Sú var tíðin að áhorfendur þurftu að bíða eftir því að fylgjast með uppáhalds sjónvarpsþáttunum sínum viku eftir viku. Streymisveitur og hámhorf hafa útrýmt þessari bið að miklu leyti en örfáir þættir frá fyrri tíð hafa blómstrað í línulegu áhorfi. Þeirra á meðal eru þættir um piparsveina og piparmeyjar og í dag skyggnumst við í 2000 manna Facebook grúppu sem meltir örlög þeirra í viku hverri.
Í síðustu viku varpaði mannlaus dróni frá bandaríkjaher sprengju sem grandaði íranska hershöfðingjanum Qasem Souleimani. Síðan þá hefur gríðarleg spenna verið í samskiptum Bandaríkjanna og Íran, og stríð jafnvel yfirvofandi. Í pistli sínum í dag fjallar Halldór Armand Ásgeirsson og setur í samhegi við forláta gólfmottu sem honum áskotnaðist fyrir nokkrum árum.
Og við höldum áfram að velta fyrir okkur tímaskynjun nútímamannsins. Í dag skoðum við muninn á hringrásartíma og línulegum tíma, og tengsl þess síðarnefnda við hugmyndi um heimsendi. Einmitt þar byrjum við þennan þriðjudaginn