
Sign up to save your podcasts
Or


Nú er skammt stórra högga á milli og Endalínan gerir hér upp 16.umferðina ásamt því að skoða loksins lokaleik 11.umferðarinnar sem fór fram í byrjun vikunnar. Engin vörn og hátt stigaskor, ekkert líf í Valsmönnum , LeDay vindmillaði sig í fyrsta leik með Grindavík , Ólseigir Stjörnumenn og Tomsick skorar bara með mann í grímunni. BudLight speki vikunnar er á sínum stað tileinkuð einum besta körfuboltamanni sögunnar. Endalínan fyrir körfuboltafjölskylduna í boði BudLight , WhiteFox og PodcastStöðvarinnar ! #Endalinan #BudLight #WhiteFox
Endalínan fer af krafti í öll stóru máli eftir 15.umferðina. Uppgjör toppliðanna í Blue Höllinni - dýr àkvörðun að brjóta! Valsarar spila bara vel á móti Stólunum, Kovac er mættur, KR - diesel vélin að komast í gang og Grindavík slakasta liðið í deildinni? Tveir síðustu meðlimir Brauðkaupsliðs fyrri hlutans fengu verðlaunin sín fyrir leikinn í Keflavík!
Þetta og auðvitað miklu meira þegar 15. Umferðin er gerð upp í boði Podcaststöðvarinnar, BudLight og WhiteFox! #Endalinan #Podcaststodin #BudLight #Whitefox #Korfubolti
Í vikunni var "hinn klassíski" spilaður í ljónagryfjunni í Njarðvík, akkúrat 20 árum eftir að Örlygur Aron Sturluson féll frá og var Ölla minnst með fallegri stund og frábærum leik. Reykjavíkurliðin spiluðu innbyrðis og Stjarnan og Tindastóll mættust í Garðabæ. Þórveldin mættust á Akureyri. Risastór umferð og leikar æstust heldur betur á botninum! Mikið fjör framundan! Bud Light, Whitefox og Podcaststöðin bjóða þér upp á rúmar 90 mínútur af fjöri! #Podcaststodin #BudLight #Whitefox #Korfubolti #Endalinan
Endalínan lagði á sig roadtrip í blindbyl til þess að geta gert upp 13.umferðina á heimavellinum , Podcaststöðinni. Þrotaframmistaða Reykjavíkurliðanna , Tindastóll annað lið í Síkinu , Njarðvík féll á prófinu og nágrannaGLÍMA í Keflavík. Þórsarar frá Akureyri með statement og framhaldið verður bara æsilegra. Allt þetta og BudLightSpeki vikunnar á sínum stað ásamt White Fox Varamanni umferðarinnar.
#Endalinan #BudLight #WhiteFox
Endalínan er mætt á nýju ári og gerir upp 12.umferðina. Mikið um ný andlit í deildinni og margir áhugaverðir leikir. Pavel fann sjálfan sig í Barcelona , Fjölnir fer beint í 1.deild aftur , Pablo og föruneyti Þórsara frá Akureyri halda sér á lífi og Keflavíkur Hraðlestin á fullri ferð. Við ræðum um alla leikina og öll stóru atriðin og spáum aðeins í spilin fyrir næstu umferð. Allt þetta og meira til í boði Podcast Stöðvarinnar , Bud Light og White Fox !!
#Endalinan #BudLight #WhiteFox
Endalínan mætir og gerir upp fyrrihluta tímabilsins 2019-2020 með stæl!
Whitefox varalið fyrrihlutans, Brauðkaups lið fyrrihlutans ásamt Brauðkaups og AIR þálfara og AIR leikmanni fyrrihlutans! Bud Light speki vikunnar í áramóta gír og margt, margt fleira í boði Podcaststöðvarinnar, Whitefox, Bud Light, Brauðkaups og AIR smáralind! Veisla sem gefur og gefur!
Gleðilegt ár kæru hlustendur, takk fyrir okkur og heyrumst fersk á nýju körfubolta ári, lifið heil!
#Endalinan #Podcaststodin #Korfubolti #BudLight #Whitefox #Braudkaup #AirSmaralind
Endalínan leitaði til fyrrum leikmanns Keflavíkur, Tindastóls og Þór Akureyri Þrastar Leó og fékk hann til að rýna í 11. umferð úrvalsdeildar karla. Vinnur Grindavík á Sauðárkróki, hvort lið séra Friðriks rífur sig í gang? Fella Þorlákshafnar Þórsarar annan suðurnesjarisa? Síðasta umferð fyrir jól svo við spáum í hvort liðin í deildinni eigi eftir að gera einhverjar breytingar þegar glugginn opnar. Allt í boði Podcaststöðvarinnar, Bud Light og Whitefox!
Stiklað á stóru eftir 10. umferð úrvalsdeildar karla. Hrafn Kristjánsson þjálfari Álftanes og fyrrverandi Íslandsmeistari með KR og bikarmeistari með bæði KR og Stjörnunni kemur til okkar og rýnir í stöðuna og gefur okkur Bud Light speki vikunnar! Nýr styrktaraðilli kynntur til leiks fyrir heilsueflingu Endalínunnar, Whitefox! Stjarnan að styrkjast, KR og Valur ekki að heilla og var eitthvað athugavert við leik ÍR og Tindastóls? Alltaf nóg að gera á Endalínunni!
#Podcaststodin #Endalinan #Korfubolti #BudLight #Whitefox
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

5 Listeners

140 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

91 Listeners

17 Listeners

17 Listeners

27 Listeners

67 Listeners

21 Listeners

17 Listeners

15 Listeners

12 Listeners

1 Listeners