
Sign up to save your podcasts
Or


Þór Þorlákshöfn - Íslandsmeistarar 2021 !!
Já kæru hlustendur það var heldur betur kátt í Icelandic Glacial Höllinni í gær þegar Leikur 4 í Lokaúrslitum fór fram ! Þórsarar urðu 7.liðið í sögunni til þess að vinna Íslandsmeistaratitilinn eftir úrslitakeppni og það var gjörsamlega grátið af gleði. Hvað gerir þetta Þórs lið svona gott ? Afhverju bognuðu Keflvíkingar þegar mest á reyndi ? ... Við förum yfir allar helstu sögulínurnar úr þessum fjórða leik og skoðum frammistöðu og taktískar pælingar liðanna - Spacing Þórsara , PnR Keflvíkur of hægt , Hógvær Lárus , Dabbi Kóngur , Drungilas , Hössi , Milka , Rulluspilarar .... Já við förum í þetta allt saman í lokaþættinum okkar á þessu leiktímabili sem hefur verið alveg magnað ásamt því að heyra í MVP Endalínunnar , Styrmi Snæ Þrastarsyni !
Allt þetta í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani !!
Fljótt skipast veður í lofti.... Það var stór Þriðjudagur í dag þar sem Endalínan byrjaði á Paddy´s með Quiz upphitun og svo var ferðinni heitið á Leik #3 ... Keflvíkingarnir komu heldur betur tilbúnir með bakið upp við vegginn fræga ! Allt annar leikur , allt önnur vörn, allt annað physicality heilt yfir og það voru Keflvíkingar sem voru beittari og héldu sér á lífi og Leikur 4 í Höfninni á föstudag. Þarf Larry að gera meira ? Er CJ svarið ? Geta Kef hlaupið 0 í öllum sóknum ? Hafa Þórsarar styrk til þess að svara tilbaka ? .... Já það eru heldur betur sögulínur eftir þetta kvöld í Keflavík þar sem Milka gekk að myndavélunum og sagði þetta er búið , 3-2 takk fyrir ! .... Endalínan er allavega sátt , meiri körfubolti framundan og veislan heldur áfram ! Beint úr WhiteFox stofunni að vanda í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani. Minnum hlustendur á að nýta sér kóðann ,,endalinan,, á Cintamani.is til þess að fá 15% afslátt af öllu út Júní.
#Endalinan #Kaldi #WhiteFox #Cintamani
Kæru hlustendur , Hvað er að gerast ? .....
Langbesta lið vetrarins búið að tapa 2 leikjum í röð gegn GEGGJUÐUM Þórsurum. 2-0 fyrir Þór er eitthvað sem enginn átti von á nema Nostradamusinn Haddi Brynjólfs. Hvað eru Þór að gera svona vel ? Hvað geta Keflvíkingar gert betur ? Við kryfjum leik 2 og förum yfir allar helstu sögulínurnar! Styrmir Snær með múv ársins á Milka, Keflavík fann svör en ekki nóg , Þór og stóru skotin , Drungilas er Milka baninn sem allir eru búnir að bíða eftir! Allt þetta og meira til á Endalínunni í 100. skiptið í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani. #LoveThisGame
Já kæra Körfuboltafjölskylda , Lokaúrslitin eru hafin !
Game 1 - Það voru ekki margir sem spáðu því að Þór frá Þorlákshöfn myndu mæta í Blue Höllina og pakka Keflvíkingum saman og ná mest 26 stiga forskoti. Hvað var það sem skildi á milli í kvöld ? Hvaða taktísku breytingar gerðu Þórsarar ? Hverning munu Keflvíkingar svara? ..
Við greinum þennan leik á mannamáli á Endalínunni og tökum stöðuna fyrir leik 2. Kaldaspurningin á sínum stað og smá GÖTUSLÚÐUR eins og gengur og gerist á þessum árstíma !
Endalínan beint úr WhiteFoxStofunni í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani á PodcastStöðinni , Bestu stöðinni !
Þá er komið að þessu - 2 lið eftir og lokaúrslitin hefjast á miðvikudaginn !! Við förum yfir oddaleikinn í Höfninni þar sem Sjóðheitir Þórsarar mættu enn einu sinni og kveiktu aðeins í netinu og kláruðu Stjörnuna. Við hitum síðan upp fyrir FINALS þar sem Þórsarar mæta ógnar sterkum Keflvíkingum sem hafa ekki tapað leik í úrslitakeppninni hingað til. Hvað þurfa Þórsarar að gera til að eiga séns í Keflavík ? Hverjir ná að stjórna tempóinu ? Við förum yfir þetta allt saman í 98. þættinum af Endalínunni beint úr WhiteFox stofunni í boði WhiteFox , Kalda og Cintamani !
Þá er það fjórði leikdagur í Semi´s og var eingöngu einn leikur á dagskránni í þetta skiptið. Eftir flugeldasýningu Þórsara á sunnudaginn var heldur betur annað uppá teningnum í MGH í kvöld. Rosalegar sveiflur milli leikja en Þór skorar 57 stigum minna í leiknum í kvöld þar sem Stjörnumenn tryggðu sér oddaleik í Höfninni næsta Laugardag. Hvað skilaði þessum sigri fyrir Stjörnuna ? Er hægt að treysta bara á villta þrista ? Hverjir eru X faktorarnir og við hverju má búast í oddaleiknum á laugardag ?
Við kryfjum þetta allt saman ásamt því að vera með fasta liði eins og KaldaSpurninguna og aðrar spekúleringar um framhaldið.
Endalínan í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani !
Kæru hlustendur.
Það voru stórir hlutir að gerast í kvöld - KRingar , 6faldir Íslandsmeistarar , duttu út og við fáum loksins nýja Íslandsmeistara árið 2021 !!
Við gerum upp þennan 3ja leikdag í Semi´s þar sem Sjóðheitir Þórsarar skutu Stjörnuna í kaf á heimavelli sínum í Höfninni fögru og Gríðarlega sterkir Keflvíkingar sópuðu KR-ingum í sumarfrí í Blue Höllinni þar sem sem KR ingar misstu trúna ansi snemma. Sannkallað End of an era þar sem KR liðið hefur einokað þennan titil síðustu árin með því að vinna 6 sinnum í röð sem verður seint ef einhverntíman toppað !
Á Stjarnan möguleika að koma þessu í oddaleik ? Hvað gerðist andlega hjá KR ? Við förum í þetta og öll stóru málin beint úr WhiteFoxStofunni ásamt því að KaldaSpurningin er auðvitað á sínum stað og BRAKANDI FRÉTTIR af leikmannamálum í Keflavík fyrir næsta tímabil.
Endalínan , körfuboltaumfjöllun fyrir lengra komna í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani !
Kæra Körfuboltafjölskylda.
Hvar eigum við eiginlega að byrja ?... Valskonur orðnar Íslandsmeistarar eftir að hafa sett sópinn á loft á heimavelli gegn baráttuglöðum Haukakonum. Þórsarar jafna einvígið með risa sigri í MGH og Keflvíkingar enn og aftur sterkari á lokasprettinum gegn KR-ingum sem treysta of mikið á ruglaða þrista down the stretch! Við kryfjum þessa 3 leiki og tökum einnig við spurningum úr sal ásamt því að skoða aðeins aðstæðurnar sem eru komnar upp í kvennaboltanum þar sem Snæfell hefur dregið lið sitt úr keppni og ,,stórveldið,, KR ekki alveg á því að taka efstu deildar sætið þrátt fyrir gott boð ! Já það er stútfullur þáttur á Endalínunni að vanda , getur lið unnið titilinn án þess að vera með Endakall ? Á eitthvað lið sjéns í Keflavík ? Hvor liðsheildin hefur betur í baráttu Þórs og Stjörnunnar ? Allt þetta og auðvitað Kalda spurningin á sínum stað í boði Kalda , White Fox og Cintamani.
Hvetjum hlustendur til að fara á www.cintamani.is og græja sig fyrir útivistina og nota kóðann : endalinan ( 15% afsláttur )
1.leikdagur Undanúrslita + Leikur 2 kvennamegin.
Eftir svakaleg 8 liða úrslit erum við farin af stað með undanúrslitin sem verða klárlega svakaleg ! Þórsarar hitta illa á heimavelli og Geitungurinn með súperstjörnutakta í Höfninni. Úthvíldir Keflvíkingar halda áfram að sækja á sína styrkleika þegar mest er undir og klára leikinn gegn baráttuglöðum en mögulega of villtum KR-ingum. Hvað gerðu Haukarnir vitlaust á lokametrunum í Ólafssal ? .. Við förum yfir leikina og spáum í spilin fyrir framhaldið. Mun liðsheild Stjörnunnar halda áfram að ,,outplaya,, Þórs kjarnann ? Geta KR-ingar stoppað of mörg sniðskot Keflavíkur ? ... Allt þetta og auðvitað umræður um RISASTÓR félagaskipti sem hafa átt sér stað síðustu 2 daga. Endalínan í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani beint úr WhiteFoxStofunni á PodcastStöðinni !
Endalínan mætir á Odda fösudegi til að gera upp oddaleiki 8 liða úrslita Dominos deildar karla og fyrsta leik í úrslitaeinvígi kvenna.
Hvar unnu Valskonur Hauka? Eru Stjörnumenn að vakna af löngum blundi? Hversu langt geta KR farið úr þessu?
Jón Arnór Stefánsson, takk fyrir allar minningarnar, öll stökksotin, stóru þristana og síðast en ekki síst allar varnirnar, forréttindi að fá að tala um deildina með þig innanborðs.
Allt þetta beint úr Cintamani hellinum ásamt mörgu öðru! allt í boði Bruggsmiðjunnar Kalda, sem brugga meðal annars ljósann Kalda í dós sem er bjór körfuboltafjölskyldunar og nýliði ársins, Whitefox sem heædur okkur niðri í allri spennunni og Cintamani sem hjálpa okkur í gegnum lægðirnar sem nú herja á landið.
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

5 Listeners

140 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

91 Listeners

17 Listeners

17 Listeners

27 Listeners

67 Listeners

21 Listeners

17 Listeners

15 Listeners

12 Listeners

1 Listeners