
Sign up to save your podcasts
Or


Covid vesenið herjar á okkur öll en Endalínan lætur það ekki stoppa sig og heldur áfram að kryfja málefni líðandi stundar í íslenskum körfubolta. Stóra málið er brotthvarf Andy Johnston , þjálfara Þórs frá Akureyri en Þórsarar skýla sig á bakvið fjárhagsvanda en óánægjuraddir virðast hafa verið byrjaðar að krauma í Eyjafirðinum. Við kynnum einnig nýjan þjálfara til leiks , en Bjarki Ármann Oddsson er kominn heim og tekur við liðinu. Við förum yfir stöðuna hjá KKÍ og þær ákvarðanir sem þarf að taka í kjölfar Covid pásunnar - ásamt því að velta fyrir okkur hvort æfingabann liða á höfuðborgarsvæðinu muni skipta einhverju máli þegar deildin fer af stað aftur. Ekkert samráð , engin minnisblöð bara splunkunýr þáttur af Endalínunni beint úr White Fox Stofunni. #Kaldi #WhiteFox #PodcastStodin #Endalinan
Kæra körfuboltafjölskylda.
Endalínan tekur enga covid pásu og er mætt með glænýjan þátt beint úr WhiteFoxStofunni. Við förum yfir síðasta leik 1.umferðar en Keflvíkingar gerðu góða ferð norður yfir heiðar og nældu í fyrsta sigur vetrarins á móti baráttuglöðum Þórsurum. Einnig förum við yfir mál Zvonko Buljan en Njarðvíkingar eru ekki par sáttir við aga og úrskurðarnefnd KKÍ sem dæmdi kappann í 3ja leikja bann í vikunni fyrir punggrip á leikmann KR , Roberts Stumbris. Endalínan fer yfir þetta allt saman á mannamáli ásamt því að skoða áhrif Covid-19 á nýtt tímabil og landsliðsbubbluna sem Fiba Europe kynnti í vikunni. Allt þetta og meira til á þessum síðustu og verstu , baráttan um Kalda kónginn heldur áfram og Kaldi Ljós í Dós er án vafa nýliði ársins.
#Endalinan #WhiteFox #Kaldi #PodcastStodin
Kæra körfuboltafjölskylda , veislan er hafin !
Endalínan kemur að sjálfsögðu sterk inn með umfjöllun um 1.umferðina - gerir upp leikina og veður í stóru málin beint úr WhiteFoxStofunni að vanda. Njarðvík með tak í Vesturbænum , Svægi í Höfninni , brösug byrjun í Skagafirði og stjörnustríð í Origo. Hvaða leikmenn stóðu undir væntingum og hverjir þurfa gera betur , þarf að vera nasty til að vinna ? ... Allt þetta og auðvitað baráttan um Kalda kónginn á PodcastStöðinni í boði Kalda og WhiteFox.
#Endalinan #WhiteFox #Kaldi
Þá er komið að seinni hlutanum í Endalínuspánni. Hvaða lið sjáum við fyrir okkur í TOP 6. Deildin verður alveg ótrúlega jöfn í vetur og baráttan um heimavallarrétt gæti verið á milli sömu liða og eru að berjast fyrir því að komst inní úrslitakeppnina. Við förum hérna yfir liðin sem við sjáum fyrir okkur í efri hlutanum , skoðum leikmannahópana og breytingar , veljum FOX factorinn spáum aðeins í spilin.
6. sæti - Grindavík
5. sæti - Njarðvík
4. sæti - Valur
3. sæti - Keflavík
2.sæti - Tindastóll
1.sæti - Stjarnan
Deildin í ár verður alveg svakalega skemmtileg miðað við hvernig hóparnir líta út núna viku fyrir mót en ennþá á margt eftir að gerast og getur góð eða erfið byrjun skipt sköpum að lokum. Við ræðum þetta allt saman beint úr White Fox Stofunni með ískaldann Kalda við hönd. Allt þetta og meira til eins og baráttan um Kaldakónginn í boði WhiteFox og Kalda auðvitað á Podcast-Stöðinni !
Kæru hlustendur , þá er hátíðin loksins að fara af stað aftur og einungis 10 dagar í fyrsta leik í Dominos Deild Karla. Endalínan ákvað að henda í sína eigin spá og mun það skiptast niður í tvo þætti - núna byrjum við á Neðri helmingnum. Eftir mikla heimavinnu um öll liðin förum við yfir hvert lið og ræðum mannabreytingar , líkleg byrjunarlið , kosti og galla og veljum svo FOX-FACTOR hvers liðs.
12.sæti Þór Ak
11.sæti - Þór Þ
10.sæti - Höttur
9.sæti - ÍR
8.sæti - Haukar
7.sæti - KR
Sleggjudómar mögulega en deildin er gríðarlega jöfn og erfitt að staðsetja lið nákvæmlega svona rétt fyrir mót þegar öll lið eru ekki orðin fullmönnuð en svona var spáin beint úr WhiteFox stofunni í boði Kalda - WhiteFox - Kjötsmiðjunnar og Nettó. #Endalinan #Kaldi #WhiteFox #Podcaststodin
Kæra Körfuboltafjölskylda , ÁTKAST vol. II , gjörið svo vel ! Endalínugengið bauð frumkvöðlum í fréttamennsku um Íslenskan körfubolta og stofnendum www.Karfan.is í svakalegar Lambalundir og með´í í boði Kjötsmiðjunnar og Nettó. Eftir dýrindis kvöldverð var ferðinni heitið í WhiteFoxStofuna þar sem alvöru körfuboltaumræður áttu sér stað á meðan ískaldur Kaldi fékk að renna niður í mannskapinn. Við förum yfir ferðalagið hjá þessum snillingum og hvernig upphafið var á Karfan.is, alla vinnuna , tækni áskoranir , mikla eftirspurn, heimsóknir til atvinnumanna og allt þar inná milli , frá því að mæta í Kennó á köldu þriðjudagskvöldi að taka viðtöl eftir leik í 2.deild karla og alla leið á EUROBASKET með Íslenska landsliðinu. Þetta er eitthvað sem enginn körfuboltaáhugamaður má láta fara framhjá sér.
#Endalinan #PodcastStodin #WhiteFox #Kaldi #Kjotsmidjan #Netto
Endalínan heldur áfram að hita upp fyrir komandi körfuboltavertíð. Í þessum þætti förum við á smá flakk , tölum um úrslitakeppni NBA og færum okkur svo yfir til Evrópu þar sem við heyrum í landsliðsmönnunum Martini Hermannssyni og Elvari Má Friðrikssyni. Félagarnir eru báðir að koma sér fyrir hjá nýjum liðum en eins og allir vita samdi Martin við stórlið Valencia á Spáni á meðan Elvar færði sig frá Svíþjóð yfir til Litháen og spilar með Siauliai. Svo tökum við auðvitað léttan rúnt yfir það sem er að gerast hérna á Íslandi , nýjustu félagaskiptin , Covid reglurnar , áframhaldandi vesen í Vesturbæ og heyrum í Sigga Þorsteins og tökum stöðuna á hans heilsu og nýliðum Hattar. Þetta allt og meira til beint úr WhiteFox Stofunni með nýjum samstarfsaðila , KALDI Bruggsmiðja. #Endalinan #WhiteFox #Kaldi #Kjotsmidjan #Netto #Podcaststodin
Endalínan special - Átkast vol 1.
Hugmyndin af þessum þætti fæddist í Covid þar sem planið var að fá gest í alvöru grillveislu og taka spjallið um körfubolta á léttu nótunum. Endalínan fékk Kjötsmiðjuna , Nettó og Trivento í samstarf og buðum við hinum eina sanna Benna Gumm , körfuboltaþjálfara og almennum körfubolta sérfræðing , í alvöru Black Garlic Ribeye og með´í. Við förum bókstaflega fram og tilbaka í umræðum um allt sem viðkemur íslenskum körfubolta. Raninn , Upphafið í KR , bíttað á NBA myndum , þjálfaraspólurnar , heimsókn til Dallas og svo miklu miklu meira í 2ja tíma frjálsu spjalli með rauðvíns ívafi.
#Endalinan #WhiteFox #Kjotsmidjan #Netto #PodcastStodin
Kæru hlustendur. Eftir sumarfrí er Endalínan mætt og fer yfir stöðuna hjá liðunum 12 í DominosDeild Karla. Þetta hefur verið áhugavert sumar og nokkrar RISA stórar fréttir á síðustu vikum. GEITIN mætt á Hlíðarenda - Easy way out ? , Vesturbæjarstórveldið að hruni komið ? Útlendingaveisla . fróðlegur Covid undirbúningur framundan og suðurnesjamenn elska JUSTIN SHOUSE . Við förum yfir öll liðin og ræðum um hvernig þau líta út svona í ágúst mánuði þegar margt á ennþá eftir að gerast og leikmannahópar eiga enn eftir að taka töluverðum breytingum hjá nokkrum liðum. Allt þetta og meira til beint úr WhiteFoxStofunni í boði WhiteFox - Kjötsmiðjunnar og PodcastStöðvarinnar. #Endalinan
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

5 Listeners

140 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

91 Listeners

17 Listeners

17 Listeners

27 Listeners

67 Listeners

21 Listeners

17 Listeners

15 Listeners

12 Listeners

1 Listeners