Endalínan

Endalínan

By PodcaststöðinSportsBasketball
Download on the App Store

Endalínan episodes

  • 63. Þáttur - And 1 Ref !

    Baby Baby , þrátt fyrir að veðurguðirnir séu aðeins farnir að setja strik í reikninginn þá var hægt að klára umferð í kvöld og við höldum áfram að sjá áhugaverð úrslit. Endalínan kiknar ekkert undan álaginu í WhiteFox stofunni  og tekur á helstu sögulínunum úr leikjum umferðarinnar á mannamáli. Vonlausir Valsmenn , Hester er svarið , Sjóðandi Þórsarar skutu ÍR-inga í kaf , Haukarnir þurfa kana og það strax , útafakstur á Austfjörðum og ónýtur leikur í Keflavík.  Það er ekki töluð vitleysan á Endalínunni sem fyrr , allt þetta og auðvitað Kalda Spurningin á sínum stað í boði Kalda Bruggsmiðju og White Fox á PodcastStöðinni. 

    #Endalinan #Kaldi #WhiteFox #Baby #And1Ref #BannadAdHanga

    1 hr 31 min
  • 62. Þáttur - Rifrildi og Sleggjudómar

    Það var heldur betur nóg af heitum umræðuefnum eftir þessa umferð í Dominos Deild Karla. Virkilega áhugaverðir leikir í þessari umferð sem endaði síðan með El Clasico í Ljónagryfjunni. Það má segja að Endalínumenn hafi ekki verið sammála í þetta skiptið um ákveðin atriði en svona er jú körfuboltinn. Mjólkurmaðurinn óstöðvandi , Vængbrotið Stjörnulið , Small Ball vann sóknarstríðið í Vesturbæ og KP8 á eldi með Grindavík. Allt það helsta , öll stóru atriðin og auðvitað Kalda spurningin á sínum stað. Getur Small Ball unnið titilinn , er Tomsick rétti maðurinn fyrir Tindastól ? Þessu er svarað á Endalínunni í boði Kalda og White Fox.

    #Endalinan #Kaldi #WhiteFox #PodcastStodin

    2 hr 4 min
  • 61. Þáttur - Síkið í ljósum LOGA !

    Það er stutt á milli stríða þessa dagana , veislan heldur áfram og það fer ekkert framhjá neinum að deildin er farin af stað aftur , það er flugeldasýning nánast á hverju kvöldi. Endalínan gerir upp 3.umferðina að venju beint úr WhiteFox Stofunni. Sjóðheitir ÍR-ingar , dósasöfnun á Austurlandi , Suðurlandsskjálfti í höfninni , Allt er fertugum fært og það var persónulegt stríð í Origo. Frábær umferð að baki og nóg um að ræða. Ætlar Tindastóll að fara spila einhverja vörn ? Eru Hattarmenn númeri of litlir enn eitt skiptið í efstu deild ? Þetta og svo miklu miklu meira eins og alltaf á Endalínunni í boði Kalda Bruggsmiðju og WhiteFox á Podcaststöðinni.

    #Endalinan #Kaldi #WhiteFox

    1 hr 54 min
  • 60. Þáttur - Engu gleymt , nema vörninni !

    Endalínan er loksins mætt til þess að ræða um alvöru körfuboltaleiki aftur. Endurkoma Dominos deildarinnar eftir langa Covid pásu var heldur betur mögnuð en 2.umferð deildarinnar lauk í kvöld. Of litlir búningar , ofurhetja í Vesturbænum , sigur hjá pirrandi Tindastólsliði, allt er fertugum fært, KR bragur í Valsbúning og svo mikið mikið meira. Við félagar gerðum upp alla 6 leikina og fórum yfir allt það helsta ásamt því að spá aðeins hvernig framhaldið mun líta út. Það er stutt á milli stríða núna þannig það er um að gera drekka í sig meiri körfuboltaumfjöllun og vera tilbúin í næstu veislu.

    Í boði Kalda Bruggsmiðju og White Fox. #Endalinan #Kaldi #WhiteFox #PodcastStodin

    1 hr 56 min
  • 59. Þáttur - LOKSINS ! LOKSINS !

    Kæra Körfuboltafjölskylda , það er komið að þessu - Aftur á parketið , AFTUR ! 

    Eftir góðar fréttir sl. föstudag er ljóst að við getum hafið keppni að nýju í boltanum hérna heima. KKÍ hefur gefið út nýtt leikskipulag fyrir komandi mánuði og búið að þétta þetta ansi mikið og lengja tímabilið fram á mitt sumar. Endalínan kom saman í WhiteFox stofunni og heyrðum við í mótastjóra KKÍ , Snorra Erni , og spurjum hann útí síðustu mánuði og hvernig þetta hefur allt komið heim og saman og hvaða svigrúm er til staðar ef frekari frestanir verða. 

    Við förum yfir leikina í næstu umferð sem fram á fimmtudag og föstudag og rýnum í breytingar sem hafa orðið á liðunum og hvernig við sjáum þetta fyrir okkur á nýju ári eftir rúmlega 3ja mánaða pásu. 

    Eins og áður er þetta allt saman í boði Kalda Bruggsmiðju og Nicoland.is . 

    #Endalinan #Kaldi #WhiteFox #PodcastStodin

    1 hr 2 min
  • 58 . Þáttur - Gullleikirnir vol 1 - Bikarúrslit 1999

    Þann 6. febrúar 1999 léku Keflavík og Njarðvík í bikarúrslitum. Hægt er að færa rök fyrir því að þetta tímabil hafi verið hápunktur rígsins sem hefur verið á milli liðanna frá fyrstu tíð.

    Endalínan sló á þráðinn til nokkurra lykilmanna leiksins og heyrði hvað þeir höfðu að segja núna tæpum 22 árum eftir að leikurinn fór fram og er óhætt að segja að hann vekur enn upp stórar tilfinningar hjá mönnum. 

    Viðmælendur okkar eru þeir Teitur Örlygsson, Friðrik Ragnarsson, Hermann Hauksson, Friðrik Stefánsson og Brenton Birmingham úr Njarðvík ásamt þjálfaranum Friðrik Inga Rúnarssyni. Úr Keflavík heyrum við í þeim Fal Harðarsyni, Birgi Erni Birgissyni, Kristjáni Guðlaugssyni og Damon Johnson ásamt þjálfaranum Sigurði Ingimundarsyni.

    Einnig heyrum við í öðrum dómara leiksins, Leif Garðarssyni sem ræddi við okkur um reynslu sína af að dæma viðreignir Keflavíkur og Njarðvíkur auk þess að fara yfir stóru dómana úr leiknum og það var nóg af þeim!

    Að sjálfsögðu í boði Bruggsmiðjunnar Kalda þar sem jólavertíðin var að klárast svo nú er það bara rúta af ljósum Kalda í dós og svo allt litrófið frá Whitefox!

    Sérstakar þakkir til vina okkar hjá Sýn sem gáfu okkur leyfi til að nýta brot úr lýsingu þeirra Svala og Gaupa af leiknum til að stemmingin skilaði sér beint í þín eyru!

    Þið finnið allt þetta og svo miklu meira á podcaststöðinni!

    43 min
  • 57. Þáttur - Aftur á parketið !

    Kæru hlustendur, Endalínan er mætt í jólaskapi með JólaKalda og heldur áfram að breiða út fagnaðarerindið , íslenskan körfubolta. Þrátt fyrir að það séu ennþá hópar sem mega ekki æfa þá verðum við að fagna því skrefi að liðin í efstu deildunum megi komast aftur inná parketið og við vonumst eftir risavöxnu ári 2021. Við förum yfir stöðuna í dag og hvað þetta gerir fyrir liðin að mega koma saman á þessum tímapunkti, keppnisbann til 13.janúar og hvort það sé bjartsýni að klára öll mót og bikarkeppni og mögulega sumarhátið í júní ! Við förum yfir helstu leikmannafréttir og pælingar , Ingvi Þór er mættur í Ólafssal og spilar með Haukum eftir áramót og við tókum aðeins stöðuna á honum eftir heimkomuna frá Þýskalandi. Þetta og meira til , Kalda spurningin , Landsliðsumræða, útlendingabreytingar og aðrar fabúleringar beint úr Litlu White Fox stofunni. #Endalinan #KaldiBruggsmiðja #Nicoland #WhiteFox #PodcastStodin

    1 hr 2 min
  • 56.Þáttur - Alvarleg Þjóðarsál

    Vertu besta útgáfan af sjálfum þér ! Endalínan er mætt beint úr WhiteFox Stofunni í alveg fordæmalausu stuði  á þessum dimmu tímum. Við vöðum í stóru málin í boltanum með léttu Þjóðarsálar þema. Þjálfararnir Finnur Freyr og Hrafn Kristjáns taka stöðuna á Covid pásunni og æfingaleysinu - þarf að skilgreina afreksstarfið betur ? Á að leyfa mönnum að æfa ? Mögulega mikilvægt fyrir mótið að ná inn jólatörn ? Eru 1.deildirnar minna afreksstarf ? Við förum yfir þessi mál með þeim en þjálfarar liða í Dominos deildum karla og kvenna sendu erindi til stjórnvalda á dögunum sem var slegið af borðinu. Þjóðarsálin fer síðan alla leið á Austfirði og tekur Lagarfljótsormurinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson spjallið við okkur um risastórann sigur í máli hans gegn Körfuknattleiksdeild ÍR - RISA sigur fyrir Sigga og mjög stór dómur inní íslenskt íþróttalíf sem á klárlega eftir að hafa meiri áhrif í framtíðinni. Þetta og svo miklu meira , Kalda spurningin og klefasögur í boði Kalda Bruggsmiðju & White Fox á PodcastStöðinni.

    1 hr 29 min
  • 55. Þáttur - We talkin´ bout practice !

    Þá er Endalínan mætt aftur á þessum ótrúlega skrýtnu tímum þar sem deildirnar hérna heima eru bara í pásu og mikil óvissa um framhaldið. Við förum yfir stöðuna og mismunandi sviðsmyndir sem við sjáum fyrir okkur. Lið í útlendingabreytingum , verða deildirnar kláraðar 100% , verður bikarkeppnin canceluð ? Margt óljóst en við heyrðum frá Hannesi Jónssyni formanni KKÍ að það vilja allir byrja spila eins fljótt og hægt er. Við förum einnig yfir Landsliðin - búbbluna og fjörið hjá kvennaliðinu og veljum okkar 12 manna hóp fyrir karlana. Þetta allt og miklu meira körfuboltatengt á Endalínunni í boði Kalda, WhiteFox og PodcastStöðvarinnar.

    #Endalinan #Kaldi #WhiteFox #PodcastStodin

    1 hr 12 min
  • 54. Þáttur - 1 á 1 Pétur Guðmundsson

    Kæru hlustendur , Endalínan nýtti tækifærið í þessari Covid pásu og fékk Pétur Guðmundsson , körfuknattleiksmann 20.aldarinnar á Íslandi í spjall og létta yfirferð í gegnum ferilinn. Allt frá byrjuninni á Hlíðarenda 13 ára gamall og leiðin til LA þar sem hann var partur af Showtime liði Los Angeles Lakers með mönnum eins og Magic Johnson og Kareem Abdul Jabbar. Pétur spilaði 150 leiki í NBA deildinni með 3 mismunandi liðum og fræðumst við um hvernig var að upplifa þetta fyrir þennan 218cm Íslending en Pétur var á sínum tíma fyrsti Evrópumaðurinn sem var valinn í nýliðavali NBA. 

    Allt þetta og meira til á Endalínunni í boði Kalda Bruggsmiðju , WhiteFox og PodcastStöðvarinnar. 

    #Endalinan #WhiteFox #Kaldi #JolaKaldi

    1 hr 21 min

About Endalínan

From the publisher's feed

Beinskeytt umræða um íslenskan körfubolta.

Best of Endalínan

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Endalínan

Karfan by Karfan

Karfan

5 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

27 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Boltinn Lýgur Ekki by SiggiOrri

Boltinn Lýgur Ekki

1 Listeners