Efni Lestarinnar í dag: Hljómsveitin og fjöllista-tvíeykið Munstur gaf út sína fyrstu breiðskífu 15. janúar. Platan ber heitið MMMM og er nú aðgengileg á Spotify, liðsmenn bandsins, Kristinn Arnar Sigurðsson og Atli Arnarsson, fræða hlustendur nánar um plötuna í þætti dagsins. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í dag um kvikmyndina Shoplifters, eða Búðaþjófa, eftir japanska leikstjórann Hirokazu Kore-eda. Einnig verður þess minnst í Lestinni í dag að um þessa dagana eru tíu ár liðin frá búsáhaldabyltingunni, í janúar árið 2009. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um popúlisma, eða lýðskrum.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson