Efni Lestarinnar í dag: Rappsveitin CYBER gaf út nýverið út nýja breiðskífu. Platan nefnist Bizness og er fjórða útgefna efni sveitarinnar. Platan verður skoðuð nánar í þætti dagsins, rætt verður við tvær liðskonur bandsins, þær Sölku Vals og Jóhönnu Rakel. Í þættinum verður einnig haldið áfram að fá fólk til mæla með bókum sem tala inn í okkar samtíma, með einum eða öðrum hætti, mæla með bókum sem við eigum að lesa hér og nú. Í dag er röðin komin að Andra Snæ Magnasyni, rithöfundi. Fólk er oft tilbúið til þess að leggja ýmislegt á sig til þess að bjarga hjónabandinu. Bresku sjónvarpsþættirnir Wanderlust fjalla um hjónin Joy og Alan sem leita nýstárlegra leiða til þess að finna neistann á ný. Áslaug Torfadóttir fjallar um Wanderlust í Lestinni í dag. Og tónlistarhátíðin Iceland Airwaves var haldin um helgina, en henni lauk á laugardag. Spurt verður í þættinum, hvernig tókst til að þessu sinni.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson