
Sign up to save your podcasts
Or


Kæru hlustendur - Endalínan mætt í 92.skiptið og fer yfir leikdag 4 í þessum 8 liða úrslitum.
Orkumikið í HS-Orku höllinni þar sem allt sauð uppúr og Grindavík náði að krækja í oddaleik. Þorlákshafnar Þórsarar númeri of stórir fyrir mögulega sadda Akureyringa sem sprungu á limminu. Og mál málanna , Valsmenn fundu nýjar leiðir í skákinni og glöddu alla körfuboltaáhugamenn með því að ,,forca,, oddaleik í þessari rosalegu seríu.
Ægir orðinn eins og scoring kana point , getur liðsheild Grindvíkinga mætt í MGH ? Hvað gera Þór Þ þegar Larry Thomas verður tekinn út úr leiknum ? Getur Pavel tapað seríu ? Hverjir fara í sumarfrí á föstudaginn ??
Já það er að mörgu að taka og Endalínan kafar í öll þessi mál að vanda í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani !
Leikdagur 3 - 8 liða úrslit !
Úrslitakeppnin er ekkert að hægja á boltanum þrátt fyrir að allt sé undir. Endalínan fer í alla fjóra leikina og rýnir í helstu sögulínurnar að vanda. Tímabilið í hnotskurn á lokamínútum í Keflavík , allir vinir eftir leik en ekkert skott á milli lappanna. Daufur leikur á daufum leiktíma í MGH , og SóknarSunnudagur : Þórs liðin tóku trylltan dans og Háhraða Körfubolti í Origo.
Hvað tekur við hjá stólunum ? Eru Keflavík bara að hvíla sig ? Hvað gera Þór Ak til að stoppa 3ja stiga veisluna og ætlar Jordan að vera banabiti Valsmanna ? Þið þekkið þetta, allur pakkinn beint úr WhiteFox Stofunni í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani !
Kæru hlustendur , þá eru sérfræðingarnir að sunnan mættir enn einu sinni á Endalínuna og fara í allt það helsta úr leikjum 2 í 8 liða úrslitunum. Þegar Stólarnir eru loksins farnir að stoppa þá vantar sóknina , Keflavíkurlestin í hægagangi en nær samt í sigra , Grindavík með sterkan sigur gegn pirruðum Stjörnumönnum , Liðsheildin brást Lalla og Co , Basile er mikilvægur og Stríðið um Reykjavíkurborg íþróttaviðburður ársins ! Geta Stólar stoppað the Big3 ? Hafa meiðsli áhrif á Stjörnuna ? Er villureglan á villigötum ? Hver á að græða á lokasek leiksins ?
Allt þetta og svo miklu meira á Endalínunni í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani !
Kæru hlustendur - þá er þetta farið af stað ! ÚRSLITAKEPPNIN er mætt í öllu sínu veldi og förum við yfir fyrstu leikina í 8 liða úrslitunum. Sloppy Keflvíkingar ennþá of góðir fyrir Stólana , Stjarnan skein bjartar í MGH , Græni Drekinn peppaði sína menn í forystu í Höfninni og LEIKUR ÁRSINS til þessa kórónaði svo þessa fyrstu leiki í 8 liða með alvöru stríði í Origo. Ætlar Tomsick bara að pakka saman ? Geta Grindvíkingar sýnt sama hjarta fullmannaðir ? Verður Basile difference maker ? Hafa Valsmenn orku í marga svona leiki ?
Endalínan kafar í þetta allt saman auðvitað í boði Kalda , White Fox og Cintamani á PodcastStöðinni !
Já kæru hlustendur , það er engin Covid pása núna neitt ! Það er komið að þessu - ÚRSLITAKEPPNIN er að fara af stað !
Endalínan gerir upp deildarkeppnina í stuttu máli og velur Úrvalslið Endalínunnar ásamt því að útnefna besta þjálfarann og besta unga leikmanninn ! Svo er það bara upphitun fyrir allar seríurnar í 8 liða úrslitunum. Það er bara eintóm körfubolta veisla framundan og við förum yfir allt það sem skiptir máli fyrir ykkur til að hafa í huga áður en þetta fer af stað á laugardaginn. Hvernig vörn þurfa stólarnir að spila gegn Keflavík ? Nær Grindavíkurhjartað að toppa á réttum tíma ? Ætlar Ægir að vera pirraður ? Leikbanna vesen í ÞórvsÞór og svo það sem ALLIR eru búnir að vera bíða eftir - ORRUSTAN UM REYKJAVÍKURBORG þar sem ALLT ER UNDIR !!
Endalínan fyrir ykkur , í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani !
Kæra körfuboltafjölskylda, þá er þessi óútreiknanlega deildarkeppni í efstu deild karla formlega lokið en það var spiluð heil umferð nú á mánudagskvöldið. Merkilegur mánudagur , eða hvað? Það var ansi mikil spenna í loftinu enda margir hlutir sem áttu eftir að skýrast. Hægt var að fylgjast með öllum leikjunum á sama tíma í svokallaðri KörfuboltaMessu til að djúsa þetta aðeins upp og má segja að í hálfleik hafi spennan verið óbærileg. En svo fór að þetta varð ekkert alltof spennandi og nokkuð öruggir sigrar á flestum stöðum. Fjörið búið á Austfjörðum í bili , Njarðvíkingar björguðu sér frá falli en fara í snemmbúið sumarfrí , ÍR-ingar spila óárángursríkan körfubolta og úrslitakeppnin verður rosaleg ! Endalínan fer létt yfir leiki kvöldsins og hvað við sjáum fyrir í framhaldinu hjá þeim liðum sem kláruðu sitt tímabil í kvöld og hjá þeim sem halda áfram í úrslitakeppninni sem auðvitað er það eina sem skiptir máli. Endalínan í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani beint af heimavellinum í WhiteFoxStofunni !
#Endalinan #Kaldi #LjosIDos #WhiteFox #Cintamani #GosGear #PodcastStodin
Endalínan er mætt í WhiteFox stofuna og fer yfir 21.umferðina fyrir ykkur hlustendur en þessi sturlaða deildarkeppni er nú komin á ,,Endalínuna,,. Við fengum eitthver svör en þrátt fyrir það er margt ennþá alveg galopið fyrir lokaumferðina sem fer fram á mánudaginn nk. Of seint í rassinn gripið hjá Haukunum sem eru fallnir , Hattarmenn verðskulda sæti en eru í mikilli fallhættu , Mallory er ENDAKALLINN ! , Njarðvíkingar héldu haus á heimavelli Hörkunnar gegn ÍR , Grindavíkurhjartað stærra en brotin hjörtu Skagfirðinga , óspennandi stórveldaslagur í Garðabæ , Þór Ak. verða í deild þeirra bestu að ári og Keflavík sýndi gæðin gegn löskuðum Valsmönnum í leik sem telur ekkert í playoffs. Allt þetta og meira til í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani !
Það vantar ekki umræðuefni þegar horft er til Dominos deildarinnnar kæru hlustendur enda má segja að það sé allt á suðupunkti í þessari æsispennandi deildarkeppni sem er nú á lokametrunum. Við vorum manni færri í dag í fjarveru Gunna Stef vantaði allan strúktúr og varð þessi þáttur því kannski smá langloka en það er bara svo skemmtilegt að tala um þessa rosalegu deild. Njarðvíkurljónin bíta frá sér , Mikilvægi Innbyrðis viðureigna, Veðmálasvindl , Flutukörfuóðir Grindjánar unnu gegn KR-ingum sem geta ekki unnið leik, TjúTjú á Króknum án Hössa , Númeri of litlir Hattarmenn , Liðsboltinn í Höfninni , Zvonko í strikernum þegar ÍR ingar unnu lánlausa Stjörnumenn og Valsseiglan vann gott körfuboltalið Hauka. Allir leikirnir , öll stóru momentin og viðtal við Bjarka Ármann þjálfara Þórsara frá Akureyri þar sem við spyrjum hann útí skiptinguna fyrir lokakörfu leiksins gegn Njarðvík og meint Veðmálasvindl leikmanns Þórsara. Allt þetta og svo miklu meira í langloku þætti á Endalínunni í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani beint úr WhiteFoxStofunni.
Þetta er besti tími ársins , það breytist ekkert ! Þó við séum ekki að horfa á lokaúrslit þá erum við að horfa á geggjaðann íslenskan körfubolta og það er það sem skiptir mestu máli , þetta er rétt að byrja. Allsvakaleg 19.umferð að baki sem kláraðist með 2 leikjum og við förum að sjálfsögðu í allar helstu sögulínurnar hér á Endalínunni. Keflavík Deildarmeistarar, Milka exposed varnarlega , 1-3-1 bjargvætturinn , Sabin að kólna ? , KR-ingar að dragast aftur úr ? Styrmir er stjórstjarna , sóknarsamba í Þorlákshöfn , leikmanna hlutabréf og svo margt margt fleira , Kalda spurningin & Tónlistarhorn Scuba Steve. Við fengum líka góðan gest en Keflavíkur goðsögnin Jón Norðdal Hafsteinsson var mættur í WhiteFoxStofuna og fór aðeins yfir málin. Ekki láta Endalínuna framhjá þér fara , allt saman í boði Kalda , WhiteFox & Cintamani !
Já kæra körfuboltafjölskylda það var ekkert annað í boði en að taka ,,neyðarpod,, eftir allsvakalega leiki á fyrri keppnisdegi 19.umferðar Dominos deildarinnar.. 7 neðstu liðin í deildinni voru í eldlínunni í kvöld og er þetta því sannkallaður fallbaráttuþáttur. Það er MJÖÖG stutt á milli í þessu og voru lið að færast upp og niður í töflunni með nokkurra mínútna millibili. Njarðvíkingar eru neðstir í deildinni þegar 3 leikir eru eftir , já NEÐSTIR. Endakallinn Mallory sýndi mátt sinn annað skiptið í röð og skoraði sigurkörfu fyrir Hattarmenn, Grizz-inn og Haukarnir á fljúgandi ferð með 3 sigra í röð og Kiddi Palla var heldur betur mikilvægur í KP Arena og setti flautuþrist fyrir sigrinum og vann villta og pirraða ÍR-inga. Við förum yfir leiki kvöldsins, skoðum stóru málin og veltum fyrir okkur hvað gæti gerst í þessari svakalegu botnbaráttu á næstu 2 vikum en það þarf sko klárlega að rífa fram reiknivélina miðað við hvernig deildin er að spilast... Sannkallaður SOS þáttur á Endalínunni í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani !
#Endalinan #Kaldi #WhiteFox #PodcastStodin
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

5 Listeners

140 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

91 Listeners

17 Listeners

17 Listeners

27 Listeners

67 Listeners

21 Listeners

17 Listeners

15 Listeners

12 Listeners

1 Listeners