem elskaði alla og allir elskuðu hana. Þegar fjórir, vandræða unglingar fylgjast með henni yfirgefa heimili sitt láta þau til skarar skríða og brjótast inn á heimili hennar. Það er ekki hægt að ímynda sér með nokkrum hætti hvað elsku konan þurfti að þola þegar hún gengur inn heima hjá sér aftur, en þessi saga hefur setið í mér frá því ég heyrði hana fyrst fyrir löngu.
Sabrina Zunich var aðeins 16 ára gömul þegar hún flutti inn á nýju fósturfjölskylduna sína sem buðu hana hjartanlega velkomna. Engum grunaði hvað sú ákvörðun ætti eftir að eiga í för með sér.
Í þættinum tek ég fyrir tvö mál sem gerðust í háloftunum. Fyrra málið er talið eitt sorglegasta og furðulegasta flugslys Evrópu en 121 manneskja létu lífið um borð í flugvél frá Helios Airways. Seinna málið er um slys sem átti sér stað í flugstjórnarklefanum í flugvél frá British Airlines en það slys sýnir að kraftaverk geta svo sannarlega gerst. Þátturinn er ekki við hæfi barna.
Arthur Shawcross (1945) var kaldryfjaður morðingi sem naut þess að myrða, misþyrma og nauðga vændiskonum í New York. Áður en morðin á konunum hófust hafði hann setið í fangelsi fyrir að myrða tvö saklaus börn. Sérfræðingar og aðrir fræðimenn er komu að máli Arthurs, töldu hann ekki hættulegan samfélaginu lengur. Þar skjátlaðist þeim svo sannarlega. Ég vil vara sérstaklega við þessum þætti því hann inniheldur hrottaleg smáatriði og grófar lýsingar á atburðunum.
Hin 18 ára gamla Erin Chorney hvarf sporlaust árið 2002 þegar hún ætlaði út að hitta vinkonu sína. Rannsóknarlögreglan í Brandon, Kanada prófuðu í fyrsta sinn aðferðina "The Sting Operation" og þá fóru hlutirnir að skýrast.
From the publisher's feed

120 Listeners