
Sign up to save your podcasts
Or


Endalínan gerir upp þetta tímabil þó svo að það hafi endað á furðulegan hátt. Stjórinn sjálfur , Gunnar Stefánsson sendi á okkur lista sem við förum yfir og ræðum mismunandi skoðanir. BudLight Leikmaður Ársins , WhiteFox Varamaður Ársins , PodcastStöðvar Þjálfari Ársins ásamt liði ársins , varnarmanni ársins , mestu vonbrigðunum , leikhléi ársins og fleira. Allt þetta beint úr WhiteFox stofunni þar sem við svörum örlítið fyrir okkar mat á endi tímabilsins sem hefur verið mikið umræðuefni innan körfuboltafjölskyldunnar og víðar síðustu daga. #Endalinan #BudLight #WhiteFox
Endalínan kemur til ykkar á þessum síðustu og verstu og hjálpar körfuboltafjölskyldunni að gera upp tímabilið og sætta sig við körfuboltalaust vor árið 2020. KKÍ tilkynnti um snubbóttann endi tímabilsinst í gær þar sem Covid-19 hefur aldeilis haft mikil áhrif á okkar samfélag eins og annars staðar í heiminum. Tímabilið búið - einungis deildarmeistarar krýndir , Fjölnir niður og Höttur upp. Ákvarðanir sem að sjálfsögðu ekki allir eru sáttir við eins og við var búist. Við nýtum tækifærið og tökum stöðuna á nokkrum aðilum , Maté þjálfara Hamarsmanna sem sjá á eftir sæti í deild þeirra bestu , Lalla Jóns þjálfara Þórs frá Akureyri sem fá að halda sínu sæti og svo heyrum við í forráðamönnum tveggja félaga , Hilmari formanni Stjörnunnar og Stjána Jó stjórnarmanni frá Keflavík. Að lokum heyrðum við í Chaz Williams , leikstjórnanda Njarðvíkur og spjölluðum við hann aðeins um hvernig þetta lítur út frá augum atvinnumannsins. Allt þetta og meira til , almennar umræður og allskonar í boði BudLight og WhiteFox !!
#Endalinan #PodcastStodin #WhiteFox #BudLight
Endalínan er mætt á þessum dimmu tímum í íþróttalífinu og körfuboltaheiminum. Þátturinn litast að sjálfsögðu af ástandinu og þeim ákvörðunum sem beðið er eftir frá KKÍ varðandi framvindu mála en ljóst er að eftir þessa 21.umferð eru engir leikir í allavega 4 vikur og líklega lengur. Við byrjum þáttinn á að heyra í Hannesi S. Jónssyni formanni KKÍ og ræddum við hann um stöðuna sem er uppi og hvað liggur að baki þessari stöðu sem KKÍ og formenn félaganna standa frammi fyrir. Við förum líka yfir 21.umferðina og pælum í hvaða möguleikar eru boði. Deyfð var yfir liðunum og leikmenn greinilega með hugann við annað en að vera 100% focused á körfubolta. Endalínan fylgist vel með hlutunum og verðum við mættir aftur um leið og frekari ákvarðanir liggja fyrir. #Endalinan #BudLight #WhiteFox #ILoveThisGame
Kæra Körfuboltafjölskylda , þá er Endalínan mætt enn einu sinni og gerir hér upp 20.umferðina eins og okkur einum er lagið. Laugardagsþáttur beint úr White Fox Stofunni. Línur eru heldur betur að skýrast þegar einungis tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Vorkvöldin eru björt í Reykjavíkinni, Númeri of litlir Akureyringar , Skotheppnir Valsarar , Skrýtnir Þórlákshafnarpeyjar , og ekki jafn hröð Stjörnulest. Allt þetta og jú meira til í boði Podcast Stöðvarinnar , BudLight og WhiteFox . Spekin er á sínum stað og White Fox Varamaður vikunnar sett'ann beint í grímuna á Halldóri Erni. #Endalinan #BudLight #WhiteFox #PodcastStodin
Jæja þá er komið að því sem körfuboltafjölskyldan er búin að vera bíða eftir. Úrvalsdeildin er komin af stað aftur og Endalínan er á sínum stað og gerir upp 19. umferðina. Eftir langa pásu voru liðin örlítið ryðguð og kannski ekki fallegasti körfuboltinn en baráttan var til staðar enda er allt undir á mörgum vígstöðum. Úthvíldir KR-ingar komnir í vorfíling , Áhugalausir Valsarar , Copy/Paste í Skagafirðinum og Stjörnulestin heldur áfram. Línur eru að skýrast en ennþá eru 3 umferðir eftir þar sem barist er um sæti í deildinni og sæti inní playoffs. Geta lið valið sér andstæðinga ?
Endalínan fer ofan í málin í boði Podcast stöðvarinnar , BudLight og WhiteFox. #Endalinan #BudLight #WhiteFox
Kæru hlustendur , Endalínan er hér mætt í þessari löngu pásu á deildarkeppninni hérna heima með leikstjórnandanum Elvari Má Friðrikssyni í fyrstu útgáfu af 1 á 1 ! Rúnar Ingi ræðir við Elvar um ferilinn - fyrstu skrefin , reynsluna í USA , vonbrigðin í fyrra og farsældina í Svíþjóð. Að sjálfsögðu fékk gestur þáttarins að taka BudLight speki vikunnar og svo spáir Elvar aðeins í spilin fyrir komandi úrslitakeppni hérna heima. Allt þetta að sjálfsögðu tekið upp í WhiteFox stofunni. #Endalinan #PodcastStodin #BudLight #WhiteFox
Endalínan er í banastuði í þessari bikarviku sem framundan er. Undanúrslit karla og kvenna fara fram á miðvikudag og fimmtudag og svo úrslitaleikirnir sjálfir á Laugardag. Við rennum yfir leikina og fengum þjálfara allra liðanna karlamegin í létt spjall um leikina og við hverju má búast í Höllinni. Þökkum Fal , Danna , Arnari og Baldri kærlega fyrir spjallið og vonum að þið hlustendur njótið og mætið svo í höllina og upplifið þessa körfuboltaveislu. Upphitun fyrir körfuboltafjölskylduna í boði PodcastStöðvarinnar , BudLight og WhiteFox
Þá er 18.umferðin búin og Úrvalsdeild karla komin í tæplega mánaðar pásu en Endalínan fer aldrei í pásu. Endalínumenn fóru yfir málin í WhiteFoxStofunni og gerðu upp leikina og spáðu aðeins í spilin. Stórleikur í DHL , eru KR komnir í PlayoffsTitlaGírinn ? Valsarar tóku Stjörnulestina í kennslustund og kveiktu í Origo höllinni , LeGrindavík að búa til von í landrisinu og lánlausir Fjölnismenn tapa enn einum spennuleiknum og eru fallnir. BudLight speki vikunnar er á sínum stað ásamt pælingum um rosalegan lokasprett sem framundan er í deildinni. Allt þetta fyrir Körfuboltafjölskylduna á Endalínunni. #Endalinan #WhiteFox #BudLight
Endalínan er alltaf í toppformi og tæklar hraðmót eins og þessi af alvöru. Snörp umfjöllun um 17.umferðina og rýnt í helstu atriðin. Alvöru bardagaleikur í Síkinu , Ljónheppnir Njarðvíkingar í mánudags gírnum , Fjölnir bara ennþá meira fallið og Haukar farnir að líta út fyrir að vera mögulegir contenders ?
Endalínan , umfjöllun fyrir Körfuboltafjölskylduna á tandurhreinni íslensku í boði Podcast Stöðvarinnar , BudLight og WhiteFox.
#Endalinan #WhiteFoxStofan #BudLight
Endalínan heiðrar minningu Kobe Bryant , sem fórst í þyrluslysi sunnudaginn 26.janúar sl. með 24. þættinum ! Við ræðum um þennan einstaka mann , innan sem utan vallar en dauði hans hefur haft svakaleg áhrif á fólk útum allan heim. #Mamba #Mambacita #KOBE8 #KOBE24 #GIGI2 #RIP
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

5 Listeners

140 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

91 Listeners

17 Listeners

17 Listeners

27 Listeners

67 Listeners

21 Listeners

17 Listeners

15 Listeners

12 Listeners

1 Listeners