
Sign up to save your podcasts
Or


Þátturinn í dag er aðeins öðruvísi. Við lítum í baksýnisspegilinn og drögum saman helstu lærdóma ársins. Við heyrum brot úr mest hlustuðu þáttum ársins og kynnum til leiks markmiðaheftið fyrir 2026.
Heftið er hannað til að hjálpa þér að setja skýr markmið, halda fókus og ná alvöru árangri. Ef þú vilt fá heftið sent, sendu okkur línu á Instagram hjá Íslenska draumnum.
Gleðilega hátíð og takk kærlega fyrir hlustunina á árinu.
Í þessum þætti af Íslenska Draumnum ræðir Sigurður við Ingva Þór Georgsson, mann sem hefur farið óhefðbundna leið í atvinnulífinu og byggt upp ótrúlega fjölbreyttan feril. Í þættinum opnar Ingvi á fyrstu skrefum sínum, ævintýrunum í kringum Aflamiðlun, verkefnunum sem spruttu út frá því og þeirri þrautseigju sem hefur haldið honum áfram, verkefni eftir verkefni: borðspilaútgáfu, Alfreð, Pardus, hlaðvarpsrekstur Sýnar, Pyngjan, fyrirtækjasala, hugbúnaðarrekstur og jafnvel þjóðbúningaframleiðslu fyrir börn.
Gestur Íslenska Draumsins þessa vikuna er Helga Sigrún Hermannsdóttir, meðstofnandi og yfirmaður vísinda og vöruþróunar hjá Dottir Skin, hefur vakið athygli fyrir einstaka nálgun sína á snyrtivörur, þar sem sameinast djúp þekking á efnafræði, eigin reynsla af húðvandamálum og vilji til að skapa raunverulegar lausnir. Hún hefur alla tíð verið heilluð af húð, innihaldsefnum og þeirri spurningu hvað virkar í raun. Vegferð hennar sem frumkvöðull hófst ekki með fjárfestafundi eða viðskiptaáætlun, heldur með forvitni, einlægni og samfélagsmiðlum.
Í nýjasta þætti af Íslenska Draumnum tekur Sigurður á móti Árna Jóni Pálssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra Alfa Framtaks, sem deilir einlægri og heillandi sögu sinni frá fyrstu skrefum í viðskiptalífinu yfir í það að leiða einn áhugaverðasta og öflugasta framtakssjóð landsins í dag.
Við kynnum til leiks nýjan og stærri draum. Nýtt stúdíó og stærri hugmyndir. Í þessum stutta kynningaþætti tilkynnum við að Íslenski Draumurinn er hafinn á ný eftir stutt hlé. Við heyrum einnig hljóðbrot úr næstu tveimur þáttum, sem þú mátt ekki missa af.
Fyrsta hljóðbrotið er úr þættinum með Árna Jóni Pálssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra Alfa Framtak. Í þættinum deilir hann einlægri og heillandi sögu sinni frá fyrstu skrefum í viðskiptalífinu yfir í það að leiða einn áhugaverðasta og öflugasta framtakssjóð landsins í dag.
Svo heyrum við hljóðbrot úr þættinum með Helgu Sigrúnu Hermannsdóttur, meðstofnanda og yfirmanni vísinda og vöruþróunar hjá Dottir Skin. Helga hefur vakið athygli fyrir einstaka nálgun sína á snyrtivörur, þar sem sameinast djúp þekking á efnafræði, eigin reynsla af húðvandamálum og vilji til að skapa raunverulegar lausnir.
Við lofum frábærum þáttum í framhaldi, takk fyrir að hlusta!
Í nýjasta þætti Íslenska draumsins ræðir Sigurður Sindri við Heklu Arnardóttur, meðstofnanda Crowberry Capital, sem hefur átt óvenjulega vegferð úr vélaverkfræði yfir í heim fjárfestinga og frumkvöðlastarfsemi. Hekla hefur starfað við fjárfestingar í nýsköpun í fjölda ára, fjárfest í fjölbreyttum hópi tæknifyrirtækja, og komið að byggingu sprotafyrirtækja sem hafa vaxið út fyrir landsteinana.
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski Draumurinn ræðir Sigurður Sindri við Sindra Má Finnbogason, stofnanda og frumkvöðulinn á bak við miðasölukerfið Tix. Í þættinum greinir Sindri frá fyrstu kynnum sínum af forritun, uppbyggingu eigin hugbúnaðarfyrirtækis, og þeirri alþjóðlegu útrás sem fylgdi í kjölfarið. Ferill hans spannar þrjá áratugi og ber vott um óvenjulegan sjálflærdóm, seiglu og víðsýni í rekstri.
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins lítum við aftur á þrjá áhrifamikla gesti sem komu í fyrstu þáttunum – hver með sína einstöku sögu, sýn og leið að árangri. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa lagt ótrúlega vinnu í að byggja upp rekstur frá grunni og eru allir ólík dæmi um hvað frumkvöðlastarf getur falið í sér. Hvort sem það er í hótelrekstri, bílaleigum eða fasteignastarfsemi – þá er eitt sem skín í gegn: þrautseigja, framtíðarsýn og drifkraftur.
Í þessum þætti lítum á þegar Steinþór Jónsson (Hótel Keflavík), Magnús Sverrir Þorsteinsson (Blue Car Rental) og Þorsteinn Ingi Einarsson (Steinabón, Garður Apartments) deila reynslu sinni af því að byggja upp eigin fyrirtæki frá grunni og hvað hefur drifið þá áfram á leiðinni að árangri.
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski draumurinn stígur Sigurður Sindri Magnússon skref til baka og fer yfir þrjá eftirminnilega viðmælendur sem hafa komið fram á árinu: Jónas Hagan Guðmundsson, Kristján Inga Mikaelsson og Hjálmar Gíslason. Þátturinn er áminning um breiddina og dýptina í íslensku frumkvöðlaumhverfi – og hversu mikla innblástur er að finna í þeim sem þora að láta til sín taka.
Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn fáum við innsýn í ævintýralegt og lærdómsríkt ferðalag Hjálmars Gíslasonar – eins reynslumesta frumkvöðuls Íslands og stofnanda GRID, sem vinnur að næstu byltingu í töflureiknum. Hjálmar hefur áratugareynslu af því að umbreyta hugmyndum í raunverulegar vörur og fyrirtæki, og í þættinum deilir hann einlæglega sinni sögu – frá því að selja fyrsta tölvuleikinn sinn 14 ára gamall, yfir í að selja hugbúnaðarfyrirtæki sitt til stórfyrirtækis í Bandaríkjunum.
From the publisher's feed
Þetta hlaðvarp er fyrir þá sem hafa áhuga á fyrirtækjarekstri, fjármálum, fjárfestingum og að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Í þáttunum setjumst við niður með íslenskum frumkvöðlum,…

463 Listeners

140 Listeners

26 Listeners

90 Listeners

19 Listeners

17 Listeners

72 Listeners

32 Listeners

7 Listeners

28 Listeners

19 Listeners

36 Listeners

15 Listeners

26 Listeners

15 Listeners