
Sign up to save your podcasts
Or


Gestur þáttarins er Tryggvi Pálsson en hann er einn reyndasti stjórnandi og stjórnarmaður íslensks atvinnulífs. Hann hefur því víðtæka reynslu af stefnumótun, stjórnarháttum og samskiptum stjórna og framkvæmdastjórna. Hann er einnig einn af fjölmörgum gestakennurum á námskeiðinu Viðurkenndir stjórnarmenn sem haldið er á vegum Akademias. Í þessum þætt er rætt um hlutverk stjórna í fyrirtækjum, stjórnarhætti, reynslu Tryggva af stjórnarsetu og sitthvað fleira.
Þátturinn fellur undir liðinn Sviðið í Fjármálakastinu og er gefinn út í samstarfi við Akademias.
Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech.
Gestur þáttarins þessa vikuna er Ingvar Haraldsson greininga- og samskiptastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Rætt var um fyrirhugaða hækkun á bankaskatti, rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja og ýmislegt fleira.
Hægt er að bæði hlusta og/eða horfa á þáttinn á Spotify og á fjarmalakastid.substack.com. Þar má einnig gerast áskrifandi af fréttabréfi Fjármálakastsins.
Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech.
Gestur þáttarins þessa vikuna er Finnbogi Rafn Jónsson framkvæmdastjóri viðskipta hjá Nasdaq Iceland. Í þættinum er rætt um innleiðingu miðlægs mótaðila hjá Nasdaq Iceland sem tilkynnt var í síðustu viku, hvernig horfurnar eru fyrir nýskráningar í Kauphöll á næstunni, stöðuna á hlutabréfamarkaði og tækniframfarir hjá Nasdaq.
-------------
Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech
Gestur vikunnar í Fjármálakastinu er Ólafur Þór Jóhannesson fjármálastjóri ÞG verks og systurfélagsins Arcusar ehf, eignarhaldsfélags sem eru í fullri eigu Þorvaldar Gissurarsonar. Ólafur er reynslumikill fjármálastjóri en hann hefur starfað sem fjármálastjóri, forstjóri, endurskoðandi, kennari við Háskólann í Reykjavík, stjórnarmaður og ráðgjafi í ýmsum atvinnugreinum.
Hægt er að bæði hlusta og/eða horfa á þáttinn á Spotify og hér að ofan.
Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech
Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson framkvæmdastjóra Visku sjóða. Rætt var um fyrirhugað frumútboð hjá gervigreindarfyrirtækinu Anthropic, það helsta sem er að eiga sér stað á rafmyntamörkuðum þessa dagana, horfurnar í efnahagslífinu og sitthvað fleira.
-------------------
Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech
Í þessum þætti er rætt við Hönnu Kristínu Skaftadóttur, doktor í gervigreind og sjálfvirknivæðingu ferla í viðskiptum og fagstjóra viðskiptagreindar við Háskólann á Bifröst. Hún er einnig hópstjóri gervigreindarhóps Reykjavík Fintech.
Í þessum þætti er rætt um þau tækifæri sem felast í nýtingu gevigreindar í rekstri, hvar Ísland stendur á því sviði og einnig hópastarfið hjá Reykjavík Fintech.
Umræddur þáttur er undir liðnum Sviðið en það er vettvangur þar sem samstarfsaðilar Fjármálakastsins fá aðgang að sviðsljósinu.
---------------------
Samstarfsaðilar:
Bella Books
Reykjavik Fintech
Akademias
Gestur þáttarins er Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka. Farið var yfir efnahagshorfur og stýrivaxtahækkunina síðastliðinn miðvikudag.
Samstarfsaðilar:
Reykjavík Fintech
Akademias
Bella Books
Í þessum þætti er rætt við Ragnar Árnason prófessor emeritus í hagfræði við Háskóla Íslands. Rætt er um áhrif þess á sjávarútveginn ef Ísland myndi ganga í ESB, áhrif aukinnar skattlagningar stjórnvalda á sjávarútveginn, gang greinarinnar, ETS kerfið og fleira.
------------
Samstarfsaðilar
Reykjavík Fintech
Bella Books
Akademias
Í þessum þætti er rætt við Má Wolfgang Mixa prófessor við Háskóla Íslands. Rætt var um efnahagsmálin en stýrivaxtaákvörðun verður tilkynnt í lok mánaðar, einnig var rætt um hvort sameiningar á bankamarkaði séu mögulegar eftir að Samkeppniseftirlitið gaf út sína afstöðu til málsins og margt fleira.
-----------
Samstarfsaðilar
Akademias
Reykjavík Fintech
Í þessum þætti er rætt við Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar um stöðu og horfur í greininni. Rætt er um fyrirhugaðar skattahækkanir stjórnvalda á greinina, boðaða neytendamarkaðssetningu, hvernig þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst blasir við greininni og margt fleira.
-------------
Þátturinn er í samstarfi við Reykjavík Fintech.
From the publisher's feed

139 Listeners

123 Listeners

22 Listeners

26 Listeners

90 Listeners

17 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

19 Listeners

14 Listeners

15 Listeners

6 Listeners

0 Listeners

26 Listeners

15 Listeners