Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við dj flugvél og geimskip, sem er listamannsnafn Steinunnar Harðardóttir, en hún sendi á dögunum frá sér sína þriðju plötu, sem ber heitið Our Atlantis! Steinunn er nýkomin úr tónleikaferðalagi um Evrópu og heldur útgáfutónleika í Iðnó á miðvikudag, Steinunn verður gestur Lestarinnar í dag. Önnur tónlistarkona kemur við sögu í þættinum í dag, en ferill Herdísar Stefánsdóttur kvikmyndatónskálds tók skyndilegan og óvæntan vaxtarkipp á síðasta ári þegar hún var beðin um að semja tónlist fyrir Warner Brothers-kvikmyndina The Sun is Also a Star. Á þeim tíma var Herdís einnig að upplifa persónulegan vaxtarkipp, aðallega um sig miðja þar sem hún bar barn undir belti; var komin 30 vikur á leið. Í þættinum í dag verður rætt við Herdísi um feril hennar, frá rafpoppi sveitarinnar East of My Youth, inn í heim kvikmyndanna, og um skörun tveggja stærstu verkefna hennar til þessa. Einnig verður hugað að kvikmyndum í þættinum í dag, en kvikmyndahátíðinni í Berlín lauk núna um helgina og í pistli frá hátíðinni segir Ásgeir H Ingólfsson frá sigurmyndinni, Samheiti, sem fjallar um Ísraelsmann í Frakklandi og erfitt samband hans við föðurlandið. Einnig fjallar Ásgeir um hneykslismál sem skekur frönsku kirkjuna, ferðasögu ensku tónlistarkonunnar P.J. Harvey um Afganistan, Kósóvu og Washington, og rússneska barnahermenn í fyrri heimstyrjöldinni. Og Áslaug Torfadóttir fjallar í dag um bresku sjónvarpsþáttaröðina Luther.
Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson.