Ein Pæling

Ein Pæling

By Thorarinn HjartarsonSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    25

    Followers

  • Typical duration

    68 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Ein Pæling episodes

  • #467 Noorina Khalikyar - Feminism, honor culture and muslim assimilation in Europe
    Þórarinn speaks with Noorina Khalikyar about her experience coming to Iceland from Afghanistan as a refugee. Noorina is a doctor and an outspoken advocate for the liberation of Afghan women.

    In this episode, she discusses differing opinions among muslims in Iceland on whether women should be allowed to work, whether muslim women can be unveiled in Iceland, the concept of honor culture, views on homosexuality, and the impatience some inhabitants show toward differing cultural standards.
    • What are the views of muslim men in Iceland toward homosexuality?
    • Why don’t Western feminists support muslim women?
    • Are Icelanders normalizing honor culture?
    • How do muslim men perceive unveiled muslim women in Iceland?
    These questions and more are answered in this episode.
    1 hr 11 min
  • #466 Halldóra Þorsteinsdóttir - Múgæsingur og leikhús samskiptanna
    Þórarinn ræðir við Halldóru Þorsteinsdóttur héraðsdómara og háskólaprófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík um mörk tjáningarfrelsins.


    Nýlegar vendingar í stjórnmálunum eru ofarlega á baugi en í liðinni viku fóru af stað miklar umræður eftir Kastljósþátt þar sem Snorri Másson var til viðtals og tjáði sig um sínar eigin skoðanir á kynjamálum. 


    Farið er um víðan völl og rætt um ýmsa þætti tjáningarfrelsisins og velt vöngum yfir því hvenær réttlætanlegt er að skerða tjáningu og hvenær það er sem við göngum of langt.


    - Hver er munurinn á lagalegu og félagslegu tjáningarfrelsi?
    - Sækjum við í persónulegan félagsauð með því að benda á hvað aðrir séu ómögulegir?
    - Hver er aðkoma dómsvaldsins í málefnum sem snúa að tjáningarfrelsi?
    - Erum við öll Bubble boy þegar það kemur að tjáningarfrelsi?


    Þessum spurningum er svarað hér.

    Til að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:

    www.pardus.is/einpaeling 

    eða 

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: 

    Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 

    Samstarfsaðilar: 
    Poulsen 
    Happy Hydrate 
    Bæjarins Beztu Pylsur 
    Alvörubón 
    Fiskhúsið
    1 hr 6 min
  • #465 Sólveig Anna Jónsdóttir - Vinstrið verður að kljúfa sig frá woke-inu
    Þórarinn ræðir við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, um stjórnmál, rétttrúnað, kjarabaráttu, stöðu láglaunafólks og margt fleira.

    Umfjöllunin snýr meðal annars að undarlegum vendingum á vinstri væng stjórnmálanna, þar sem áherslan hefur oft færst yfir í táknræn mál á borð við „píkupólitík“ og kvennafrídaga. Sólveig leggur áherslu á að barátta láglaunafólks verði að byggjast á raunverulegum hagsmunum þeirra sjálfra, ekki forskrift millitekjuhópa sem nýti sér kjör hinna tekjulægstu undir merkjum „woke“ hugmyndafræði og persónufornafna.

    - Hvers vegna var Hallgrímur Helgason að „manspreada“ á Rauða borðinu?
    - Af hverju er svo oft talað niðrandi um stráka og „eitraða karlmennsku“?
    - Hvað þarf vinstrið að gera til að rétta úr kútnum?


    Svörin við þessum spurningum má finna hér.
    1 hr 13 min
  • #464 Kolbeinn H. Stefánsson - Frelsi og sjálfsritskoðun akademíunnar
    Þórarinn ræðir við Kolbein H. Stefánsson um akademískt frelsi, útlendingamál og Háskóla Íslands. Akademískt frelsi hefur verið sérstaklega áberandi umræðuefni undanfarið eftir að Ingólfur Gíslason, aðjúnkt við deild menntunar og margbreytileika, tók þátt í mótmælum sem urðu til þess að ísraelski prófessorinn Gil S. Epstein gat ekki haldið erindi á vegum Háskóla Íslands.

    Sama dag og hlaðvarpið var tekið upp, þó eftir, brást rektor Háskóla Íslands loks við með því að hvetja til aukinnar umræðu um akademískt frelsi. Sú umræða hefur einnig velt upp spurningum um tjáningarfrelsi og ritskoðun. Auk þess að ræða þessi mál er rætt um útlendingamál og breytta sviðsmynd bæði er varðar umræðu og veruleika þeirra á Íslandi.

    Fjallað er um aðlögun á íhaldssömum gildum frá Mið-Austurlöndum, hvort ómenntað fólk sé vitlausara en menntað fólk, vísindalegan sannleik, pólitíska slagsíðu innan HÍ, skakkt hvatakerfi HÍ, sjálfsritskoðun kennara, tjáningarfrelsi og um þá staðreynd að aukinn innflutningur fólks til Íslands auki andúð gegn samkynhneigðum á Íslandi.


    - Eykur innflutningur fólks til Íslands andúð gegn samkynhneigðum?
    - Er vísindalegur sannleikur til?
    - Er pólitísk slagsíða innan félagsvísindadeilda Háskóla Íslands?
    - Er ómenntað fólk vitlausara en menntað fólk?

    Þessum spurningum er svarað hér.
    1 hr 9 min
  • #463 Konráð Guðjónsson - Lækkunarferli stýrivaxta lokið í bili
    Þórarinn ræðir við Konráð Guðjónsson, fyrrum aðstoðarmann utanríkisráðherra og fjármálaráðherra sem og fyrrverandi efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar síðustu, um stefnu og stöðu efnahagsmála á Íslandi nú þegar lækkunarferli stýrivaxta er komin á bið.


    Rætt er um áhrif húsnæðismála á verðbólguna, kjaramál og krónutöluhækkanir, framleiðni, styttingu vinnuvikunnar, stefnu ríkisstjórnarinnar, kulnun og margt fleira.


    Konráð telur fílinn í herberginu vera launahækkanir og að of sjaldan sé rætt um þær í samhengi við stýrivexti. Hann telur launaskrið hafa kynt undir þeirri verðbólgu sem sést í dag og að ekki sé fyrirséð að hún muni koma til með að hjaðna á næstunni.


    - Eru launahækkanir bleiki fíllinn í herberginu?
    - Hvaða áhrif hefur kulnun á vinnumarkaðinn?
    - Hvaða áhrif hefur lóðaverð á húsnæðisverð?


    Þessum spurningum er svarað hér. 

    Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:

    www.pardus.is/einpaeling 

    eða 

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 

    Samstarfsaðilar: 
    Poulsen 
    Happy Hydrate 
    Bæjarins Beztu Pylsur 
    Alvörubón 
    Fiskhúsið
    1 hr 5 min
  • #462 Hjálmtýr Heiðdal - Akademískt frelsi, prinsip og þjóðarmorð
    Þórarinn ræðir við Hjálmtý Heiðdal, formann Félagsins Ísland-Palestína um stríðið fyrir botni miðjarðarhafs, stjórnmálin á Íslandi, akademískt frelsi og sumarbústaðarferðir. 


    Rætt er um stríðið ásamt því að ræða vendingar hérlendis er varðar mótmælendur sem hafa bæði ráðist gegn fjölmiðlum og akademísku frelsi á Íslandi.

    Hjálmtýr og Þórarinn takast á um það hvar mörk tjáningarfrelsi prófessora eigi að liggja og hvort að réttlætanlegt sé að kveða í kútinn það sem viðkomandi telur vera forkastanlegar skoðanir. Fasismi ber á góma, þjóðarmorð, afrakstur mótmæla á Íslandi og margt fleira.

    - Auka stuðningsmenn Palestínu við almennan stuðning með sínum mótmælum?
    - Hefur Ísraelsríki tilvistarrétt?
    - Hvort myndi Hjálmtýr fara í sumarbústað með Hannesi Hólmsteini, Stefáni Einari eða Frosta Logasyni?

    Þessum spurningum er svarað hér

    Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:

    www.pardus.is/einpaeling 

    eða 

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 

    Samstarfsaðilar: 
    Poulsen 
    Happy Hydrate 
    Bæjarins Beztu Pylsur 
    Alvörubón 
    Fiskhúsið

    1 hr 12 min
  • #461 Magnús Árni Skjöld Magnússon - Á Ísland að ganga í ESB?
    Þórarinn ræðir við Magnús Árna Skjöld Magnússon, formann Evrópuhreyfingarinnar og prófessor við stjórnmálafræðideild á Bifröst, um kosti og galla þess að ganga í Evrópusambandið.

    Farið er um víðan völl og rætt um Draghi skýrsluna, stjórnmálin í Evrópu, stjórnmálin í Evrópu, hvað það þýðir að kíkja í pakkann, hvaða praktísku þýðingu það hefði fyrir Ísland að ganga í ESB, stöðu Evrópuríkjanna og margt fleira.


    - Á Ísland að ganga í ESB?
    - Hvaða þýðingu hefur Draghi skýrslan á ágæti þess að ganga í bandalagið?
    - Mun aðildarumsókn verða samþykkt? 


    Þessum spurningum er svarað hér.
    1 hr 8 min
  • #460 Snorri Másson - Annaðhvort segir þú hug þinn eða lætur kúga þig
    Þórarinn ræðir við Snorra Másson, inngildingarsérfræðing og þingmann Miðflokksins. Samræðurnar fara um víðan völl en sérstök áhersla er lögð á þær menningarbreytingar sem viðmælandi og þáttarstjórnandi telja að séu að eiga sér stað bæði erlendis en engu að síður hér heima. 

    Menningarbreytingarnar eru settar í samhengi við það hvenær umburðarlyndi verður að trúarsetningu og jafnvel stjórnlyndi. Í því samhengi er rætt um það hvað það þýðir að vera Íslendingur, transmál, hælisleitendakerfið, tungumálið, unga öfga-hægrimenn, inngildingu, RÚV, stjórnmálin og margt fleira.

    - Hver er vítahringur útlendingamála?
    - Eru allir þeir sem aðhyllast ekki woke-vinstristefnu öfgamenn?
    - Hvenær verður umburðarlyndið að trúarsetningu?


    Þessum spurningum er svarað hér.

    Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:

    www.pardus.is/einpaeling 

    eða 

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 

    Samstarfsaðilar: 
    Poulsen 
    Happy Hydrate 
    Bæjarins Beztu Pylsur 
    Alvörubón 
    Fiskhúsið
    1 hr 56 min
  • #459 Björgvin Ingi Ólafsson og Sigurður Stefánsson - Hvernig hægt er að leysa húsnæðisvandann
    Þórarinn ræðir við Björgvin Inga Ólafsson og Sigurð Stefánsson um það hvernig megi leysa húsnæðisvandann. Rætt er um skipulagsmál, forgangsröðun, markmið, pólitíska eftirspurn, flöskuhálsana, fæðingartíðni, lóðaskort, félagsleg vandamál og margt fleira.


    Björgvin og Sigurður telja báðir að staðan í dag sé afar slæm og ef fram fer sem horfir muni sífellt færri ungmennum takast að fjárfesta í þaki yfir höfuðið. 


    Sigurður bendir á að lífshlaup þeirra sem haldast á leigumarkaði út ævina sé töluvert frábrugðnara þeirra sem tekst að kaupa sitt eigið húsnæði. Þetta geti valdið auknum vandamálum í félagslegum kerfum og að lokum umtalsvert verra samfélagi. Hann telur að teikn séu á lofti og að það hrikti í samfélagssáttamálanum.


    Björgvin leggur sérstaka áherslu á fæðingartíðni en hann segir að óháð fasteignamarkaðnum séu óveðurský framundan ef stjórnvöldum tekst ekki að búa til hvata fyrir fólk að eignast börn. Hann bendir á að í dag séu um fimm skattgreiðendur fyrir hvern ellilífeyrisþega en eftir fáa áratugi muni sú tala verða tveir skattgreiðendur fyrir hvern ellilífeyrisþega.


    Þremenningarnir leggja fram ráð í lok þáttarins sem þeir telja að geti komið til móts við ofangreind vandamál.

    Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:

    www.pardus.is/einpaeling 

    eða 

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 

    Samstarfsaðilar: 
    Poulsen 
    Happy Hydrate 
    Bæjarins Beztu Pylsur 
    Alvörubón 
    Fiskhúsið

    1 hr 25 min
  • #458 Árni Árnason - Er Ugla Tré pólitísk ádeila?
    Þórarinn ræðir við Árna Árnason en hann hefur undanfarið farið mikinn á samfélagsmiðlum þar sem hann birtir satíriskar ádeilur um íslenskt stjórnkerfi og stjórnmál í dulargervi fígúrurnar Ugla Tré. 

    Rætt er um stjórnsýsluna, grín, mannúð, velferð, hvernig maður opnar bakarí og fleira. 

    Árni og Þórarinn deila sögum um reynslu sína og annarra af því að eiga við kerfið en þeir eru sammála um að víða sé pottur brotinn og að það kunni að sína einkenni stærra vandamáls innan stjórnsýslunnar.



    - Er Ugla Tré bara grín eða pólitísk ádeila?
    - Afhverju tekur ár að opna bakarí?
    - Vinnur kerfið fyrir sjálft sig?


    Þessum spurningum er svarað hér.

    Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:

    www.pardus.is/einpaeling 

    eða 

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 

    Samstarfsaðilar: 
    Poulsen 
    Happy Hydrate 
    Bæjarins Beztu Pylsur 
    Alvörubón 
    Fiskhúsið
    1 hr 2 min

More shows like Ein Pæling

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

31 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners