Í Lestinni í dag, 23. ágúst, verður meðal annars fjallað um djöfullegan djass, jaðarsetningu, David Crosby og draugakennda nærveru samfélagsmiðla
Í stjórnmálum í dag er sífellt meira rætt um jaðarsetta hópa og hvernig megi gefa þeim pláss og gera kleift að verða hluti af meginstraumnum. Í Lestinni í dag verður fjallað um jaðarsetningu í hinum hnattræna listheimi. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, nemi í listfræði, ræðir um jaðarsetningu, aðgengi og afstöðu til listamanna sem tilheyra ekki norminu.
Gamall maður stígur á stokk í Háskólabíói í kvöld. Hann er 77 ára gamall, og eiginlega fyrir löngu orðinn að einskonar goðsögn. Feril hann spannar um það svo sem eins og 60 ár, og hann hefur haft mikil áhrif með tónlist sinni. Hann heitir David Crosby, og stofnaði vinsælar hljómsveitir á borð við The Byrds og Crosby, Stills, Nash og Young, en sú síðarnefnda var einhver sú vinsælasta í öllum heiminum uppúr árinu 1970. Og nú segja menn að Crosby hafi gengið í endurnýjun lífdaga, með þremur plötum sem komið hafa út á síðustu árum og hlotið góða dóma. Já, David Crosby í Háskólabíói í kvöld, við ætlum að fræðast um hann í Lestinni í dag. Gestur okkar verður Árni Matthíasson.
Karl Ólafur Hallbjörnsson flytur pistil í Lestinni í dag og fjallar um draugakennda nærveru samfélagsmiðlanna.
Dr. Ólafur Rastrick dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands fjallar um djass og menningarangist, en hann flutti erindi um þetta efni í fullveldismaraþoni Reykjavíkurakademíunnar sem fram fór um helgina. En þar fjallaði Ólafur meðal annars um það hvernig menn skrifuðu um djassinn fyrir hundrað árum, og það var ekki allt fallegt, öðru nær, meira um það í Lestinni í dag.