Vestrænum neytendum er loks að verða ljóst þau áhrif sem skammvinnar tískubylgjur og tilheyrandi kaup og farganir klæða hafa í för með sér, á fólkið sem saumar fötin og á umhverfið. Á sama tíma gerir menning samfélagsmiðla miklar kröfur til útlits og klæðaburðar þar sem sömu fötin eiga helst ekki að sjást oftar en einu sinni. Hvað er til ráða? Eitt svarið, er stafræn tíska en sitt sýnist hverjum.
Við heyrum fréttir af hellamálverkum frá Indónesíu sem má segja að séu elstu dýralífsmyndir heims.
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir flytur okkur pistil í Lestinni á þriðjudegi. Undanfarnar vikur hefur hún fjallað um ýmis mál sem tengjast réttindabaráttu hinsegin og transfólks, kynrænt sjálfræði og kynjaða sundklefa. Að þessu sinni fer hún með okkur í fyrsta tímann sinn hjá geðlækni og rifjar upp misþægilegar spurningar sem hún fékk frá honum.
Og við kynnum okkur baksögu vinsælasta lags ársins sem er ekki á neinum vinsældalistum: Soon May the Wellerman Come.