Ein Pæling

Ein Pæling

By Thorarinn HjartarsonSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    25

    Followers

  • Typical duration

    68 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Ein Pæling episodes

  • #478 Ugla Stefanía Kristjönu- Jónsdóttir - "Er Snorri að segja að ég sé bara karlmaður?"
    Þórarinn ræðir við Uglu Stefaníu Kristjönu- Jónsdóttur um transmálin á Íslandi.
    Fjallað er um hvernig umræðan hefur breyst, bakslagið, trans börn, hversu mörg kyn það séu, leikjafræði umræðunnar, afhverju transfólk er alltaf vinstrisinnað, hatursorðræðu, búningsklefamálin, hvort að trans konur eigi að vera í kvennaklefa í sundi, hormónameðferðir, stöðuna í Bandaríkjunum og Bretlandi og margt fleira.


    Ugla segir að á Íslandi sé umræðan almennt betri en gengur og gerist erlendis þrátt fyrir að hafa versnað. Hún telur mikilvægt að viðhalda þeirri stöðu og til þess að gera það þurfi að eiga heilbrigðar samræður. Hún segir internetið valda því að varhugaverðir aðilar nái tökum á umræðunni sem að í kjölfarið auki skautun hjá báðum fylkingum.

    - Telur Snorri Másson Uglu vera karlmann?
    - Eru hormónameðferðir afturkræfar?
    - Er hægt að sannfæra börn um að þau séu trans?
    - Hvað er hatursorðræða?


    Þessum spurningum er svarað hér.
    1 hr 33 min
  • #476 Júlíus Viggó Ólafsson - Villta vinstrið er horfið
    Þórarinn ræðir við Júlíus Viggó Ólafsson en hann er nýr formaður Samtaka ungra sjálfstæðismanna. Farið er um víðan völl og rætt um stöðu Sjálfstæðisflokksins, Charlie Kirk, tjáningarfrelsi, villta vinstrið, útlendingamál, viðhorfsbreytingar ungs fólks og margt fleira.

    - Ætti Sjálfstæðisflokkurinn að hætta að hafa áhyggjur af villta vinstrinu?
    - Hvernig mun Sjálfstæðisflokkurinn takast á við vinsældir Miðflokksins?
    - Á að verja tjáningarfrelsi Charlie Kirk?


    Þessum spurningum er svarað hér.

    Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:

    www.pardus.is/einpaeling 

    eða 

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: 
    Rkn. 0370-26-440408
    Kt. 4404230270 
     
    Samstarfsaðilar: 
    Poulsen 
    Happy Hydrate 
    Bæjarins Beztu Pylsur 
    Alvörubón 
    Fiskhúsið
    Drifa.is
    Palssonfasteignasala.is
    Heitirpottar.is
    1 hr 4 min
  • #475 Lilja D. Alfreðsdóttir -Hagsmunir Íslands í öndvegi verði Lilja formaður Framsóknar
    Þórarinn ræðir við Lilju Dögg Alfreðsdóttir um stöðu Framsóknar, stjórnmálin á Íslandi, hælisleitendamál, verðbólgu á Íslandi, fæðingartíðni, gildi, menningu og menntamál og menntamálaráðherra.

    Lilja segir að Framsóknarflokkurinn myndi breytast töluvert undir hennar stjórn. Flokkurinn yrði bæði meira hugmyndafræðilegur en einnig myndi Lilja vilja að flokkurinn myndi einbeita sér að hagsmunu Íslands og Íslendinga.

    Hún hefur áhyggjur af fæðingartíðni og segir hælisleitendakerfið í þeirri mynd sem það er í dag algerlega ónýtt. Hún segir að Íslendingar hafi þurft að hafa fyrir því að móta þau gildi sem hér eru við lýði og að hún sé ekki tilbúin að gefa neinn afslátt í þeim efnum.

    Menntamálin eru einnig rædd en Lilija segir að þar þurfi augljóslega að gera breytingar. Hún telur að auka þurfi við verkefni á borð við Kveikjum neistann undir leiðsögn Hermundar Sigmundssonar.

    - Hvað vill Lilja gera í hælisleitendamálum?
    - Hver verður næsti formaður Framsóknar?
    - Hvað finnst Lilju um nýjan menntamálaráðherra?


    Þessum spurningum er svarað hér.
    1 hr 19 min
  • #474 Hannes Hólmsteinn Gissurarson - Skraufþurrir pappírspokar í blekjuðu bákni ríkisins þola ekki átök
    Þórarinn ræðir við Hannes Hólmstein Gissurarson prófessor emeritus við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Í þættinum er farið um víðan völl og rætt um menningarstríðið, sveitarstjórnarkosningar, stöðu Sjálfstæðisflokksins, lýðsrkum, slaufun Hannesar úr háskólanum, kynjafræði, átökin fyrir botni Miðjarðarhafs, vinstrimenn og margt fleira.


    Hannes segir kynjafræði vera gagnslausa námsgrein sem geti einvörðungu skapað störf sem sérstaklega eru búin til fyrir þá sem úr greininni útskrifast og sé þá greidd af skattgreiðendum. 
    Rætt er mikið um háskólasamfélagið og meðal annars gerð upp sú atburðarrás þegar Hannes Hólmsteinn hætti kennslu en hann átti sér marga andstæðinga innan veggja Háskólans sem þráðu ekkert heitar en að hann myndi ljúka kennslustörfum.


    Hannes telur samfélagið vera að sumu leiti á rangri leið og nefnir í því samhengi þá meinsemd að fólk geti skilgreint sig sjálft og að margir kjósi að gera það. Þá telur hann ólýðandi að fólk geti skilgreint sig sjálft sem öryrkja og að karlmenn eigi ekki að geta skilgreint sig sem konur og farið inn í búningsherbergi kvenna.


    - Hvað gerist þegar fólk fær að skilgreina sig sjálft?
    - Var Hannesi Hólmsteini slaufað úr HÍ?
    - Er kynjafræðin gagnslaus?


    Þessum spurningum er svarað hér.

    Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:

    www.pardus.is/einpaeling 

    eða 

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: 
    Rkn. 0370-26-440408
    Kt. 4404230270 
     
    Samstarfsaðilar: 
    Poulsen 
    Happy Hydrate 
    Bæjarins Beztu Pylsur 
    Alvörubón 
    Fiskhúsið
    1 hr 28 min
  • #473 Björn Jón Bragason - Aukin umsvif hins opinbera minnka félagslegt auðmagn
    Björn Jón Bragason er sagnfræðingur, bókahöfundur og kennari en hann er einnig hlustendum hlaðvarpsins kunnugur. Í þessum þætti er rætt um stöðu íslensk samfélags frá heimspekilegu sjónarmiði.

    Útlendingamál hafa verið mikið til umræðu undanfarin misseri en Björn Jón telur stöðuna vera bæði ósjálfbæra og óviðunandi. Hann gerir félagslegu taumhaldi og auðmagni góð skil og ræðir um það hvort að fjölbreytni sé í eðli sýnu styrkur.

    Einnig er rætt um þau letjandi áhrif sem aukin umsvif hins opinbera hafa á félagsstarf, eldra fólk, Bandaríkin, menntamálin, sýn hinna útvöldu og það hvort að menntamálaráðherra sé starfi sýnu vaxinn.

    - Er menntamálaráðherra starfi sínu vaxinn?
    - Minnka umsvif hins opinbera félagslegt auðmagn?
    - Afhverju komum við jafn illa fram við eldra fólk og raun ber vitni?


    Þessum spurningum er svarað hér.

    Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:

    www.pardus.is/einpaeling 

    eða 

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: 
    Rkn. 0370-26-440408
    Kt. 4404230270 
     
    Samstarfsaðilar: 
    Poulsen 
    Happy Hydrate 
    Bæjarins Beztu Pylsur 
    Alvörubón 
    Fiskhúsið
    1 hr 3 min
  • #472 Sæþór Benjamín Randalsson - Nýr leiðtogi Sósíalistaflokksins ekki token útlendingur
    Þórarinn ræðir við Sæþór Benjamín Randalsson, nýjan leiðtoga Sósíalistaflokksins, um stjórnmálin, woke-ið, húsnæðismál, mannréttindi, yfirtöku í Sósíalistaflokknum, peningamál Sósíalista, hvort að Sæþór sé Íslendingur og margt fleira.


    Sæþór Benjamín segist hafa lært mikið af Sólveigu Önnu undanfarin misseri en hann hefur einnig setið í stjórn Eflingar stéttarfélags undanfarin ár.

    Hann telur að auka þurfi grasrótarstarf innan Sósíalistaflokksins en hann vandar gömlu forystunni ekki kveðjurnar í þessu hlaðvarpi. Hann segir mikla leynd hafa ríkt yfir peningamálum Sósíalistaflokksins sem enn eigi eftir að greiða úr og að mikilvægt sé að flokkurinn hreinsi af sér allt sem við kemur woke-inu sem hann telur vera "dauðaköltsvinstri" sem sé engum til bóta. 


    Þar að auki er rætt um mannréttindi og Kína en hann telur að Ísland geti lært margt af Kína sem hann segir að standi mun framar sínu upprunalandi sem eru Bandaríkin.


    - Afhverju vill Sanna Magdalena ekki tala við nýja forystu Sósíalista?
    - Afhverju er woke-ið dauðakölt?
    - Mun Sólveig Anna stíga inn á svið sveitarstjórnarmálanna?
    - Munu peningamál gömlu forystu Sósíalistaflokksins skýrast?


    Þessar spurningar eru ræddar í þessum þætti.


    Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:

    www.pardus.is/einpaeling 

    eða 

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: 
    Rkn. 0370-26-440408
    Kt. 4404230270 
     
    Samstarfsaðilar: 
    Poulsen 
    Happy Hydrate 
    Bæjarins Beztu Pylsur 
    Alvörubón 
    Fiskhúsið
    56 min
  • #471 Dóri DNA - Kokkálar sem sækja testosterone-ið sitt í gegnum áttræðan karlmann
    Þórarinn ræðir við Dóra DNA, þúsundþjalasmið með meiru, um heima og geima. 
    Í upphafi er rætt um reynslu Dóra af þyngdarstjórnunarlyfjum og hvaða áhrif þau gætu haft til framtíðar. Sú umræða er sett í samhengi við áhrif samfélagsmiðla á allt sem við kemur hinu mannlega og hversu erfitt er að eiga samskipti í því fuglabjargi sem að samfélagsmiðlar sannarlega eru.
    Þar að auki er rætt um nútímatrend, útlendingamál, leiðtogaleysi í heiminum, endurkomu Kristni meðal ungs fólks, kvikmyndasjóð, Trump og testasterone, golf, slaufunarmenningu hægrimanna, og margt fleira.

    - Afhverju sækja kokkálar og ungir menn sitt testasterone í áttræðan karlmann?
    - Afhverju er leiðtogaleysi í síkvikari heimi?
    - Afhverju er ungt fólk að verða Kristið?
    - Hvað gerist þegar myndarlegar konur verða hægrisinnaðar?


    Þessum spurningum er svarað hér.


    Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: 


    www.pardus.is/einpaeling  


    eða  


    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  
    Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270
     
    Samstarfsaðilar: 
    Poulsen 
    Happy Hydrate 
    Bæjarins Beztu Pylsur 
    Alvörubón 
    Fiskhúsið
    Heitirpottar.is
    Drifa.is
    53 min
  • #470 Bergþór Ólason - Hatursherinn er töluvert betur skipulagður á vinstrivæng stjórnmálanna
    Þórarinn ræðir við Bergþór Ólason um stjórn- og samfélagsmál nútímans og snert á ýmsu.
    Fjallað er um útlendingamál, transmál, fjárlögin, Charlie Kirk, Snorra Másson, ungt fólk sem færir sig í auknum mæli til hægri, tjáningarfrelsi, erlenda glæpahópa, og margt fleira.

    Bergþór telur að hatursöflin séu betur skipulögð á vinstri væng stjórnmálanna þrátt fyrir það að umræður um þessi mál bendi til hins gagnstæða.


    - Er munur á líffræðilegu og félagslegu kyni?
    - Er hatur vinstrivængsins betur skipulagt en á hægrivængnum?
    - Hvernig vill Miðflokkurinn tækla erlenda glæpahópa?


    Þessum spurningum er svarað hér.

    Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:

    www.pardus.is/einpaeling 

    eða 

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: 
    Rkn. 0370-26-440408
    Kt. 4404230270 
     
    Samstarfsaðilar: 
    Poulsen 
    Happy Hydrate 
    Bæjarins Beztu Pylsur 
    Alvörubón 
    Fiskhúsið
    1 hr 5 min
  • #469 Páll Jakob Líndal - Þráhyggja í skipulagsmálum
    Þórarinn ræðir við Pál Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði, um skipulag Reykjavíkur, stjórnmálin, fæðingartíðni, hvort fólk eigi að búa á byggingarreitum, hvaða byggingarreitir hafa verið slæmir og borgarlínuna og fleira.


    Jakob er verulega gagnrýninn á stefnu skipulagsmála hjá Reykjavíkurborg og telur hann að það skapi ýmis fyrirsjáanleg vandamál. 


    - Er hægt að yfirfæra skipulagsmál í Danmörku á Ísland?
    - Á lækkun fæðingartíðni rætur að rekja til skipulagsmála?
    - Er borgarlínan orðin þráhyggja?


    Þessum spurningum er svarað hér.
    1 hr 2 min
  • #468 Sigurjón Þórðarson - Strandveiðar, stríð, hælisleitendur og kulnun
    Þórarinn ræðir við Sigurjón Þórðarson, alþingismann Flokks fólksins, um ýmis mál sem snúa að stjórnmálum á Íslandi Fyrst er rætt um strandveiðar en Sigurjón hefur oft verið nefndur í samræðum um þau mál vegna báts sem hann á og hann hefur nýtt til strandveiða.

    Þórarinn spyr hvort að hann sé ekki að ganga eigin erinda með því að auka strandveiðikvótann og tekist er á um það. Sigurjóni þykir vegið að tungumálinu í íslensku samfélagi í dag og segir hann nauðsynlegt að þeir sem sinni þjónustu á Íslandi tali íslensku. Hann segir að leigubílamálin séu komin út í óefni og að einn angi þeirra sé tungumálið en ekki síður ofbeldismál sem myndbönd hafa náðst af undanfarið þar sem erlendir leigubílstjórar hafa hagað sér misjafnlega.

    Þar að auki er rætt um hælisleitendamálin, stríðið fyrir botni Miðjarðarhafs, hvort að Ísland eigi að taka á móti fleiri Palestínumönnum, kulnun, menntamál og margt fleira.

    - Var Sigurjón að moka undir eigin rass í strandveiðimálinu?
    - Á að banna leigubílstjóra sem tala ekki íslensku?
    - Á Ísland að taka á móti flóttafólki frá Palestínu?
    - Hvað er kulnun í starfi?
    - Eigum við að breyta okkar gildum til að komast til móts við fólk sem hingar leitar?

    Þessum spurningum er svarað hér.

    Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:

    www.pardus.is/einpaeling 

    eða 

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: 
    Rkn. 0370-26-440408
    Kt. 4404230270 
     
    Samstarfsaðilar: 
    Poulsen 
    Happy Hydrate 
    Bæjarins Beztu Pylsur 
    Alvörubón 
    Fiskhúsið
    1 hr 6 min

More shows like Ein Pæling

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

31 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners