Ein Pæling

Ein Pæling

By Thorarinn HjartarsonSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    25

    Followers

  • Typical duration

    68 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Ein Pæling episodes

  • #19 Cultural appropriation og rasismi á Íslandi (Viðtal við Sunnu Sasha Larosiliere)
    Kristín, Sunna og Þórarinn ræða um menningarnám (cultural appropriation) og fara yfir þau ýmsu álitamál sem að málinu snúa. Þau ræða íþróttir, hrekkjavökubúninga, fastar fléttur og fleira. Hefði Dagbjört Rúriks átt að biðjast fyrirgefningar fyrir að fá sér fastar fléttur? Hefði Pétur Jóhann átt að biðjast fyrirgefningar fyrir það að gera grín að asískum vændiskonum? Þríeykið reynir að svara þessum spurningum.
    1 hr 16 min
  • #18 Rasismi, óeirðir og mótmæli (Viðtal við Sunnu Sasha Larosiliere)
    Sunna Sasha Larosiliere er blönduð stelpa sem ólst að hluta til upp í Bandaríkjunum. Hún er stjórnmálafræðingur og með mastersgráðu í krísustjórnun. Kristín og Þórarinn ræða við hana um rasisma í Bandaríkjunum, óeirðirnar og mótmælin í kringum morðið á George Floyd og fleira. Viðtalið er nokkurskonar framhald af þarsíðasta viðtali þar sem aðrir vinklar eru skoðaðir.
    1 hr 46 min
  • #17 Forsetaframbjóðandinn Guðmundur Franklín (Viðtal við Guðmund Franklín)
    Þórarinn ræðir við Guðmund Franklín forsetaframbjóðanda. Viðtalið er stutt og fer þorri þess í að rýna í pólitískar skoðanir Guðmundar á hinum ýmsu málefnum. Stefna hans er að efla forsetaembættið með því að nýta málskotsréttinn í meira mæli en fyrrum forsetar. Þeir ræða innflytjendamál, efnahagsmál, jafnréttismál, loftslagsmál og hvaða alþingismann Guðmundur myndi kjósa sér til þess að prófa ayahuasca í sumarbústað.
    24 min
  • #16 Lögregluofbeldi og morðið á George Floyd
    Í þessum þætti ræða Kristín, Þórarinn og Eyþór lögregluofbeldi og morðið á George Floyd. Þau velta fyrir sér hugmyndafræði Black Lives Matter, dyggðarskreytingu fjölmiðla og black out tuesday, hvort rasismi sé meiri á Íslandi eða í Bandaríkjunum og hvaða áhrif mótmælin og óeirðirnar munu koma til með að hafa á framtíðina.
    1 hr 59 min
  • #15 Fitufordómar (Viðtal við Töru Margréti og Ernu Kristínu)
    Kristín og Þórarinn ræða við Töru Margréti og Ernu Kristínu um fitufordóma. Fyrst fara Tara og Erna yfir skilgreiningu fitufordóma og hvaða áhrif þeir hafa á samfélagið í heild. Rætt er um álitamál heilbrigðisvísindanna, holdarfar og hamingju, offitu barna, hvort það megi gera grín að feitum og ummæli Kára Stefánssonar um greindarvísitölu fólks í offitu.
    1 hr 23 min
  • #14 Hver er Brynjar Níels? (Viðtal við Brynjar Níelsson)
    Í þessum þætti kynnast Þórarinn og Eyþór Brynjari Níelssyni. Í fyrstu er rætt um upphaf Brynjars í stjórnmálum og álit hans á ýmsum efnum. Þaðan er lagt í umræður um fíknivanda, hugsunastjórnun, akademíuna, fóstureyðingar og aðgerðir stjórnvalda á tímum Covid-19. Að lokum er Brynjar spurður hverjum hann myndi bjóða í eftirparty og hverjum hann myndi síst vilja fara með í sumarbústaðarferð.
    1 hr 4 min
  • Podcastumræður #1 - Yuval Noah Harari og Sam Harris
    Kristín og Þórarinn prófa örlítið nýtt í þessum þætti. Þau ræða mismunandi hugmyndir sem komu fram í hlaðvarpi Sam Harris þar sem hann ræðir við Yuval Noah Harari. Hlaðvarpið nefnist Making Sense Podcast og er þátturinn númer 201. Umræðuefnin eru breyttar hugmyndir um dauðann, vald og ný gildi á tímum covid, stöðu alþjóðasamskipta, samfélagslegan klofning og jákvæðar hliðar þjóðernishyggju, og að lokum framtíð menntunar.
    38 min
  • #12 Covid 19 - Efnahagur, heimspeki og fleira
    Þórarinn, Eyþór og Ívar Elí ræða Covid 19 og áhrif þess. Tekist er á um hvort að "sænska leiðin" sé rétta svarið og hvaða afleiddu afleiðingar það mun koma til að hafa á efnahag þróunarlanda. Þeir ræða hlutabótaleiðina, hegðun fyrirtækja á opinberum markaði og hvaða áhrif það muni hafa á stjórnmál á Íslandi í náinni framtíð. Að lokum er heimspeki rædd og reynt að finna svar við hvers virði mannslíf eru.
    heimspeki
    efnahagur þróunarlanda
    efnahagur íslands
    stjórnmál
    sænska leiðin
    vald
    1 hr 26 min
  • #11 Fjölmiðlar og pólitískur rétttrúnaður (Viðtal við Jakob Bjarnar Grétarsson)
    Að þessu sinni fá Kristín og Þórarinn blaðamanninn Jakob Bjarnar Grétarsson í hlaðvarpið til að ræða um fjölmiðlun og pólitískan rétttrúnað. Þættinum er skipt í þrjá hluta. Fyrst verður rætt um siðferði og skyldur blaðamanna, æsifréttir, "clickbait" og áhrif samfélagsmiðla. Í öðrum hluta ræða þau um pólitískan rétttrúnað í blaðamennsku, femínisma, #MeToo-byltinguna, fóstureyðingar, fitufordóma, akademískar stofnanir og tjáningarfrelsi. Að lokum lýsir Jakob skoðunum sínum á vanköntum fjölmiðlafrumvarpsins sem Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra lagði fram nýverið og á sérstöðu Ríkisútvarpsins, RÚV.

    Þríeykinu tekst að koma höggi á nánast alla og ættu allir hlustendur að geta móðgast yfir einhverju.
    1 hr 36 min

More shows like Ein Pæling

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

31 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners