
Sign up to save your podcasts
Or


Það voru sko senur í þessari 18.umferð sem var að klárast ! Sigurkörfur , misheppnaðar lokasóknir , mikilvæg víti , framlenging en einnig einhver ,,blowout,, ! Já þessi umferð bauð uppá allt á milli himins og jarðar í boltanum hérna heima og auðvitað fer Endalínan í alla þessa leiki og tæklar stóru málin. Hvað gerðist í Ljónagryfjunni ? LokaPlay sem var ekkert play , ÍR ingar með bakvörðinn Svonko misstu móðinn í framlengingu gegn toppliði Keflavíkur , Saddir Þórsarar frá Akureyri tapa 2 í röð með samtals 80 stigum , Grindavík og Stjarnan óspennandi og ólseigir Haukamenn tóku gamla góða buzzerinn og fóru skellihlæjandi með Sæba á fullri ferð úr Vesturbænum með 2 stig í farteskinu. Þetta og svo miklu meira , Kalda spurningin og tónlistahorn GunnaStef þar sem hann fer yfir okkar menn í Oblivion á Endalínunni í boði Kalda , WhiteFox , Cintamani !!
Fyrsta umferð eftir enn eina Covid pásuna og deildin verður bara sturlaðari með hverri umferðinni!
Keflvíkingarnir færðust skrefi nær deildarmeistaratitli og baráttan á botninum varð enn harðari.
Menn sem hefur verið saknað í allan vetur létu sjá sig.
Bókstaflegir dómarar.
Þetta og margt fleira í boði Bruggsmiðjunar Kalda, Whitefox og Cintamani í þráðbeinni á Podcaststöðinni!
LOKSINS ! Þá er komið að þessu kæru hlustendur , lokakaflinn á einni svakalegustu deildarkeppni í sögu íslensks körfubolta fer af stað í vikunni. 6 umferðir á örfáum dögum til þess að skera úr um það hverjir fá heimavallarrétt , hverjir komast í playoffs og hverjir ná að bjarga sæti sínu í deild þeirra bestu. Þetta er allt að fara af stað eftir enn eitt íþróttastoppið hér á landi og fer Endalínan yfir næstu umferð og spáir í spilin. Voru lið að æfa í kontakt allan tímann ? Mun það hafa áhrif ? Hverjir græddu mest á hvíldinni ? Getur stoppið hægt á flugi sumra liða? Já við svörum þessum spurningum beint úr WhiteFox stofunni. Allt þetta og svo miklu meira, Kalda spurningin og Tónlistahorn Gunna Stef í boði Kalda , WhiteFox , Cintamani og OnlyFans !
Kæru hlustendur , það var heldur betur fjör í WhiteFoxStofunni þegar Hermann Helgason mætti á Endalínuna og tók þátt í að kryfja fjármála umhverfið í íslenska körfuboltanum. Hemmi Helga eins og hann er yfirleitt kallaður er einn eiganda S4S ( m.a. AIR búðirnar, Steinar Waage , Ellingsen & skor.is ) og þekkir því umhverfi fyrirtækjaeigenda og styrktaraðila en jafnframt er hann með mikla reynslu úr stjórnarstörfum hjá körfuboltanum og fótboltanum í Keflavík. Endalínan fór í rannsóknarvinnu og fengum við formenn flestra liða í Dominos deildinni til þess að svara spurningum um reksturinn , hvernig gengur að fjármagna , hvernig er umhverfið núna og hvað kostar það að halda úti alvöru liði í Dominos deildinni. Við ræðum fjármálin og skoðum þetta frá nokkrum sjónarhornum ásamt því að skoða hvar körfuboltinn stendur í samanburði við aðrar íþróttir hér á landi þegar kemur að aðstöðu og aðbúnaði leikmanna en leikmenn tala oft um að það séu einmitt litlu hlutirnir í kringum umgjörð félaganna sem skipta mestu máli. Allt þetta og meira til eins og vanalega í boði Kalda Bruggsmiðju - WhiteFox - Cintamani.
#MoneyTalks #Endalinan #Kaldi #WhiteFox #Cintamani #PodcastStodin
1 á 1 með Israel Martin ! Israel tekur slaginn á Endalínunni og talar hreint út um hvernig þetta tímabil var í Hafnarfirðinum áður en hann var látinn fara á dögunum. Leikmannamál , meiðslavandræði , koma og brottför Ingva Guðmundssonar , endalokin , ferillinn , virkar 12 manna rótering á Íslandi ? Virkar að hafa tvo kana þegar bara 1 má vera inná vellinum hverju sinni ? Hvað er næst hjá Israel Martin?
Við förum ofan í þessi mál beint úr WhiteFox stofunni í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani.
Eins og páskarnir áttu að vera mikil körfuboltahelgi hérna heima þá þarf körfuboltafjölskyldan að láta sér nægja að fylgjast með körfubolta annarsstaðar úr heiminum þessa páskana og bíða og sjá hvað gerist með Íslandsmótið hérna heima. Endalínan tekur þó ekkert páskafrí og er mætt í WhiteFoxStofuna og kafar ofan í þessa mótamál sem allir eru að hugsa um þessa dagana. Við hringdum í manninn sem þekkir allar sviðsmyndirnar, Snorra Örn mótastjóra KKÍ , og fengum hann til að fræða okkur um hina ýmsu möguleika og líka alla þá óvissuþætti sem við stöndum frammi fyrir með mótahaldið eins og staðan er í dag. Er hægt að klára deildina ? Förum við beint í playoffs ? Er bikarinn alveg off ? Fáum við að spila eitthvað yfir höfuð ? ... Já stórar spurningar og svörin eins og svo oft áður eingöngu á Endalínunni í boði Kalda , WhiteFox og sérstökum gosgöngufatnaði frá Cintamani.
Gleðilega Páska
Covid Round 4 ... Já það er rétt kæru hlustendur , enn eitt stoppið á körfuboltanum er skollið á. Endalínan slær þó ekki slöku við og mætir beint úr White Fox Stofunni með góðan gest , en Örvar Þór Kristjánsson mætti og tók spjallið með okkur. Við pælum aðeins í hvaða sviðsmyndir eru nú uppi varðandi áframhaldandi keppni , er bikarinn off ? hvenær má byrja spila ? þarf að stytta playoffs ?.. Við fáum Örvar einnig til að segja okkur frá sínum körfuboltaferli en erfitt er að finna betri sögumann en Ödda Ká. Stigakeppnin við Gunna Einars, Hnefasamlokan frá Milton Bell , HM95 símahrekkir og Ladan hans Rondey. Já kæra körfuboltafjölskylda , það er bara eitt sem getur hjálpað okkur í gegnum helgina og það er 2ja tíma körfuboltaspjall í boði Kalda, WhiteFox og Cintamani að sjálfsögðu á PodcastStöðinni.
Þá er 16.umferðin á enda kæru hlustendur og Endalínan er mætt fullmönnuð og fer yfir öll stóru atriðin. Þór Ak. er spútnik liðið , ELE áhrifin frá Bjarka , Neðstu liðin ná ekki að klára leiki , Keflavík í ham og slökktu allt gos í Grindavík. Er Stjarnan ennþá contender ? Eru Haukar fallnir ? Er Milka uppáhalds leikmaðurinn hans Jarvelainen ? Er Tomsick að verða skynsamur ? .... Allt þetta og auðvitað allt hitt líka að sjálfsögðu á Endalínunni en núna eru einungis 6 umferðir eftir af deildarkeppninni og einungis rétt rúmar 3 vikur í að við vitum hvaða lið fara áfram í úrslitakeppni og hvaða lið sitja eftir með sárt ennið. Beint úr WhiteFoxStofunni að vanda í boði Kalda Bruggsmiðju - Cintamani og WhiteFox.
#Endalinan #Kaldi #Cintamani #WhiteFox #PodcastStodin
Við erum að detta í crunch time gott fólk ! Endalínan gerir upp 15.umferðina á mannamáli en í fjarveru Gunna Stef fengum við Friðrik Pétur Ragnarsson til að vera með okkur. Alvöru uppfylling en Frikki þekkir körfuboltann betur en margir aðrir eftir að hafa spilað og þjálfað lengi hérna heima. Valsarar eru að detta í championship mode , Nýtt met í stigamun El Clasico , Stjarnan eru ekki með endakall , heimsk villa og hasar á Egilsstöðum. Eru Haukar game over ? Geta Njarðvíkingar unnið eitthvað lið í efstu deild? Geta Akureyringar komist í undanúrslit í playoffs? Við svörum þessum spurningum fyrir ykkur kæru hlustendur beint úr WhiteFoxStofunni í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani auðvitað á PodcastStöðinni.
https://www.youtube.com/watch?v=QJHUbtR0yI8
Hvað er að gerast í þessari deild?!?!
Það eru senur í hverri umferð og virðast flestar vera að styrkja sig.
Eru Njarðvík og Tindastóll lélegustu og jafnframtt leiðinlegustu lið deildarinnar? Voru Haukar of lengi að bregðast við? Eru Þórsarar að spyrna sér frá botninum? Er Milka farinn að þreytast? Er Jordan mættur í deildina? Fundu Grindvíkingar mojoið? Er Mallory það sem skilur milli feigs og ófeigs hjá Hetti? Þetta og miklu, miklu fleira í 74. þætti Endalínunar í boði Bruggsmiðjunar Kalda, Whitefox og Cintamani í þráð beinni á Podcaststöðinni!
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

5 Listeners

140 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

91 Listeners

17 Listeners

17 Listeners

27 Listeners

67 Listeners

21 Listeners

17 Listeners

15 Listeners

12 Listeners

1 Listeners