Connie Converse er bandarísk tónlistarkoma sem samdi hugljúfa, háðslega og afar persónulega tónlist fyrir miðbik síðustu aldar. Tónlist hennar leit þó ekki dagsins ljós fyrr en rúmum fimmtíu árum eftir upptökur. Er áhugi óx á lífi hennar og list kom í ljós að tónlistarkonan hafi látið sig hverfa árið 1974. Ekkert hefur til hennar spurst síðan. Við skoðum málið nánar hér í þætti dagsins. Eurovision á Þjóðminjasafninu, hvernig hljómar það ágætu hlustendur? Það er ekki fjarstæða heldur staðreynd, Þjóðminjasafnið kemur víða við, það safnar ekki aðeins gömlum munum, heldur líka siðum og hefðum, og horfir í þeim efnum til samtímans. Þjóðminjasafn Íslands leitar nú eftir aðstoð almennings við að safna upplýsingum um Eurovision hefðir. Ágúst Ó. Georgsson sérfræðingur þjóðháttasafns Þjóðminjasafnsins segir frá í Lestinni í dag.
Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í dag um bandrísku ofurhetjumyndina Avengers: Endgame eftir Anthony Russo og Joe Russo sem slegið hefur rækilega í gegn, en um er að ræða eina dýrustu kvikmynd sem nokkurn tímann hefur verið gerð. Og þýski heimspekingurinn Friedrich Nietzsche og kenning hans um eilífa endurtekningu hins sama er viðfangsefni Karls Ólafs Hallbjörnssonar í pistli dagsins.