
Sign up to save your podcasts
Or


Kæru hlustendur , Endalínan er mætt aftur með látum en nú er komið að 1 á 1 með töframanninum og stórskyttunni Magnúsi Þór Gunnarssyni , MG10 ! Maggi Gunn var á sama tíma einn elskaðasti leikmaður deildarinnar hjá sínum aðdáendum en á sama tíma einn sá óvinsælasti enda keppnismaður mikill og fjandsamlegir áhorfendur voru eitthvað sem dró fram það allra besta hjá þessum frábæra leikmanni. Maggi var ungur farinn að láta til sín taka og þekkja allir skottækni hans og 3ja stiga bomburnar sem komu úr öllum áttum. Við rennum yfir ferilinn , erfiðu töpin , sætu sigrana , titlana , Evrópukeppnirnar, mótiveringuna , baktalið , þyngdina, félagaskiptin , föðurmissinn , stjörnustríðið og leikbönnin. Hreinskilið spjall með einum litríkasta körfuboltamanni þjóðarinnar í boði Bud Light og White Fox á PodcastStöðinni. #Endalinan #BudLight #WhiteFox
Endalínan er mætt aftur með eldheitt götuslúður og fer yfir það sem búið er að gerast og það sem er líklegt að gerist og lesum í stöðuna eftir því. Kvennakarfan í KR , Böddi formaður ekki með allt á hreinu ? Fer Gerald í Keflavík ? Verður íslenskt big man camp í Ólafssal ? Nóg til af peningum í Skagafirði ? Baráttan um Vatnsmýrina , KR og Valur að berjast um stóra bita ! Allt þetta og aðrar óábyrgar fabúleringar ásamt því að við tökum stöðuna á Jóni Axeli frá Davidson þar sem hann er að æfa á fullu og koma sér á framfæri við NBA lið en NBA draftið fer fram þann 25.júní nk. Að lokum ákváðum við að reyna við smá leynigest og hringdum í Martin Hermannsson sem er með liði sínu Alba Berlin í undirbúning fyrir hraðmót til þess klára þýsku Búndeslíguna. Martin , sem er klárlega einn mesti aðdáandi Endalínunnar , var á léttu nótunum og fór yfir hlutina og hvernig framhaldið blasir við þessum besta körfuboltamanni okkar Íslendinga um þessar mundir.
Endalínan í boði BudLight og WhiteFox á PodcastStöðinni !
Dómarinn, Eftirlitsmaðurinn, Fyrrum stjórnarmaður KKÍ og formaður dómaranefndar en umfram allt körfubolta áhugamaðurinn Rúnar Birgir Gíslason var gestur vikunnar á Endalínunni. Rúnar Birgir er Skagfirðingur sem er flestum kunnugur í körfuboltaheiminum hér á landi þó svo að hans tími sem leikmaður í körfubolta sé ekki viðamikill. Hann hefur verið viðloðinn dómgæslu frá árinu 1994 og verið í mörgum störfum innan körfuboltahreyfingarinnar síðustu 25 árin. Rúnar fer með okkur í gegnum þetta ferðalag og talar við okkur um dómgæsluna , fyrsta leikinn í flauelsbuxunum , gráu gallana, framfarirnar, ritaraborðin og hvernig það er að vera dómari og hvaða vinna liggur þar að baki. Einnig er Rúnar hafsjór af fróðleik um íslenskan körfubolta og er mikill grúskari sem á tölfræði yfir ótrúlegustu hluti sem við förum aðeins yfir , sem dæmi tölfræði um tæknivillur og U-Villur sem er virkilega áhugaverð og svo hvaða leikmaður hefur fallið oftast úr úrvalsdeild karla. Við fáum hann svo að lokum til að segja okkur frá bókinni sem hann er að vinna að ásamt félaga sínum Gunnari Frey Steinssyni, en þeir eru að kryfja sögu íslensks körfubolta og við fáum smá innsýn inní þessa vinnu. Allt þetta og meira til í frábæru spjalli beint úr WhiteFox stofunni í boði Podcast Stöðvarinnar , BudLight og WhiteFox.
Endalínan er mætt aftur í venjulegri mynd þar sem Rúnar , Gunnar og Halldór ræða saman um málefni líðandi stundar í íslenskum körfubolta. Eftir að tímabilið endaði vegna Covid-19 hefur tekið við eitt viðburðarríkasta vor í þjálfara og leikmannamálum í manna minnum. Stóru málin , staðfestu fréttirnar og allt slúðrið beint úr White Fox stofunni þar sem öllu mögulegu er hent fram , án ábyrgðar ! Þjálfarakapallinn á fullri ferð , hnífstungur í bakið og óheiðarleg vinnubrögð. Hvar endar Craion ? B5 í Skagafjörðinn ? Dani Rodriguez hætt ? Kiddi Páls ? Siggi Þorsteins ? Ofurdýr Pryor og Raggi Nat í tækfifærisleit! Allt þetta og meira í óábyrgum fabúleringum um SillySeasonið í boði Bud Light og White Fox á Podcaststöðinni ! I love this game !
Kæru hlustendur , Endalínan var á ferð og flugi í dag og skipti aðeins um stefnu. Endalínan fékk þá Kjartan Atla og Garðar Örn , til þess að ræða um sögu Körfuboltakvölds. Öll körfuboltafjölskyldan þekkir Körfuboltakvöld og hvernig sú umfjöllun sem Stöð2 Sport hefur tileinkað körfuboltanum síðustu 5 árin hefur lyft íþróttinni upp á annað plan. Garðar fer yfir hvernig þetta allt saman byrjaði og hvernig Kjartan var fenginn inní teymið en á þeim tíma var hann , eins og aðrir sem komu að þáttunum nánast reynslulaus í gerð sjónvarpsþátta. Sagan , hugmyndirnar , sérfræðingarnir , liðsheildin , gagnrýnin , bensín brúsinn og skíða gríman. Allt þetta í geggjuðum þætti þar sem KJ og Humble G gefa hlustendum afar skemmtilega innsýn inní hugmyndafræði og gerð þáttanna sem við öll horfum á , á hverju föstudagskvöld á meðan körfuboltatímabilið er í gangi. Endalínan í boði BudLight og WhiteFox á bestu stöðinni - #PodcastStodin #BudLight #WhiteFox
Anna María Sveinsdóttir kæru hlustendur , goðsögn í íslenskri körfuboltasögu. Anna María var á toppnum í íslenskum kvenna körfubolta í yfir 2 áratugi og að fara yfir hennar viðurkenningar þyrfti lokaritgerð í háskólanum, körfuboltakona aldarinnar er kannski nóg. Hún mætti í WhiteFox stofuna og fór yfir sitt ferðalag í gegnum tíðina svona eins og hægt er í einum þætti og ræddi um nokkur golden moments. Titlarnir , úrslitaleikirnir, Írlandsævintýri, miðjuskotin , liðsheildin og straujaða skyrtan hennar Erlu Reynis. Anna ræddi einnig við okkur um stöðu kvennakörfunnar og íslensks körfubolta og hversu mikið hefur breyst á 36-37 árum frá því hún byrjaði í meistaraflokki. Endalínan í boði PodcastStöðvarinnar , BudLight og WhiteFox.
Kæru hlustendur , Sigurður Gunnar Þorsteinsson aka Ísafjarðartröllið aka BigCountry mætti í WhiteFox Stofuna og fór yfir allt það helsta. Meiðslin í vetur og launavesen , réttur íþróttamanna , ferðalagið í gegnum ferilinn og svo margt margt fleira. Góðu tímana og þá slæmu, viðtal ársins með Gaupa, landsliðs vonbrigðin og ævintýralega úrslitakeppnin með ÍR 2019. Siggi er öllum körfuboltaáhugamönnum kunnugur enda búinn að vera í baráttunni ansi lengi þrátt fyrir ungan aldur en þessi ,,Blíði Risi,, er einungis 32 ára. Gjörið svo vel !
1 á 1 serían á Endalínunni í boði BudLight , WhiteFox og PodcastStöðvarinnar. #Endalinan #BudLight #WhiteFox #PodcastStodin
Liðin í Dominos deildinni eru byrjuð að safna í lið fyrir næsta tímabil og stærsti bitinn á markaðnum hlýtur að hafa verið maðurinn sem við völdum besta leikmann bæði um áramót og í lok tímabilsins, Dominykas Milka. Hann mætti og spjallaði við okkur um ferilinn allt frá uppvextinum í Litháen í gegnum skóla árin í USA og svo atvinnumannaferillinn sem er merkilegur í meira lagi. Hann segir okkur frá liðunum sem höfðu samband við hann eftir tímabilið og afhverju hann ákvað að halda tryggð við Keflavík. Geggjaður karakter og frábær leikmaður í 1 á 1 Endalínunnar. #Endalinan #UnfinishedBuisness #BudLight #WhiteFox #PodcastStodin
Núna er vorið að koma og sá sem hefur verið hvað hrifnastur af vorinu á síðasta áratug er klárlega þjálfarinn Finnur Freyr Stefánsson. Finn þarf ekki að kynna fyrir körfuboltafjölskyldunni en hans ótrúlega afrek að vinna 5 titla á 5 árum með KR er eitthvað sem erfitt verður að leika eftir. Við förum yfir ferilinn , uppvöxtinn í Vesturbænum og hvernig þessi gösslari fór úr því að vera leikmaður í að hella sér alfarið í þjálfun og hvernig hans vegferð hefur verið frá því hann kom fyrst inní mfl KR sem 21 árs aðstoðarþjálfari. Finnur fer með okkur í gegnum þetta ferðalag , skapið , áskoranirnar , leikmennina , sigrana og stóru momentin sem hafa búið til stórveldið KR undanfarin ár. Allt þetta í 1 á 1 á Endalínunni beint úr höfuðstöðvum PodcastStöðvarinnar í boði BudLight og Whitefox ! #Endalinan #BudLight #WhiteFox
Endalínan er mætt og heldur áfram með 1á1 seríuna. Næsti gestur okkar er Brenton Birmingham !
Brenton ætti að vera öllum körfuboltaáhugamönnum hér á landi vel kunnugur enda spilaði hann í deildinni í 12 ár frá 1998-2010. Jón Arnór Stefánsson sagði í viðtali í vikunni að Brenton væri að hans mati besti Bandaríkjamaðurinn sem hefði spilað í deildinni hérna heima. Fullmannaðir í WhiteFox stofunnni förum við yfir ferilinn með Brenton , frá upphafsárunum í New York og hvernig ferðalagið hans endaði á Íslandi. Hann er klárlega leikmaður sem hefði getað farið á stærri vettvang í Evrópu en meiðsli settu strik í reikninginn. Hann hefur verið valinn besti leikmaður deildarinnar 3x , 2x sem Íslendingur og einu sinni sem kani en þessi ótrúlegi leikmaður lék alls 7 sinnum í lokaúrslitum af 11 tímabilum hans í deildinni hérna heima. Kæru hlustendur , Brenton Birmingham , gjörið þið svo vel !
#Endalinan #BudLight #WhiteFox
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

5 Listeners

140 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

91 Listeners

17 Listeners

17 Listeners

27 Listeners

67 Listeners

21 Listeners

17 Listeners

15 Listeners

12 Listeners

1 Listeners