Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að elstu ljósmyndum okkar Íslendinga, „ógeðslegu samfélagi“ innan gæsalappa, og hinu guðlega, hinu forna og hinu kvenlega. & again it descends to the earth, og aftur stígur það niður til jarðar, er yfirskrift sýningar listakonunnar Kathy Clark sem hefst í Stúdíó Sol um helgina. Í innsetningunni vinnur listakonan með hið forna, guðlega og kvenlega, allt í nýju sýningarrými Dariu Andrews sem jafnframt er heimili hennar. Lestin lítur við í Studio Sol í dag. Nú eru 180 ár frá því að Dagúerreótýpan var kynnt heiminum - með þeirri tækni breiddist ljósmyndin út meðal almennings og síðan þá hefur miðillinn hægt og rólega þróast yfir í það sem við þekkjum mætavel í dag - meðal annars þessa laufléttu myndavél í snjallsímum okkar. Í þætti dagsins verður hugað að því hvernig við lesum í og nálgumst ljósmyndir almennt. Við heimsækjum Ljósmyndasafn Íslands, stofnun sem hefur að geyma sex og hálfa milljón ljósmynda úr íslensku þjóðlífi, og má rekja elstu ljósmynd okkar Íslendinga til sirka 1850. Meira um það hér á eftir.
Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur fjallar um hvort og þá hvers vegna Ísland er „ógeðslegt samfélag“?
Umsjónarmenn: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Anna Marsibil Clausen.