Íslenski Draumurinn

Íslenski Draumurinn

By Íslenski DraumurinnBusinessEntrepreneurship
Download on the App Store

Íslenski Draumurinn episodes

  • 31. Georg Lúðvíksson - Meniga, Dimon & Spesía

    Í nýjasta þætti Íslenska draumsins er gesturinn Georg Lúðvíksson, raðfrumkvöðull, fjárfestir og fjármálasérfræðingur. Georg er best þekktur fyrir að vera stofnandi Meniga, en hefur einnig byggt upp fyrirtæki eins og UpDown og Dimon, ásamt því að sitja í stjórnum stórfyrirtækja eins og Icelandair og lífeyrissjóða.

    Við förum meðal annars yfir hvernig hann komst í Harvard, hvernig hann nálgast fjármál, hvernig það er að byggja upp fyrirtæki frá grunni og hvaða lærdóm hann hefur dregið af frumkvöðlaferli sínum. Þetta er þáttur sem enginn sem hefur áhuga á nýsköpun eða fjármálum ætti að láta fram hjá sér fara.

    1 hr 54 min
  • 30. Linda Pétursdóttir - LMLP

    Í nýjasta þætti Íslenska Draumurinn er engin önnur en Linda Pétursdóttir, betur þekkt sem Linda Pé, gestur þáttarins. Linda vakti fyrst athygli þegar hún vann titilinn Miss World árið 1988, en í þættinum fer hún yfir hvernig það breytti lífi hennar og opnaði dyr að tækifærum um allan heim.

    Linda segir frá uppruna sínum, hvernig hún endaði í fegurðarsamkeppni og hvernig það leiddi hana í óvænta átt í lífinu. Hún ræðir einnig frumkvöðlastarf sitt og hvernig hún hefur þróað sig frá því að reka heilsulind í 20 ár yfir í það að verða leiðandi í lífsþjálfun.

    Skráðu þig á póstlistann okkar á islenskidraumurinn.is til þess að fá skilaboð þegar við gefum út nýtt efni.

    1 hr 24 min
  • 29. Davíð Örn Símonarson - Smitten

    Í nýjasta þætti Íslenski draumurinn er gesturinn Davíð Örn Símonarson, frumkvöðull og framkvæmdastjóri stefnumótaappsins Smitten. Davíð er einn af fremstu frumkvöðlum landsins og hefur unnið að snjallforritum í um 12 ár. Í þættinum fer hann yfir feril sinn, áskoranirnar sem hann hefur staðið frammi fyrir og hvernig hann hefur byggt sig upp í gegnum ótrúleg verkefni.

    Lestu meira um Davíð og skráðu þig á póstlistann okkar á islenskidraumurinn.is

    2 hr 1 min
  • 28. Jón Óli Ómarsson - Go Car Rental

    Í nýjasta þætti Íslenski draumurinn segir Jón Óli Ómarsson, stofnandi og eigandi Go Car Rental, frá því hvernig hann byggði upp eitt stærsta bílaleigufyrirtæki landsins frá grunni. Saga Jóns er frábært dæmi um hvernig dugnaður, útsjónarsemi og vilji til að læra á öllum sviðum rekstrar geta leitt til stórkostlegs árangurs.

    1 hr 18 min
  • 27. Valgeir Magnússon - Pipar/TBWA

    Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn ræðir Valgeir Magnússon, betur þekktur sem Valli Sport, við Sigurð um feril sinn sem frumkvöðull og auglýsingamaður. Valgeir hefur verið í auglýsingabransanum í yfir 30 ár og er einn stofnenda og eigenda auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, sem í dag hefur um 100 starfsmenn og starfstöðvar í Reykjavík, Osló, Kaupmannahöfn og Helsinki.

    Í þættinum er farið í gegnum áhugaverða sögu Valgeirs – hvernig hann hóf ferilinn sem kynningarstjóri, hvernig „Valli Sport“ varð til fyrir slysni og hvernig hann og félagi hans Siggi byggðu upp eitt stærsta auglýsingamerki landsins.

    Lestu alla greinina um Valgeir og skráðu þig á póstlistann okkar á islenskidraumurinn.is

    1 hr 28 min
  • 26. Arnar Freyr Magnússon - Wodbúð & REIN

    Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn segir Arnar Freyr Magnússon, eigandi Wodbúðar og REIN, frá því hvernig hann hóf feril sinn sem frumkvöðull og byggði upp fyrirtæki frá grunni með takmörkuðum fjármunum en mikilli vinnusemi. Þátturinn gefur innsýn í hvernig hugmynd varð að raunveruleika og hvernig Arnar hefur tekist á við áskoranir á leiðinni.

    Lestu meira um Arnar og þáttinn í heild sinni hér á íslenskidraumurinn.is

    1 hr 10 min
  • 25. Kristján Berg Ásgeirsson - Fiskikóngurinn & Heitirpottar.is

    Í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Íslenski draumurinn segir Kristján Berg Ásgeirsson, oft kallaður Fiskikóngurinn eða Konungur heitu pottanna, frá ótrúlegri vegferð sinni í viðskiptalífinu. Frá því að byrja ungur að bera út dagblöð, til þess að stofna sína fyrstu fiskbúð 18 ára gamall og verða síðar alþjóðlegur dealer of the year hjá Arctic Spa, hefur Kristján sannað að hörð vinna og þrautseigja skila sér.

    Lestu meira um Kristján og þáttinn í heild sinni hér á íslenskidraumurinn.is

    1 hr 28 min
  • 24. Svavar Jóhannsson - Fitness Sport

    Í þessum þætti af Íslenska draumnum er viðmælandinn Svavar Jóhannsson stofnandi og eigandi Fitness Sport. Fitness Sport selur fæðubótarefni og er líka heildsala sem dreifir vörum í helstu búðir. Svavar stofnaði Fitness Sport árið 1998 og til að byrja með var hann með lagerinn í bílskúrnum hjá ömmu sinni. Í þættinum fer hann vel yfir fyrstu skrefin á ferlinum og hvernig bransinn hefur þróast síðustu ár.

    Skráðu þig á póstlistann okkar & á islenskidraumurinn.is.

    1 hr 6 min
  • 23. Jónas Hagan - Global Blue, WISE, Varða Capital, Adira, Nespresso & Dalur Luxury

    Í þessum þætti af Íslenska draumnum er viðmælandinn Jónas Hagan Guðmundsson einn farsælasti frumkvöðull og fjárfestir Íslands. Þetta er í fyrsta sinn sem Jónas kemur fram í hlaðvarpi og deilir einstökum sögum af viðskiptaferlinum ásamt því að segja frá sínum fyrstu skrefum sem frumkvöðull á unga aldri.

    Þátturinn er hlaðinn af innsýn í viðskiptalíf og innblæstri fyrir frumkvöðla. Jónas er fyrirmynd þeirra sem vilja nýta ástríðu sína til að skapa sér einstakan feril. Jónas snertir mun betur á ofangreindum atriðum í þættinum sjálfum ásamt því að snerta á öðrum fjárfestingum sínum eins Bestseller og fleiri verkefni hjá Adira. Aðdáun Jónasar á íslensku frumkvöðlaumhverfi er bersýnileg er hann segir. „Þegar við skoðum höfðatölu, er magnað hvað við eigum marga frábæra frumkvöðla og fyrirtæki. Þetta agaleysi og sköpunarkraftur íslenskra frumkvöðla hefur skapað fyrirtæki sem stæða sig vel á heimsvísu“.


    Jónas undirstrikar að mikilvægt sé að grípa tækifæri þegar þau koma upp. „Tækifæri leiða af sér fleiri tækifæri. Það er lykillinn – að vera óhræddur við að byrja, jafnvel þó þú hafir ekki allt á hreinu.“ Þessi rauði þráður hefur fylgt honum alla tíð og hjálpað honum að ná ótrúlegum árangri.

    1 hr 41 min
  • Markmiðaþáttur

    Þetta er sérstök útgáfa af Íslenska Draumnum þar sem við förum yfir markmiðasetningu. Smelltu á hlekkinn hér, sæktu þér markmiðaheftið og settu þér markmið fyrir 2025.

    Markmiðaheftið er aðgengilegt á islenskidraumurinn.is og við munum fara yfir það í frekari smáatriðum í öðrum þætti. 

    4 min

About Íslenski Draumurinn

From the publisher's feed

Þetta hlaðvarp er fyrir þá sem hafa áhuga á fyrirtækjarekstri, fjármálum, fjárfestingum og að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Í þáttunum setjumst við niður með íslenskum frumkvöðlum,…

More shows like Íslenski Draumurinn

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

465 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

31 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

7 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners